Íþróttabandalag Hafnarfjarðar

Íþróttabandalag Hafnarfjarðar

Share

Íþróttabandalag Hafnarfjarðar er samtök 28 íþróttafélaga í Hafnarfirði og er aðili að ÍSÍ og UMFÍ

Photos from Íþróttabandalag Hafnarfjarðar's post 08/06/2026

Fimleikafélagið Björk - 75 ára afmælishátíð

Fimleikafélagið Björk verður 75 ára 1. júlí 2026. Laugardaginn 6. júní 2026 var haldin glæsileg afmælishátíð í hátíðarsal Flensborgarskólans. Veislustjóri var Hildur Vilhelmsdóttir. Ávörp gesta fluttu Willum Þór Þórsson forseti ÍSÍ, Arnfríður Kristín Arnardóttir varaformaður ÍBH og Árni Rúnar Þorvaldsson Samfylkingunni. Framkvæmdastjóri Björk Hilmar Ingimundarson og formaður Björk Einar Páll Matthiesen kynntu nýtt afmælismyndband. Hlín Benediktsdóttir fráfarandi formaður Björk veitti heiðursviðurkenningar til fjölda Bjarkarfólks. Myndirnar eru frá hátíðinni.😊😊😊

Photos from Íþróttabandalag Hafnarfjarðar's post 04/06/2026

Rio Tinto og Hafnarfjarðarbær úthluta íþróttastyrkjum til barna

Miðvikudaginn 3. júní 2026 fór fram afhending íþróttastyrkja fyrir yngri en 18 ára iðkendur aðildarfélaga Íþróttabandalags Hafnarfjarðar (ÍBH) með athöfn í Álverinu í Straumsvík.
Sunna Björg Helgadóttir forstjóri Rio Tinto á Íslandi, Tinna Rós Steinsdóttir íþróttafulltrúi Hafnarfjarðar og Magnús Gunnarsson stjórnarmaður ÍBH, fyrrverandi bæjarstjóri, formaður / framkvæmdastjóri Knattspyrnufélagsins Hauka afhentu styrkina.

Samningur er í gildi fyrir árin 2025-2027 á milli Íþróttabandalagsins í Hafnarfirði, Rio Tinto og Hafnarfjarðarbæjar. Rio Tinto og Hafnarfjarðarbær greiða 12 milljónir króna árið 2026 hvor aðili inn í samstarfið til stuðnings íþróttum barna í Hafnarfirði. Úthlutanir styrkja eru í júní annars vegar og hins vegar í desember út frá umsóknum félaga og reglum samningsins.

Samtals var verið að úthluta 13,2 milljónum króna í fyrri úthlutun ársins úr sjóðnum eða 55% vegna iðkendafjölda sem æfir reglulega í félögunum, þ.e. a.m.k. 2 sinnum í viku og fjóra mánuði yfir árið.

Árið 2025 var sótt um stuðning vegna 5631 barns og árið 2026 var sótt um stuðning fyrir 5652 börn, fjölgun um 21 barn milli ára. Óskað var eftir umsóknum frá aðildarfélögum ÍBH og sóttu 15 félög um stuðning úr sjóðnum, en þau voru 12 árið 2025.

Eftirtalin félög fengu stuðning út frá samningi og umsóknum:
Fimleikafélag Hafnarfjarðar kr. 4.311.253.
Knattspyrnufélagið Haukar kr. 3.827.813.
Fimleikafélagið Björk kr. 1.819.321.
Sundfélag Hafnarfjarðar kr. 803.397.
Brettafélag Hafnarfjarðar kr. 719.321.
Badmintonfélag Hafnarfjarðar kr. 569.851.
Golfklúbburinn Keilir kr. 411.040.
Hestamannafélagið Sörli kr. 214.862.
Dansíþróttafélag Hafnarfjarðar kr. 163.482.
Hnefaleikafélag Hafnarfjarðar kr. 130.786.
Akstursíþróttafélag Hafnarfjarðar kr. 60.722.
Blakfélag Hafnarfjarðar kr. 58.386.
Siglingaklúbburinn Þytur kr. 46.709.
Bogfimifélagið Hrói Höttur kr. 42.038.
Íþróttafélagið Fjörður kr. 21.019.

Samtals kr. 13.200.000.

