Haukar körfubolti

Haukar körfubolti Haukar basketball club

Um helgina fór fram fyrsta mótið í mb 11 ára kvenna á Laugarvatni 🏀 Við sendum 2 lið til keppni, A liðið spilar í A riðl...
21/09/2026

Um helgina fór fram fyrsta mótið í mb 11 ára kvenna á Laugarvatni 🏀 Við sendum 2 lið til keppni, A liðið spilar í A riðli og B liðið var í D2.

A liðið:

Laugardagurinn byrjaði snemma, mættum Breiðablik í hörkuleik. Stelpurnar okkur voru grimmar framan af og náðu upp góðu forskoti. Breiðablik gerði áhlaup í seinni hálfleik en stelpurnar okkur voru sterkar í vörninni og kláruðu leikinn með góðum sigri.

Leikur 2 var gegn Val. Stelpurnar byrjuðu ekki nægilega vel og Valsstelpur náðu forskoti. Okkar konur gáfust ekki upp en skotin voru ekki að detta og vörnin of lek. Tap gegn Val.

Þriðji leikur dagsins var síðan gegn Íslandsmeisturum síðasta árs Aþenu. Haukastelpurnar áttu frábæran leik, þær sýndu mikla baráttu og upp varð æsispennadi leikur. Mikil harka og okkar konur miklir töffarar þrátt fyrir mótlæti, en tap var niðurstaðan þennan daginn.

Á sunnudeginum mættu stelpurnar svo sterku liði Stjörnunnar. Þær byrjuðu mjög vel, spiluðu vel saman og gerðu vel varnarlega. En þrátt fyrir góða baráttu sigldu stjörnustúlkur framúr og unnu góðan sigur.

Í síðasta leik helgarinnar var komið að Njarðvík. Hart var barist allan tímann og okkar stelpur voru mjög grimmar og að spila vel. Mikil spenna var í lokin og hart barist. Okkar stelpur voru sterkari í lokin og héldu forystunni og unnu að lokum 2ja stiga sigur, 23-21.

4ja sæti í A riðli því raunin og stelpurnar og þjálfarar ánægðar með helgina.

B liðið spilaði fyrsta leikinn sinn gegn KR. Mikil barátta í vörninni og aðeins verið að stilla miðið og keyra sig í gang sóknarlega. Lítið var skorað í leiknum en mikil barátta, en KR stelpurnar voru örlítið sterkari í þetta sinn, lokatölur 11-14.

Leikur 2 var gegn Breiðablik. Stelpurnar voru sterkar og lögðu sig fram og úr varð hörkuleikur. Flottir taktar sáust sóknarlega en blikastelpur sigldu heim sigri að lokum 24-28.

Á sunnudeginum var fyrri leikurinn gegn Stjörnunni. Haukastelpurnar mættu tilbúnar frá fyrstu mínútu og áttu glæsilegan leik. Fallegt samspil og mikil barátta skilaði stórum sigri, 30-15.

Stelpurnar fengu stutta pásu og svo var það síðasti leikur mótsins gegn Val. Haukastelpurnar héldu áfram að spila grimma vörn og hleyptu valsstelpunum ekki á körfuna. Þær spiluðu vel saman og oft sýndu þær frábæra takta. Góður sigur að lokum 34-16 og þjálfararnir og stelpurnar gengu sáttar frá helginni.

Næsta mót verður í nóvember og stelpurnar staðráðnar í að halda áfram að æfa vel og koma ennþá sterkari á næsta mót 👏🏼

Haukar sigra Lifetrack - Hoflandsmótið.Takk fyrir okkur Selfoss Karfa
20/09/2026

Haukar sigra Lifetrack - Hoflandsmótið.

Takk fyrir okkur Selfoss Karfa

HAUKAR ERU SIGURVEGARAR LIFETRACK-HOFLANDS MÓTSINS 👏🏻🏆

Um leið og við óskum Haukar körfubolti til hamingju með sigurinn viljum við þakka öllum kærlega fyrir þátttökuna á þessu skemmtilega æfingamóti. Nú ættu öll félög og stuðningsmenn að vera klár fyrir slaginn í vetur 💪🏻

Haukar leika til úrslita á móti Selfoss í kvöld kl 19.00 í Vallaskóla á Selfossi. Áfram Haukar.
20/09/2026

Haukar leika til úrslita á móti Selfoss í kvöld kl 19.00 í Vallaskóla á Selfossi.

Áfram Haukar.

