21/05/2026
Frambjóðendur D-listans þakka kjósendum í Rangárþingi ytra stuðninginn í nýliðnum kosningum sem skilaði skýru umboði til áframhaldandi starfa á komandi kjörtímabili.
Kosningabarátta D-listans var umfram allt málefnaleg og skemmtileg og við erum ákaflega stolt af henni. Framboðið fékk 545 atkvæði og bætti við sig 62 atkvæðum síðan síðast eða nálægt öðru hverju atkvæði í sveitarfélaginu. Fyrir það erum við afar þakklát.
Þá þökkum við öllum þeim frábæru sjálfboðaliðum sem lögðu framboðinu lið með einum eða öðrum hætti, aðstoð við viðburði, viðveru á kosningamiðstöð, bakstur og fleira. Eins öðrum sem aðstoðuðu okkur við að gera kosningamiðstöðina klára og öllum þeim fjölmörgu sem mættu á viðburði og fundi á vegum framboðsins þar sem nær undantekningalaust var fullt út úr dyrum.
Yfir 550 manns komu í okkar stórglæsilega kosningakaffi á kjördag og færum við þeim sem lögðu þar hönd á plóg við undirbúning hjartans þakkir fyrir sem og Reykjagarði sem færði okkur frábærar veitingar að gjöf.
16/05/2026
Gleðilegan kjördag! Þú getur kosið í Grunnskólanum á Hellu í dag frá kl. 09-22. Atkvæðið þitt skiptir máli. Setjum X við D og gerum betur!
15/05/2026
Lestu grein Ingvars Péturs, oddvita, á Vísi hér ⬇️
https://www.visir.is/g/20262884510d/veljum-ad-gera-betur
15/05/2026
Við getum gert betur í skólamálum! Það gengur t.d. ekki að reglubundin endurskoðun skólastefnunar sé trössuð og látin afskipt. Síðasta endurskoðun fór fram 2021. Við munum setja það í forgang að vinna að endurskoðun skólastefnu í samráði við kennara, foreldra og nemendur. Setjum X við D og gerum betur!
15/05/2026
Sé einhver að velkjast í vafa um, eða heyra sögusagnir um eitthvað annað, þá er okkur það ljúft og skylt að tíunda það að hljótum við ykkar stuðning á morgun þá munum við auglýsa stöðu sveitarstjóra og hann ráðinn á faglegum forsendum. Þá yrði Ingvar Pétur oddviti sveitarstjórnar. Þessu verður ekki haggað og staðið við. Áfram gakk. Setjum X við D og gerum betur!
D-listinn mun auglýsa stöðu sveitarstjóra og ráða hann á faglegum forsendum fáum við umboð þitt til þess 16. maí. Því má treysta.
14/05/2026
Þú getur prýtt þig með ramma D-listans í Rangárþingi ytra hér!
https://xd.is/rammi/
14/05/2026
Eins og frægt er orðið þá hefur eftirspurnin eftir því að fá að dansa við Ingvar Pétur aukist gríðarlega undanfarna daga. Því höfum við útbúið sérstakt danskort fyrir kosningavökuna okkar. Viljir þú stíga dans með Ingvari þá máttu endilega gefa þig fram í athugasemdum hér að neðan.
Munum að kjósa D og sjáumst svo á laugardaginn!
25/01/2026
Frestur til að skila inn framboðum í prófkjör D-listans í Rangárþingi ytra er liðinn. Góður og öflugur hópur fólks hefur gefið kost á sér💪 og verður kynntur nánar þegar nær dregur.
Kynningarfundur verður haldinn í Menningarsalnum á Hellu að kvöldi 2. febrúar. Þar fá frambjóðendur tækifæri til að kynna sig fyrir væntanlegum kjósendum. Nánari tímasetning verður auglýst síðar – en ljóst er að spennandi tímar eru fram undan.