Myndirnar er frá úthlutuninni af fulltrúum íþróttafélaga og frá afhendingu styrkjanna😊😊😊

Photos from Íþróttabandalag Hafnarfjarðar's post 24/04/2026

Fulltrúaráðsfundur ÍBH var haldinn 16. apríl 2026

Vor fulltrúaráðsfundur ÍBH var haldinn í félagsheimili Golfklúbbsins Keilis. Á dagskránni voru áhugaverð erindi og samtal við aðildarfélögin um stöðuna hjá þeim. Hrafnkell Marinósson formaður ÍBH setti fundinn og var fundarstjóri á honum. Tinna Rós Steinsdóttir íþróttafulltrúi Hafnarfjarðarbæjar var með erindi um greiningu frístundastyrkja í Hafnarfirði 2025 og nýtt kerfi frístundastyrkja Hafnarfjarðarbæjar. Janus Guðlaugsson PhD-íþrótta- og heilsufræðingur var með erindi um heilsuefling í Hafnarafirði – ÍBH og aðildarfélög. Fulltrúar félaga greindu frá starfinu í sínu félagi. Að lokum var liðurinn önnur mál, undir honum tóku eftirtaldir til máls, Árni Rúnar Þorvaldsson bæjarfulltrúi frá Samfylkingu, Orri Björnsson bæjarfulltrúi frá Sjálfstæðisflokknum, Pálmey frá Sundfélagi Hafnarfjarðar, Tinna Rós íþróttafulltrúi Hafnarfjarðarbæjar og Hilmar framkvæmdastjóri Fimleikafélagsins Björk, síðan var boðið upp á veitingar og spjall. 37 fulltrúar tóku þátt í fundinum, auk gesta. Myndirnar eru af fundinum.

Photos from Íþróttabandalag Hafnarfjarðar's post 29/01/2026

Klifurkeppni RIG 2026 í janúar í íþróttamiðstöðinni Björk Hafnarfirði

22/01/2026

Lífshlaupið hefst 1. febrúar 2026

Lífshlaupið er heilsu- og hvatningarverkefni Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands sem höfðar til allra landsmanna. Markmið þess er að sporna við kyrrsetu og hvetja landsmenn til þess að hreyfa sig meira í sínu daglega lífi.

Ætlar þinn vinnustaður ekki að vera með? 😊😊😊

Photos from Íþróttabandalag Hafnarfjarðar's post 20/01/2026

Hafnarfjarðarbær og Rio Tinto úthluta íþróttastyrkjum

Þriðjudaginn 30. desember 2025 var Íþrótta- og viðurkenningarhátíð Hafnarfjarðarbæjar haldin í Íþróttahúsinu við Strandgötu, á henni fór fram afhending íþróttastyrkja fyrir yngri en 18 ára iðkendur aðildarfélaga Íþróttabandalags Hafnarfjarðar (ÍBH).
Rannveig Rist forstjóri Rio Tinto á Íslandi og Hrafnkell Marinósson formaður ÍBH afhentu fulltrúum aðildarfélaga ÍBH styrkina. Þetta ár var sérstakt að því leytinu til að Rannveig afhenti styrkina í síðasta skipti og flutti Hrafnkell formaður ÍBH stutt ávarp þar sem henni og aðilum innan fyrirtækisins var þakkað fyrir frábæra samvinnu og stuðning undanfarin 25 ár við íþróttahreyfinguna í Hafnarfirði.
Samningur er í gildi fyrir árin 2025 - 2027 á milli Íþróttabandalagsins í Hafnarfirði, Rio Tinto og Hafnarfjarðarbæjar. Rio Tinto og Hafnarfjarðarbær greiddu 12 milljónir króna hvor aðili inn í samstarfið til stuðnings íþróttum barna og unglinga í Hafnarfirði, samtals 24 milljónir króna árið 2025. Hvatagreiðslur fyrir gæðaviðurkenninguna Fyrirmyndarfélag ÍSÍ hófust árið 2023.
Samtals var verið að úthluta 10,8 milljónum króna í seinni úthlutun ársins úr sjóðnum eða 45% vegna þjálfaramenntunar og gæðaviðurkenningarinnar Fyrirmyndarfélag ÍSÍ. Óskað var eftir umsóknum frá aðildarfélögum ÍBH og sóttu 11 félög um stuðning úr sjóðnum. Eftirtalin félög fengu stuðning út frá samningi og umsóknum um þjálfaramenntun:
Fimleikafélag Hafnarfjarðar kr. 3.456.615.
Knattspyrnufélagið Haukar kr. 1.797.440.
Sundfélag Hafnarfjarðar kr. 1.566.999.
Badmintonfélag Hafnarfjarðar kr. 1.121.479.
Fimleikafélagið Björk kr. 967.852.
Hestamannafélagið Sörli kr. 921.764.
Golfklúbburinn Keilir kr. 307.255
Dansíþróttafélag Hafnarfjarðar kr. 291.892.
Brettafélag Hafnarfjarðar kr. 184.353.
Bogfimifélagið Hrói Höttur kr. 153.627.
Hnefaleikafélag Hafnarfjarðar kr. 30.725.
Samtals kr. 10.800.000.

