Íþróttafélagið Skyttur

Íþróttafélagið Skyttur Íþróttafélagið Skyttur starfar innan vébanda HSK og er varnarþing þess Rangárvallarsýsla. Skotíþróttafélag Rangæinga

Félagið stundar skotíþróttir, pílu og bogfimi og býður uppá aðtöðu fyrir þessar greinar.

Frábær mæting í dag
20/09/2026

Frábær mæting í dag

Góð mæting var í dag þegar félagið var með opið hús og var nýtt skothús til sýnis og heitt á könnunni. Á þriðja tug manns mættu að skoða og prófa aðstöðuna í blíðskaparveður sem var á svæðinu. Stefnt er að því að hafa opið á svæðinu fljótlega aftur. Nokkrar m...

Á sunnudag verður opið hús og geta gestir og gangandi meðal annars skoðað nýtt skothús á svæðinu og hvað svæðið hefur up...
18/09/2026

Á sunnudag verður opið hús og geta gestir og gangandi meðal annars skoðað nýtt skothús á svæðinu og hvað svæðið hefur uppá að bjóða.

Stórt skothús er á Geitasandi sem ætlað er kúlugreinum, þ.e. rifflum og skammbyssu. Húsið er 92 fermetrar og eru 10 skotbásar sem er 1.6m á breidd hver. Hægt er að vera með þungt skotborð á hverjum bás eða færa borðið frá og hafa liggjandi/standandi pláss. Hurðarnar eru opna...

02/09/2026

Verklegt skotvopnanámskeið verður haldið 12. september á Geitasandi fyrir þá sem hafa lokið bóklega hluta skotvopnanámskeiðs.
Skráning á skotvopna og veiðikortanámskeiði eru hjá Skotveiðifélag Íslands Skotvís

Skotsvæðið er því lokað frá kl. 12 - 18 12. sept vegna námskeiðshalds

07/08/2026

Skotsvæðið á Geitasandi verður lokað frá kl 18 í dag, föstudag til kl 18 á morgun vegna mótahalds.

Það er svo félagsmót á sunnudag og svo opið hús í framhaldi af því.

Einnig vantar okkur sjálfboðaliða á morgun og seinnipartinn í dag. Þeir sem hafa áhuga mega hafa samband við Magnús Ragnarsson

02/08/2026

Íslandsmeistaramót í .22LR Benchrest (Hunter Class) verður næstu helgi 8. ágúst á Geitasandi. Svæðið verður því lokað föstudag og laugardag vegna þessa.

Einnig minnum við íþróttamenn á að skráningarfrestur er til kl. 22:00 í dag á mótið.

17/06/2026

Lokað verður á Geitasandi á morgun 18. Júní á milli kl 9 og 15 vegna æfinga.

15/06/2026

Vegna námskeiðs er kúluvöllur á Geitasandi lokaður í dag og á morgun 15. og 16. júní milli kl 9 og 15.
Hægt verður þó að skrá sig í skotpróf vegna hreindýraveiða

Minnum félagsmenn á sumarþjálfaranámið í þjálfaramenntun ÍSÍ en hægt er að taka sérgreinahluta hjá ISSF - International ...
22/05/2026

Minnum félagsmenn á sumarþjálfaranámið í þjálfaramenntun ÍSÍ en hægt er að taka sérgreinahluta hjá ISSF - International Shooting Sport Federation fyrir skotíþróttir og hjá Bogfimisamband Íslands - BFSÍ - Archery Iceland í bogfimi.
Félagið stykir þá sem koma að þjálfun hjá okkur eða hafa áhuga á því.

🎓 Sumarfjarnám ÍSÍ í þjálfaramenntun 1. og 2. stigs hefst mánudaginn 8. júní næstkomandi.

Námið er almennur hluti menntakerfisins og gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar.
Sérgreinaþátt þjálfaramenntunarinnar sækja þjálfarar hjá viðkomandi sérsambandi ÍSÍ.

📝 Skráning:
Skráning fer fram á Abler: http://www.abler.io/shop/isi
Nemendur velja viðeigandi námskeið og ganga frá greiðslu í heimabanka.
Nýir notendur í Abler þurfa að stofna aðgang undir „Nýr notandi.“ Upplýsingar um verð er að finna þarna við skráningu í Abler.

ℹ️ Allar nánari upplýsingar veitir:

Viðar Sigurjónsson, sérfræðingur á stjórnsýslusviðið ÍSÍ
📞 Sími; 514-4000 / 863-1399
✉️ Netfang: [email protected]

12/05/2026

Skotvöllurinn Geitasandi verður lokaður miðvikudag og fimmtudag 13. - 14. maí frá 8-18 báða daga vegna námskeiðs.

Píla þessa vikuna!Langar þig að prófa Pílu? Komdu og vertu með! 🎯Stakur tími kostar 1.500 kr, en fyrir þá sem vilja taka...
04/05/2026

Píla þessa vikuna!
Langar þig að prófa Pílu? Komdu og vertu með! 🎯
Stakur tími kostar 1.500 kr, en fyrir þá sem vilja taka þetta skrefinu lengra er hægt að gerast meðlimur hjá okkur – ársgjaldið er aðeins 15.000 kr.
👇 Skráðu þig hér 👇
https://www.abler.io/shop/skyttur/pila

Hægt er að fygljast með á pílugrúppunni á facebook líka her:
https://www.facebook.com/groups/938957101830345

Address

Geitasandi
Hella
851

Opening Hours

Monday 08:00 - 23:00
Tuesday 08:00 - 23:00
Wednesday 08:00 - 23:00
Thursday 08:00 - 23:00
Friday 08:00 - 23:00
Saturday 08:00 - 23:00
Sunday 08:00 - 23:00

Telephone

+3548680546

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Íþróttafélagið Skyttur posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Share