Jöklamús ehf

Jöklamús ehf

Share

Jöklamús vörurnar eru:
- Jöklamús Græðir
- Jöklamús Varagræðir
- Jöklamús Brjósta- og Bossakrem. Pantanir sendast á / Orders:
[email protected]

Jurtaáburðurinn Jöklamús (Siggakrem) er áburður sem Sigurður Einarsson hefur verið að framleiða og þróa í 14 ár. Vörurnar eru hrein náttúruvara þar sem virkustu efni hennar eru jurtir sem týndar eru á svæðum innan Vatnajökulsþjóðgarðs, í Geitafelli í landi Hoffells og Miðfells í Nesjum en einnig eru tíndar jurtir í Öræfum, á Mýrum og í Lóni. Grunnurinn í áburðinum er ullarfeiti og ólífuolía. Engin

23/07/2024

Magnesíum er allskonar, og mörg stara í vonleysi útí tómið innan um allar dollurnar og dósirnar í heilsuganginum í Nettó og vita ekkert hvað henti best fyrir sínar þarfir.

Hvað gefur mér meiri orku, fítonskraft og betri heilsu.
Hvað virkar ekki og endar bara sem dýrt hland?

Naglinn vill greiða úr hugarangri og bætiefnakvíða svo öll geti farið vopnuð þekkingu í næsta sjoppingtúr, og skundað út með stöff sem er auranna virði í fjölnotapokanum..... umhverfið krakkar.

Magnesíum er af ætt rafvaka (electrolytes) en í þeirri familíu eru önnur steinefni eins og kalíum, króm og natríum.
Rafvakar sjá um að halda uppi stuði í skrokknum eins og Andrea Jóns þeytandi skífum á föstudagskvöldi.

Þeir sjá um að vöðvar geti hreyft sig, hjartað slegið og heilinn tekið á móti áreiti.

Talið er að yfir 50-60 % fullorðinna í Evrópu og Bandaríkjunum þjáist af magnesíumskorti og er annar algengasti steinefnaskortur á Vesturlöndum.

Magnesíumskortur veikir ónæmiskerfið og oft skaðvaldur í síþreytu og orkuleysi.
Einkenni magnesíumskorts eru slæmur svefn, síþreyta, hraður hjartsláttur, minnisleysi, kvíði, vöðvaverkir, sinadráttur, háþrýstingur, þunglyndi, hægðatregða, sinabólga, heilaþoka og margt, margt fleira.

Magnesíumskortur er mjög algengur hjá íþróttafólki og ræktarmelum því mikið magn af kalíum, magnesíum tapast með svita í hamagangi, hlaupum og átökum við galvaníseraðar járnstangir.

Ef kalíum og magnesíum magn í líkamanum lækkar verða vöðvarnir miður sín og byrja að krampa.

Hver þekkir ekki sinadráttinn á nóttunni eftir erfiða æfingu sem tekur kálfana í gíslingu, og þú getur ekkert gert nema andað þig rólega í gegnum þessar óralöngu sekúndur.

Þá getur hjálpað að spreyja NOW Foods Iceland Magnesium chloride en það frásogast í gegnum húð á þreytta vöðva fyrir svefninn til að róa þá niður og koma í veg fyrir krampa

Magnesíum er eins og Þórður húsvörður með verkefnalista uppá margar blaðsíður eða um 600 hlutverk í líkamanum. Takk fyrir og góðan daginn !

Svo Maggi vinur okkar er iðnari en hermaur í maurabúi.

Súrefnisupptaka í frumum, orkumyndun ATP í frumunum, vökvajafnvægi, styrking ónæmiskerfis.
Magnesíum stuðlar að heilbrigðri virkni ensíma í líkamanum.

Framleiðsla á svefnhormóninu melatónín, skjaldkirtilshormónum og testósteróni.
Magnesíum er vöðvaslakandi og stuðlar að betri svefni þegar tekið fyrir háttatíma.

Magnesíum hjálpar líka við vöðvavöxt.
Ein rannsókn sýndi að inntaka á magnesíum yir 8 vikna tímabili jók magn testósteróns og IGF-1 (Insulin-like growth factor) í líkamanum.

Magnesíum virkjar D-vítamín gildin í líkamanum.

Hátt magnesíum tryggir að hvítu blóðkornin séu við hestaheilsu og sinna hlutverki sínu að slátra bakteríum í skrokknum.
Lágt magnesíum veldur hinsvegar lömun þeirra, sem þýðir að skrokkurinn ræðst á eigin vefi sem myndar bólgur, og skemmir vefi og frumur.

Magnesíum passar uppá blóðþrýsting, blóðsykur, og að vöðvar og frumur hafi það jafn gott og nýbaðaður hvítvoðungur í vöggunni sinni.

En hvaða magnesíum er best að velja?
Því þau heita allskonar skrýtnum nöfnum sem þú kannt ekki einu sinni að bera fram og hvað þá hvaða starfshlutverk þau hafa í skrokknum.

Algengustu týpur magnesíum eru:

🟦 Glycinate: Róandi fyrir miðtaugakerfið og slakar á vöðvum. Gott fyrir Svefnleysi, hausverk, kvíða.
🟦 Magtein (L-threonate): Bætir minni og hugræna virkni. Fer í gegnum blóð-heila þröskuld. Gott fyrir svefn með L-theanine (100mg)
🟦 Citrate: Hægðalosandi. Mýkir hægðir. Gott fyrir hægðatregðu og harðlífi.
🟦 Malate: Orkugefandi. Síþreyta, Svefnleysi, vefjagigt.
🟦 Chloride spreyolía: Frásogast gegnum húð. Gott fyrir vöðvaslökun og krampa. Gott eftir fótaæfingu eða Crossfit.
🟦 Oxide: Kemur jafnvægi á sýrustig. Gott fyrir brjóstsviða, meltingarónot. Getur verið laxerandi í háum skömmtum.

Magnesíum er að finna í fæðutegundum á borð við:

🟣 Lax
🟣 Baunir
🟣 Haframjöl
🟣 Hnetur, möndlur, fræ
🟣 Heilkorna afurðir
🟣 Dökkt súkkulaði (yes baby!!)
🟣 Grænt grænmeti

_________________________________
Þú færð allar týpur af NOW Foods Iceland Magnesíum í Nettó

13/11/2022

Jöklamús Græðir á flest sár og þurra húð. 🌱

29/09/2022

Jöklamús hentar fyrir sár, þurkbletti og brunasár.
Eins hefur græðirinn reynst sérstaklega vel á brunasár eftir gervigras.
Hægt er að panta vefsíðunni hjá okkur.

28/09/2022

Við vorum að setja í loftið nýja og endurbætta heimasíðu.
Endilega kíkið inn og látið okkur vita hvað ykkur finnst 😃🍀

16/09/2022
06/05/2022

Jöklamús Græðir 15 ml

Alhliða græðir fyrir bruna-, nudd- og legusár. Virkar vel á þurkbletti og sérlega góður til að græða brunasár eftir gervigras. (Turf burn).
Magn: 15 ml
Innihald: Ullarfeiti, íslensk repjuolía, biriki og 18 íslenskar jurtir.
Kr. 2.750.-

Photos 29/10/2021

Góða helgi 😃✌️🍀

Photos 27/10/2021

Ath hægt er að fá Jöklamús Græðir í 30 ml og svo sérpanta í 50 ml dósum hjá okkur.
Nánari upplýsingar eru á vefnum eða [email protected]

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Hella?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Address


Freyvangur 5
Hella
850