Myndir Hafnarfjarðarbær.

Photos from Íþróttabandalag Hafnarfjarðar's post 19/01/2026

Golfklúbburinn Keilir hlýtur ÍSÍ bikarinn 2025

Félagið er eitt af öflugustu og sigursælustu golfklúbbum á Íslandi og vann til fjölda verðlauna á árinu. Á árinu var m.a. haldið glæsilegt Íslandsmót í golfi á Hvaleyrinni svo að eftir var tekið. Keppendur félagsins eru margir og í öllum aldursflokkum. Tóku þeir þátt í mörgum innlendum og erlendum mótum og tók kvennaliðið m.a. þátt í EM félagsliða. Félagið er reglulega í stefnumótunarvinnu og er með gæðaviðurkenningar fyrir bæði umhverfismál og íþróttastarf. Hrafnkell Marinósson formaður ÍBH og Þórey Edda Elísdóttir 1. varaforseti ÍSÍ afhentu Guðmundi Erni Óskarssyni formanni félagsins bikarinn þriðjudaginn 30. desember 2025 á árlegri Íþrótta- og viðurkenningarhátíð Hafnarfjarðarbæjar🙂🙂🙂

Myndir: Hafnarfjarðarbær.

Photos from Íþróttabandalag Hafnarfjarðar's post 19/01/2026

Íþróttafólk Hafnarfjarðar 2025 Þóra Kristín og Leo Anthony

Íþrótta- og viðurkenningarhátíð Hafnarfjarðarbæjar fór fram í Íþróttahúsinu við Strandgötu þriðjudaginn 30. desember 2025. Þóra Kristín Jónsdóttir körfuknattleikskona úr Knattspyrnufélaginu Haukum var kjörin íþróttakona Hafnarfjarðar og Leo Anthony Speight taekwondomaður úr Fimleikafélaginu Björk var kjörinn íþróttakarl Hafnarfjarðar. Bæjarstjórinn í Hafnarfirði Valdimar Víðisson afhenti þeim viðurkenningar fyrir hönd Hafnarfjarðarbæjar.

Aðildarfélög ÍBH áttu 507 Íslandsmeistara 2025.

Afrekslið ársins 2025 í Hafnarfirði var meistaraflokkur kvenna í knattspyrnu frá Fimleikafélagi Hafnarfjarðar.

Ellefu hópar urðu bikarmeistarar, þar af átta í efsta flokki, Fimleikafélag Hafnarfjarðar bikarmeistarar í frjálsíþróttum í kvennaflokki innanhúss, Fimleikafélag Hafnarfjarðar bikarmeistarar í karla- og kvennaflokki samanlagt innanhúss, Fimleikafélag Hafnarfjarðar bikarmeistarar í frjálsíþróttum í kvennaflokki utanhúss, Fimleikafélag Hafnarfjarðar bikarmeistarar í karla- og kvennaflokki samanlagt utanhúss, Íþróttafélagið Fjörður bikarmeistarar í sundi fatlaðra, Knattspyrnufélagið Haukar bikarmeistarar í handknattleik meistaraflokkur kvenna, Sundfélag Hafnarfjarðar bikarmeistarar í sundi kvennaflokkur og Sundfélag Hafnarfjarðar bikarmeistarar í sundi karlaflokkur.

