01/11/2023
Næsta sumar eigum við von á sjö folöldum 😊
Esja-Sól er fengin við Hannibal frá þúfum. Við vorum ánægð að hún skyldi fyljast en hún var geld í fyrra.
Sama á við um Stillu. Hún var geld í fyrra en hélt nú við leirljósum tveggja vetra fola, Esjari, sem við eigum en sá er undan Spaða frá Stuðlum og Esju-Sól.
Systurnar Sif og Sátt Stilludætur eru fengnar við Guttormi frá Dallandi.
Líf gamla er fengin við Kná frá Ytra-Vallholti.
Birta frá Syðra-Brekkukoti er fengin við Snillingi frá Íbishóli.
Evíta er fengin við Álfakletti frá Syðri-Gegnishólum.
Við bíðum spennt eftir næsta sumri 😊☀️
21/01/2022
Mikið er ég stolt af mínum manni :) .Vignir var kjörinn íþróttamaður ársins hjá Létti 2021.
Vignir was chosen the rider of the year in 2021 in our equestrian club Léttir ❤️.
24/10/2021
Við erum afar stolt og þakklát fyrir að Landssamband hestamannafélaga hefur tilnefnt Litlu-Brekku sem keppnishestabú ársins 2021 ásamt fjórum öðrum búum. Bestu þakkir til knapa og eigenda hrossa sem hlut eiga að máli. Við óskum öðrum tilnefndum búum til hamingju.
We are very proud and grateful that Litla-Brekka has been nominated the competition horsefarm of the year in 2021 with four other farms. Thanks to all the riders and owners that made this possible.
19/05/2021
Þegar heimilisfólkið fór á stjá í morgun kom í ljós að Esja Sól hafði kastað leirljósblesóttu hestfolaldi í nótt. Faðirinn er Spaði frá Stuðlum. Folaldið er skemmtileg nýbreytni í litaflóruna hjá okkur en hún hefur hingað til verið talin frekar fábreytt 😊.
Esja Sól had a foal last night. This stallion foal is palomino with a blaze. We are thrilled with this beautiful colour. The father is Spaði frá Stuðlum.
16/05/2021
Líf kastaði brúnu hestfolaldi 29. apríl síðastliðinn. Þetta fallega folald er undan Eyfjörð frá Litlu-Brekku. Eyfjörð er þriggja vetra foli undan Þráni frá Flagbjarnarholti og Esju Sól frá Litlu Brekku. Hann hefur fengið nafnið Laufi.
Líf had this beautiful stallion foal. The father is a three years old stallion, Eyfjörð frá Litlu-Brekku. The father of Eyfjörð is Þráinn frá Flagbjarnarholti and the mother is Esja Sól frá Litlu Brekku.
25/04/2021
Fimmgangurinn í G. Hjálmarsson deildinni var í Léttishöllinni í dag. Evíta frá Litlu-Brekku og Vignir stóðu efst eftir forkeppni með einkunnina 6.70 og innsigluðu síðan sigurinn í úrslitunum með einkunnina 7.37. Góður dagur í dag hjá Litlu-Brekku bændum 😊.
Evíta frá Litlu-Brekku and Vignir competed in F1 (indoors) today. In the preliminary round they had the highest score (6.70). In the finals they got 7.37 and won the competition. A good day for Litla-Brekka breeding today 😊.
15/02/2021
Stjörnuþoka frá Litlu-Brekku þróast vel 🙂
Developing in a positive way 😊
F. Pistill frá Litlu-Brekku.
M. Stilla frá Litlu-Brekku.
29/11/2020
Esja-Sól frá Litlu-Brekku hlýtur heiðursverðlaun fyrir afkvæmi á þessu ári. Hún hefur reynst okkur mjög vel sem ræktunarhryssa, verið frjósöm og skilað rúmum alhliða hrossum með úrvals geðslag. Þetta er fyrsta hrossið í okkar ræktun sem fær þessa viðurkenningu 😊
Esja-Sól receives honour price for offspring this year. We are proud and happy about that 🏆💥