Selfoss og Haukar mætast í úrslitaleik Lifetrack-Hofland mótsins kl. 19 í Vallaskóla í dag. Hvetjum öll til að mæta á leikinn! 💪🏻

Haukar körfubolti

Í kvöld taka stelpurnar á móti Val í æfingaleik fyrir Bónus-deildina ⛹‍♀👉 Leikur hefst kl. 19:15Frítt inn fyrir Hauka í ...
18/09/2026

Í kvöld taka stelpurnar á móti Val í æfingaleik fyrir Bónus-deildina ⛹‍♀
👉 Leikur hefst kl. 19:15
Frítt inn fyrir Hauka í horni og yngri en 16 ára
Almennt miðaverð er 1.000 kr

Sjáumst í kvöld!

Takk fyrir frábærar viðtökur við Bleiku treyjunni 👏 Það er komið að seinni pöntun sem þarf að panta fyrir 22.september. ...
17/09/2026

Takk fyrir frábærar viðtökur við Bleiku treyjunni 👏 Það er komið að seinni pöntun sem þarf að panta fyrir 22.september. Tryggðu þér bleiku treyjuna og gerum stúkuna bleika!

Panta hér: https://korfubolti.is/product/bleikur-oktober-treyja/

Áfram Haukar og Bleika slaufan.

Ert þú Haukur í horni? Fast lágt mánaðargjald fyrir miða á alla deildarleiki meistaraflokka Hauka á Ásvöllum 👏 í körfubo...
15/09/2026

Ert þú Haukur í horni?

Fast lágt mánaðargjald fyrir miða á alla deildarleiki meistaraflokka Hauka á Ásvöllum 👏 í körfubolta, handbolta & fótbolta!

Hægt að skrá sig á Stubb 👉 https://stubb.is/haukar/passes

Einnig bjóðum við í körfunni upp á árskort fyrir ungmenni á aldrinum 17 - 25 ára á 15.000 kr 🤝
Miði á alla heimaleiki Mfl. karla í 1.deildinni og í Bónusdeildinni hjá Mfl. kvenna 🏀 hægt að kaupa á Stubb!

FINNUR OG ELÍN INN Í TEYMI KVENNALIÐS HAUKAFinnur Atli Magnússon hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari kvennaliðs Hauka ti...
14/09/2026

FINNUR OG ELÍN INN Í TEYMI KVENNALIÐS HAUKA

Finnur Atli Magnússon hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari kvennaliðs Hauka til næstu 2ja ára. Finnur hefur verið styrktarþjálfari liðsins undanfarin ár en tekur nú einnig við hlutverki aðstoðarþjálfara. Finnur er fyrrum leikmaður KR og Hauka og hefur því mikla og góða reynslu sem leikmaður. Finnur er einnig reyndur yngri flokka þjálfari hjá Haukum.

Þá hefur Elín Hildur Finnsdóttir einnig skrifað undir 2ja ára samning við Hauka um að vera aðatoðarliðsstjóri hjá kvennaliði félagsins. Elín Hildur æfir með Haukum í sínum aldursflokki og er mjög spennt að taka við nýju hlutverki.

Viktor hafði þetta að segja: "Það er frábært að fá Finn inn í teymið og er mikill kostur að geta verið með hann sem bæði styrktar- og aðstoðarþjálfara. Þá veit ég að Elín Hildur verður öflug á bekknum í vetur."

Við bjóðum Finn og Elínu velkomin í nýtt hlutverk hjá félaginu og hlökkum til samstarfsins.

Áfram Haukar!

Sunnudaginn 13.september tekur Mfl. kvenna á móti Tindastól í æfingaleik fyrir Bónus-deildina sem hefst í lok mánaðar 🏀 ...
12/09/2026

Sunnudaginn 13.september tekur Mfl. kvenna á móti Tindastól í æfingaleik fyrir Bónus-deildina sem hefst í lok mánaðar 🏀 Leikurinn hefst kl. 17:00 📍 Ólafssalur á Ásvöllum 👊

▪ Frítt inn fyrir Hauka í horni & yngri en 16 ára
▪ Almennt miðaverð 1.000 kr - selt við hurð

Sjáumst í Ólafssal 👏

Address

Ásvellir 1
Hafnarfjörður
221

Opening Hours

Monday 09:00 - 17:00
Tuesday 09:00 - 17:00
Wednesday 09:00 - 17:00
Thursday 09:00 - 17:00
Friday 09:00 - 17:00

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Haukar körfubolti posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share