Tvö lið urðu deildarmeistarar í efsta flokki, Fimleikafélag Hafnarfjarðar meistaraflokkur karla í handknattleik og meistaraflokkur kvenna hjá Knattspyrnufélaginu Haukum í körfuknattleik.
Hafnarfjarðarbær veitir hópum sem verða Íslands-, bikar- eða deildarmeistarar í efsta flokki viðurkenningarstyrk að upphæð kr. 400.000 á titil á meistaraflokk.

Viðurkenning fyrir sérstök afrek.
Aníta Ósk Hrafnsdóttir frjálsíþróttakona úr Íþróttafélaginu Firði varð Norðurlandameistari í 1500m hlaupi og 5000m hlaupi kvenna utanhúss í paraflokki.
Róbert Ísak Jónsson sundmaður úr Íþróttafélaginu Firði / Sundfélagi Hafnarfjarðar varð Norðurlandameistari í 100 m bringusundi karla í paraflokki.
Ómar Darri Sigurgeirsson handknattleiksmaður Fimleikafélagi Hafnarfjarðar vann gullverðlaun í handknattleik á Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar.
Freyr Aronsson handknattleiksmaður Knattspyrnufélaginu Haukum vann gullverðlaun í handknattleik á Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar.
Jóhanna Elín Guðmundsdóttir sundkona Sundfélagi Hafnarfjarðar vann þrenn gullverðlaun í sundi á Smáþjóðaleikunum.
Birnir Freyr Hálfdánarson sundmaður Sundfélagi Hafnarfjarðar vann gullverðlaun í sundi á Smáþjóðaleikunum.
Sólveig Freyja Hákonardóttir sundkona Sundfélagi Hafnarfjarðar vann gullverðlaun á Norðurlandameistaramóti æskunnar í 400m fjórsundi.
Hólmar Grétarsson sundmaður Sundfélagi Hafnarfjarðar vann gullverðlaun á Norðurlandameistaramóti í 400m fjórsundi í unglingaflokki og gullverðlaun í sundi á Smáþjóðaleikunum.
Guðbjörg Reynisdóttir bogfimikoma Bogfimifélaginu Hróa Hetti vann bronsverðlaun á EM í berbogaliðakeppni kvenna.
Snorri Dagur Einarsson sundmaður Sundfélagi Hafnarfjarðar vann tvenn gullverðlaun í sundi á Smáþjóðaleikunum.
Birgitta Ingólfsdóttir sundkona Sundfélagi Hafnarfjarðar vann þrenn gullverðlaun í sundi á Smáþjóðaleikunum.
Vala Dís Cicero sundkona Sundfélagi Hafnarfjarðar vann tvenn gullverðlaun í sundi á Smáþjóðaleikunum.
Nadja Djurovic sundkona Sundfélagi Hafnarfjarðar vann þrenn gullverðlaun í sundi á Smáþjóðaleikunum.
Símon Elías Statkevicius sundmaður Sundfélagi Hafnarfjarðar vann gullverðlaun í sundi á Smáþjóðaleikunum.

Tuttugu afreksmenn voru tilnefndir til kjörs á íþróttakarli Hafnarfjarðar og íþróttakonu Hafnarfjarðar.
Nikita Bazev dansari Dansíþróttafélag Hafnarfjarðar, Róbert Ísak Jónsson sundmaður Íþróttafélaginu Firði / Sundfélag Hafnarfjarðar, Birnir Freyr Hálfdánarson sundmaður Sundfélagi Hafnarfjarðar, Leo Anthony Speight taekwondomaður Fimleikafélagið Björk, Hilmar Örn Jónsson frjálsíþróttamaður Fimleikafélagi Hafnarfjarðar, Jóhannes Berg Andrason handknattleiksmaður Fimleikafélagi Hafnarfjarðar, Guðrún Brá Björgvinsdóttir kylfingur Golfklúbbnum Keili, Aníta Hinriksdóttir frjálsíþróttakona Fimleikafélagi Hafnarfjarðar, Jóhanna Elín Guðmundsdóttir sundkona Sundfélagi Hafnarfjarðar, Þóra Kristín Jónsdóttir körfuknattleikskona Knattspyrnufélagið Haukar, Hanna Rún Óladóttir dansari Dansíþróttafélagi Hafnarfjarðar, Gerda Voitechovskaja badmintonkona Badmintonfélagi Hafnarfjarðar, Birgir Ívarsson borðtennismaður Badmintonfélagi Hafnarfjarðar, Aníta Ósk Hrafnsdóttir frjálsíþrótta- og lyftingakona Íþróttafélaginu Firði, Lúkas Ari Ragnarsson fimleikamaður Fimleikafélagið Björk, Arnór Logi Uzureau skotíþróttamaður Skotíþróttafélagi Hafnarfjarðar, Anna Kamilla Hlynsdóttir snjóbrettakona Brettafélagi Hafnarfjarðar, Arna Eiríksdóttir knattspyrnukona Fimleikafélagi Hafnarfjarðar, Sigurður Bjartur Hallsson knattspyrnumaður Fimleikafélagi Hafnarfjarðar og Elín Klara Þorkelsdóttir handknattleikskona Knattspyrnufélaginu Haukum.

