Örlítið sneak peek úr fyrirlestrinum Hnarreist sem hefur heimsótt flottustu fyrirtækin í bænum 😃
Vill þitt fyrirtæki fá heimsókn og taka skref í átt að fyrirbyggjandi meiðslum duglegra starfsmanna?
Heilsubergið
Heilsubergið hjálpar þér að verða heilbrigðari og hraustari útgáfa af sjálfum þér með ?
01/02/2023
Gaman að koma í Prentmet Odda.
Flottur og léttur salur! Þau fyrirgáfu mér raddleysið í dag, þannig að míkrófónninn kom sér gríðarlega vel
Upp upp og áfram glæsilega fólk !
21/01/2023
5k í Skinners hlaupasokkunum
Þetta er ekki flókin langloka.
Ég fer yfir þetta í fyrirlestrunum mínum Hnarreist :) og auðvitað margt annað sem bjargar skrifstofufólki
Ef við erum stíf eða þreytt í brjóstvöðvunum getur alveg verið nóg fyrir marga að rúlla bolta yfir svæðið.
Við staðsetjum okkur undir viðbeinið og rúllum undir meðfram því nokkrum sinnum fram og tilbaka.
Svo er hægt að fikra sig smátt og smátt neðar og halda áfram.
Mjög einfalt!
31/12/2022
Mynd úr fyrsta fyrirlestrinum mínum Hnarreist 2022 (nema að hún er pínu breytt) Erfitt að spotta gott photoshop :) Var ekki í alvöru með jólasveinahúfu á fyrirlestrinum.
En síðan þá hef ég mætt í á þriðja tug fyrirtækja og og hlakka til næstu heimsókna 2023.
Gleðilegt hnarreist ár og verum stór, sterk og stolt af okkur ! 🤩🤩
09/12/2022
Takk Tryggingar og Ráðgjöf fyrir að leyfa mér að koma í heimsókn með fyrirlesturinn Hnarreist!
Sérstaklega gaman að koma á jólapeysudeginum sjálfum 🎅
Ef ég vissi það fyrirfram, þá hefði ég klæðst einni líka 👕
Stutt í jólin! Gleði og gaman!
Pössum okkur á álaginu fyrir jólin!
Það þarf að hrista upp daginn þinn aðeins!
Höfuðið þitt er kannski byrjað síga niður fyrir framan skjáinn?📉
Axlirnar að halla fram?
Verum hnarreist saman
👉Stattu upp
👉Teygðu úr þér
👉Prófaðu þetta
25/11/2022
Nýjung í Heilsuberginu í takmarkaðan tíma ⭐
Hví ekki að kíkja í góðan nuddtíma rétt fyrir jólastressið?
Ef þú vilt kíkja í heilsunudd þá verður Ingibjörg Elfa heilsunuddari á svæðinu um mánaðarmótin.
Mikil reynsla og gríðarlega fær er konan, enda mín uppáhalds 😀
Tímar lausir 30. nóvember, 1. desember og 2. desember.
Bókaðu tíma hjá henni í síma 863-4662 📞
11/11/2022
Fun fact!
Ég vann á skrifstofu áður en ég fór all in í einkaþjálfun 🖥 ➡️ 💪
Í dag miðla ég uppýsinga til skrifstofufólks hvernig hægt er að komast í gegnum vinnudaginn hraustari og fyrirbyggja vanlíðan í líkamanum🙂
Takk Efla fyrir að fá mig í heimsókn. Alltaf mikil ánægja að hitta nýtt fólk og bjóða erindið mitt Hnarreist 🦍
04/11/2022
Ósar buðu mér á þessum fallega föstudegi að halda fyrirlesturinn Hnarreist fyrir sig. Flott áhersla á heilsu á vinnustöðum í dag.
Kærar þakkir fyrir mig. Þetta er svo gaman!
Góða helgi og njótið.
21/10/2022
Ertu ekki að ná fókus og vinnuflæði?
Prófaðu þetta 👉 Settu þig bókstaflega í “skammarskrókinn”.
Í staðinn fyrir að hanga fyrir framan tölvuna, vera frústreraður yfir því að ekkert sé að gerast, flýja í símann og skrolla í gegnum drasl og byggja upp meira samviskubit yfir því að ekkert er að gerast.
Hafðu annað sæti annarstaðar í rýminu og tilltu þér þar (skammarkrókinn) í fallega stöðu, slakaðu á og EKKI taka símann með þér.
Eftir smástund á þér eftir að leiðast svo mikið, hausinn fer smátt og smátt í gang og vil fara að gera eitthvað! Hann vill komast úr skammarkróknum 😀
Án grins áttu eftir að rjúka aftur í vinnuflæðið og eiga góðan dag. Endurtakist að vild og þörfum 🔄
Click here to claim your Sponsored Listing.
Location
Category
Contact the business
Website
Address
Hnotuberg 23
Hafnarfjörður
221