Flughátíðin Allt sem flýgur

Flughátíðin Allt sem flýgur

Share

Hápunktur flugsumarsins er flughátíðin Allt sem flýgur á Hellu. Stanslaust flug alla helgina, karamellurigning, grillveisla og skýlisball.

Photos from Flughátíðin Allt sem flýgur's post 14/07/2025

Takk fyrir komuna - sjáumst á næsta ári!

Photos from Flughátíðin Allt sem flýgur's post 12/07/2025

Grill í kvöld fyrir alla! Óþarfi að elda!

Við minnum gesti hátíðarinnar á að það verður sameiginlegt grill í kvöld sem byrjar klukkan 18. Dýrindis lambalæri, kjúklinganringur og meðlæti.

Verðið er 3.500 fyrir fullorðinn, 1.750 12-15 ára og frítt fyrir 0-11. Drykkir í boði líka bjór, vín og gos.

Selt í sjoppunni eða þegar grillið byrjar!

11/07/2025

Þeir gestir hátíðarinnar sem munu gista um helgina hjá okkur er bent á fáar en einfaldar reglur:

1) Á tjaldsvæðinu er reiknað með því að það sé meira næði eftir því sem gestir eru vestar á því (nær Hellu) en austar á svæðinu (nær flugbrautinni) er meira svigrúm fyrir fjör.

2) Eftir kl 01:00 mælumst við til þess að slökkt sé á allri rafmagnaðri tónlist.

3) Akstur á svæðinu er leyfður en við viljum beina því til ökumanna að fara hægt og gæta fyllsta öryggis. Á svæðinu leynast börn að leik og aðrir óvitar sem gætu verið annars hugar vegna flugs.

4) Gæludýr eru leyfð en þau þurfa að vera í bandi.

Annars eru allir velkomnir og við reiknum með miklu flugfjöri!

11/07/2025

Þeim gestum hátíðarinnar sem koma fljúgandi er bent á að kynna sér Notam sem hafa verið gefin út í tengslum við hana.
https://ans.isavia.is/c-forflugsupplysingar/notam

Annars vegar er litla þverbrautin lokuð á meðan hátíðin er og hins vegar eru reglur varðandi högun flugs:
DUE TO FLY IN, PILOTS NEED TO CALL IN AT FREQUENCY 118.400 5NM
BEFORE APPROACHING THE AIRPORT.
TRAFFIC CIRCUIT FOR RWY 04/22 IS EAST OF THE AIRPORT.
INBOUND TRAFFIC SHALL REMAIN BELOW 1500FT, WHILE OUTBOUND OR
OVERFLYING TRAFFIC SHALL MAINTAIN 1500FT OR ABOVE.
PROHIBITED TO FLY OVER CAMPING SITE.
PILOTS ARE ALSO REQUESTED TO SHOW CONSIDERATION TO RESIDENTS NEAR
THE AIRPORT AND SURROUNDING FARMS BY AVOIDING UNNECESSARY LOW
FLYING OVER THESE AREAS ESPECIALLY DURING NIGHT.

Notam – Isavia ANS Veljið flugvöll, lendingarstað og/eða svæði sem sækja á NOTAM fyrir með því að smella í viðeigandi box. Athugið að ef flugvöllur, lendingarstaður eða svæði finnst ekki í listanum, þá er ekkert NOTAM í gildi fyrir viðkomandi stað.

Photos from Flughátíðin Allt sem flýgur's post 10/07/2025

Flugklúbbur Mosfellsbæjar með veitingar í kvöld. Alltaf að bæta í mannskap og vélar á svæðinu.

10/07/2025

Flugklúbbur Mosfellsbæjar verður með kvöldkaffið á Helluflugvelli í kvöld. Byrjar kl 19. Nú er brostið á með brakandi blíðu og því vel fært flugveður austur fyrir fjall. Hvetjum alla til að mæta hvort sem er keyrandi eða fljúgandi!

Photos from Flughátíðin Allt sem flýgur's post 10/07/2025

Veðurspáin fyrir helgina er frábær fyrir flughátíð. Hæglætis vindur, hæfilegur hiti, úrkomulaust og sól með köflum.

Það sem við höfum umfram gott veður er frábær flugskemmtun og skemmtilegt flugfólk!

Sjáumst öll á Hellu um helgina!
Flughátíðin allt sem flýgur 2025

Photos from Flughátíðin Allt sem flýgur's post 09/07/2025

Fisfélag Reykjavíkur að bjóða uppá vöfflur á Helluflugvelli. Endilega mæta og næstu kvöld í kaffi á Flughátíðin Allt sem flýgur sem er nú þegar byrjuð! Flughátíðin allt sem flýgur 2025

09/07/2025

Vöfflukaffi í boði Fisfélagsins og Skýlis 6 verður kl. 18.00 í dag miðvikudag á Helluflugvelli

09/07/2025

Dagskrá fyrir helgina☀️🔜 Nánari upplýsingar á alltsemflygur.is

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Hella?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Telephone

Address


Hella Airport
Hella
850