Íþróttakona Hafnarfjarðar 2025 er Þóra Kristín Jónsdóttir körfuknattleikskona Knattspyrnufélaginu Haukum.
Þóra Kristín átti frábært ár þar sem hún var einn af bestu leikmönnum landsins í körfuknattleik. Hún leiddi lið meistaraflokks kvenna hjá Haukum til deildarmeistara- og Íslandsmeistaratitla og var lykilleikmaður í íslenska landsliðinu, þar sem hún var fyrirliði ásamt Söru Rún Hinriksdóttur. Á árinu var Þóra valin leikmaður ársins í úrvalsdeild kvenna sem og besti leikmaður úrslitakeppninnar. Það gerist ekki oft að sami leikmaðurinn er valin besti leikmaður tímabilsins og svo leikmaður úrslitakeppninnar. Sannarlega magnað ár að baki hjá þessari flottu íþróttakonu. Íþróttabandalag Hafnarfjarðar óskar henni til hamingju.

Íþróttakarl Hafnarfjarðar 2025 er Leo Anthony Speight taekwondomaður Fimleikafélaginu Björk.
Leo Anthony hefur um árabil verið okkar öflugasti taekwondo bardagamaður og verið kosinn Taekwondomaður Íslands 5 sinnum. Árið 2025 var eitt það besta hjá honum þar sem hann hélt áfram góðu gengi frá síðasta ári. Hann var fastamaður í Íslenska landsliðinu í bardaga og komst á pall með því á 5 mótum 2025 þangað til að meiðsli gerðu vart við sig á haustmánuðum. Hann var valin til að keppa á HM í Kína 2025 ásamt fjölda annara móta fyrir hönd Íslands. Hann er ríkjandi Íslandsmeistari. Hann hefur verið að keppa á G-mótum, sterkustu alþjóðlegu mótunum, og keppti hann fyrstur Íslendinga á Grand Prix móti, sem eru einungis fyrir bestu taekwondo keppendur í heiminum. Hann hefur unnið flest G-verðlaun íslenskra keppenda frá upphafi. Leo vann meðal annars silfur á Polish Open sem er eitt sterkasta G-1 mótið. Leo var einnig valinn í hóp Íslendinga sem fá styrk frá Ólympíusamhjálpinni fram að Ólympíuleikunum í Los Angeles 2028 og er í Ólympíuhóp ÍSÍ. Íþróttabandalag Hafnarfjarðar óskar honum til hamingju.

Afrekslið ársins í Hafnarfirði 2025 er meistaraflokkur kvenna í knattspyrnu hjá Fimleikafélagi Hafnarfjarðar.
Meistaraflokkur kvenna í knattspyrnu náði frábærum árangri á liðnu ári. Liðið komst í fyrsta skipti í sögu félagsins í úrslitaleik Mjólkurbikars kvenna þar sem liðið laut í lægra haldi fyrir Breiðablik 3-2 eftir æsispennandi framlengdan leik. Á Íslandsmótinu lék liðið 23 leiki með 15 sigrum, 3 jafnteflum og 5 töpum. Þessi árangur liðsins skilaði þeim 2. sætinu í efstu deild kvenna og tryggði þeim jafnframt sæti í Evrópukeppni á næsta ári.
Lið FH var eitt af yngstu liðum Bestu deildar kvenna árið 2025 en stefna félagsins er að vera vettvangur fyrir þróun ungra uppaldra leikmanna og var liðið í sumar einkennandi fyrir það þar sem ungir efnilegir leikmenn skipuðu stóran part af liðinu í bland við þá eldri og reynslumeiri.
Ljóst er að árangur liðsins í sumar hefur sýnt að meistaraflokkur kvenna hjá FH er orðið eitt af bestu liðum landsins í íslenskri kvennaknattspyrnu. Spilamennska liðsins vakti athygli fyrir mikla ákefð og skemmtilegan sóknarleik. Einstaka leikmenn liðsins vöktu einnig athygli og var leikmaður FH, Thelma Karen Pálmadóttir, valinn efnilegasti leikmaður Íslandsmótsins auk þess sem að 3 leikmenn (Thelma Karen, Elísa Sigurjónsdóttir og Arna Eiríksdóttir), þar af tveir uppaldir, voru seldir út í atvinnumennsku á árinu, en það er í fyrsta skipti sem félagið nær að selja leikmenn kvennaliðsins erlendis.

Sérstök viðurkenning.
Íþrótta- og tómstundanefnd Hafnarfjarðar hefur ákveðið að heiðra ákveðin aðila innan íþróttahreyfingarinnar fyrir frumkvöðlastarf og einstakan árangur. Að þessu sinni er um að ræða íþróttamanninn Aron Pálmarsson.
Handknattleiksmaðurinn Aron Pálmarsson lagði handboltaskóna á hilluna eftir lok síðasta tímabils. Óhætt er að segja að Aron sé einn allra sigursælasti íþróttamaður sem Hafnarfjörður og Ísland hefur alið af sér. Á ferlinum vann Aron hvorki meira né minna en 34 stóra titla og þar af 32 á erlendri grundu. Aron varð m.a. landsmeistari samtals 13 sinnum (í fjórum löndum), vann Meistaradeild Evrópu í þrígang og varð heimsmeistari félagsliða í þrígang. Þá tók Aron 10 sinnum þátt í úrslitahelgi meistaradeildar Evrópu, oftar en nokkur annar handknattleiksmaður í sögunni. Aron vann bronsverðlaun með íslenska landsliðinu á EM árið 2010 og lék 182 landsleiki fyrir Íslands hönd. Aron hóf ungur handknattleiksiðkun með FH og lék sína fyrstu leiki fyrir meistaraflokk félagsins aðeins 15 ára gamall. Árið 2009, þegar Aron var 19 ára gamall, gekk hann til liðs við þýska stórliðið THW Kiel og lék með því í s*x ár eða til ársins 2015 þegar hann færði sig yfir til Veszprém í Ungverjalandi. Þaðan lá leiðin til spænska stórveldisins Barcelona í fjögur ár og svo Álaborgar í Danmörku í tvö ár áður en hann koma aftur heim í FH sumarið 2023. Með FH varð Aron bæði deildar- og Íslandsmeistari árið 2024 og var bæði valinn mikilvægasti leikmaður tímabilsins og besti leikmaður úrslitakeppninnar. Haustið 2024 samdi Aron óvænt aftur við Veszprém í Ungverjalandi og lék með liðinu sitt síðasta keppnistímabil og endaði ferilinn sem ungverskur meistari. Afrekaskrá Arons er engri lík eins og hér má sjá: 3x Meistaradeild Evrópu (2010, 2012, 2021), 3x Heimsmeistari félagsliða (2011, 2018, 2019), 5x Þýskalandsmeistari (2010, 2012, 2013, 2014, 2015), 3x Þýskur bikarmeistari (2011, 2012, 2013), 3x Ungverjalandsmeistari (2016, 2017, 2025), 2x Ungverskur bikarmeistari (2016, 2017), 4x Spánarmeistari (2018, 2019, 2020, 2021), 4x Spænskur bikarmeistari (2018, 2019, 2020, 2021), 4x Spænskur deildarbikarmeistari (2018, 2019, 2020, 2021), 1x Danskur bikarmeistari (2022), 1x Íslandsmeistari (2024), 1x Íslenskur deildarmeistari (2024) = 34.
Annað: 10x Þátttakandi í Final 4 Meistaradeild Evrópu (oftast allra) 2x MVP (besti leikmaður). Meistaradeild Evrópu (2014, 2016). Bronsverðlaun á EM með Íslandi (2010). Lið ársins á Ólympíuleikum (2012). Íþróttamaður ársins (2012). Íþróttamaður FH (2024). Gullmerki FH (2010). Handknattleiksmaður ársins á Íslandi (4x), 182 landsleikir, 692 mörk. Ýmis önnur einstaklingsverðlaun hér á landi og erlendis.

Myndir: Hafnarfjarðarbær.

Photos from Íþróttabandalag Hafnarfjarðar's post 09/01/2026

Dansíþróttafélag Hafnarfjarðar 30 ára

Dansíþróttafélag Hafnarfjarðar (DÍH) hélt upp á 30 ára afmælið í desember 2025 með glæsibrag í Sjónarhól í Kaplakrika. Hrafnkell Marinósson formaður ÍBH færði félaginu blómvönd, áritaðann glergrip og fjárupphæð að gjöf í tilefni afmælisins. Auður Haraldsdóttir framkvæmdastjóri / þjálfari DÍH og Atli Már Sigurðsson formaður DÍH veittu gjöfunum viðtöku fyrir hönd félagsins. Félagið var stofnað í nóvember 1995 og hét Nýi dansklúbburinn og hafði fyrst aðstöðu við Reykjavíkurveg í Hafnarfirði. Dansíþróttin fékk viðurkenningu sem íþróttagrein hjá ÍSÍ á Íþróttaþingi ÍSÍ 1995 og sótti félagið um aðild að ÍBH í apríl 1996 og var samþykkt. Nafni félagsins var síðan breytt árið 1998 í Dansíþróttafélag Hafnarfjarðar. Félagið var fyrst dansíþróttafélaga til að gerast aðili að ÍSÍ og hefur að mörgu leyti verið frumkvöðull fyrir dansinn í íþróttahreyfingunni. Félagið hefur dafnað vel í þessi 30 ár og haldið úti sterku dansmóti sem heitir Lotto Open og hefur það verið haldið í íþróttahúsinu við Strandgötu. Í dag á félagið fjöldann allan af frábærum dönsurum sem m.a. taka þátt í mótum út um allan heim. Félagið er með æfingaaðstöðu í félagssal í íþróttamiðstöðinni Björk og í félagssalnum Sjónarhóli í Kaplakrika, en leitað er að varanlegri aðstöðu fyrir félagið og vonandi tekst það á næstu mánuðum. ÍBH óskar félaginu innilega til hamingju með afmælið og frábært íþróttastarf.

Photos from Íþróttabandalag Hafnarfjarðar's post 09/01/2026

Hnefaleikafélag Hafnarfjarðar 20 ára

Hnefaleikafélag Hafnarfjarðar (HFH) fagnar 20 ára afmæli um þessar mundir og að tilefni þess færði ÍBH félaginu blómvönd, áritaðann glergrip og fjárhæð samkvæmt reglugerð ÍBH um afmælisgjafir til aðildarfélaga. Félagið hóf starfsemi vorið 2005. Í nóvember 2005 fékk félagið bráðabirgða aðstöðu í Kaplakrika til að byrja með. HFH var fyrst íslenskra hnefaleikafélaga til að senda keppendur á stórmót erlendis sem voru þau Arndís Birta Sigursteinsdóttir og Stefán Breiðfjörð Gunnlaugsson sem kepptu á Evrópumeistaramótum árið 2006. Fljótlega eftir þing ÍBH á vormánuðum 2007 fékk félagið aðstöðu að Dalshrauni 10 og fór þaðan á haustmánuðum á þessu ári í glæsilega nýja aðstöðu að Suðurhellu 5. Íþróttabandalag Hafnarfjarðar óskar félaginu innilega til hamingju með afmælið, nýja aðstöðu og vonar að vel takist til við að efla starfið enn frekar. Myndirnar eru af nýrri aðstöðu félagsins og frá vinstri af formanni félagsins Gunnari Guðjónssyni, Hrafnkatli Marinóssyni formanni ÍBH, Daða Ástþórssyni þjálfara HFH og Arnóri Má Grímssyni þjálfara HFH.

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Hafnarfjörður?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Category

Website

Address


Strandgata 53
Hafnarfjörður
220

Opening Hours

Monday 08:00 - 16:00
Tuesday 08:00 - 16:00
Wednesday 08:00 - 16:00
Thursday 08:00 - 16:00
Friday 08:00 - 16:00