14/10/2025
Fyrstu helgina í október fóru 13 krakkar úr frjálsíþrótthópi Kormáks á Bronsleika ÍR í Laugardalshöll ásamt þjálfara sínum Guðmundi Hólmari. Krakkarnir stóðu sig með prýði og tala myndirnar sínu máli. :)
Úrslit mótsins má sjá hér:
http://mot.fri.is/MotFRI/SelectedCompetitionEvents.aspx?Code=M-00001753.
08/08/2025
Sl. miðvikudag stóð Kormákur fyrir frjálsíþróttamóti uppi í Kirkjuhvammi fyrir 16 ára og yngri. Gaman var að sjá hve fjölmennur yngsti aldurshópurinn (8 ára og yngri) var en fengu þau öll þátttökuverðlaun.
Myndirnar tala sínu máli.
Sumaræfingum er lokið og hefjast æfingar aftur þegar skólavetur hefst.
15/07/2025
Síðastliðna helgi átti Kormákur 6 fulltrúa á Sumarleikum HSÞ. Krakkarnir stóðu sig með prýði og var gaman að fylgjast með þeim etja kappi á mótinu. Náði félagið á verðlaunapall en úrslit má sjá hér:
https://mot.fri.is/MotFRI/SelectedCompetitionResults.aspx?Code=M-00001649
24/01/2025
Síðustu helgi fór flottur hópur frá frjálsíþróttadeild Kormáks á Stórmót ÍR í frjálsum.
Um var að ræða 17 krakka á aldrinum 8-13 ára sem tóku þátt í ýmsum greinum á mótinu. Krakkarnir stóðu sig öll vel en fyrir öllu er að taka þátt, kynnast nýjum krökkum og hafa gaman.
Hjá 8 ára og yngri var farið í svokallaða fjölþraut og áttum við 4 krakka sem tóku þátt. Voru það Aðalheiður Lilja, Guðrún Hallbera, Magnús Þór og Orri Gunnar sem fengu öll þátttökuverðlaun.
Í aldursflokknum 9-10 ára voru 8 krakkar sem tóku þátt. Voru það Almar, Brimdís Hera, Daníel Hólmar, Bryndís Jóna, Ómar Elías, Sigríður Inga, Tómas Bragi og Ýmir Andri. Fengu þau öll þátttökuverðlaun.
Í aldursflokknum 11-12 ára voru 4 krakkar sem tóku þátt. Voru það Íris Birta, Sunna Miriam, Margrét Ragna og Arthur Faustini.
Í aldursflokknum 13 ára og eldri keppti Herdís Erla fyrir hönd Kormáks.
Gaman að segja frá því að keppendur unnu 1 silfur og 3 brons á mótinu. Hægt er að sjá nánari úrslit inná http://mot.fri.is/MotFRI/SelectedCompetitionResults.aspx?Code=M-00001595
Það er kraftur í frjálsíþróttaliði Kormáks og verður gaman að efla hópinn enn frekar.
21/02/2023
Dagana 11.-12. febrúar fór fram, Meistaramót Íslands 11-14 ára í Laugardalshöll. Ungmennafélagið Kormákur átti þar tvo keppendur.
Herdís Erla Elvarsdóttir sem keppti í flokki 11 ára stúlkna í 60 m hlaupi, hljóp á 9,61 sek. og varð í 2. sæti í 400 m hlaupi, hljóp á 80:42 sek og varð í 3. sæti og í langstökki, stökk hún 3,38 metra og endaði í 6. sæti.
Inga Lena Apel Ingadóttir sem keppti í flokki 13 ára stúlkna í 60 m hlaup á 9,41 sek. og varð í 11. sæti, í þrístökki stökk Inga 7,36 m og varð í 16. sæti, í 600 m hlaupi í 2:13:44 og varð í 12. sæti, í kúluvarpi kastaði Inga 7,28 m og varð í 15.sæti, í 60 m grind endaði hún í 7. sæti og í langstökk stökk hún 3,85 m og varð í 13.sæti!
Til hamingju með góðan árangur !!!
15/07/2022
Æfingar næstu tvo fimmtudaga falla líka niður vegna Eldsins og svo verður Unglingalandsmótið hafið og allir mættir þangað :) Einungis tvær æfingar því eftir af sumrinu, þann 18.7 og 25.7.
Takk fyrir sumarið og sjáumst á Unglingalandsmóti.
12/07/2022
Engin æfing í dag, sjáumst á fimmtudaginn. Síðustu tvær vikur sumarsins verða einungis æfingar á mánudögum og fimmtudögum. Endum svo á Unglingalandsmótinu og svo er sumarfrí.
11/07/2022
Síðastliðna helgi, dagana 9.-10. júlí fór fram MÍ 11-14 ára á Akureyri. Kormákur átti þar tvo keppendur. Bragi Hólmar Guðmundssons keppti í flokki 13 ára pilta og Ingi Hólmar Guðmundsson keppti í fjölþrautarkeppninni fyrir 11 ára. Fjölþrautarkeppnin er nýtt fyrirkomulag á mótinu þar sem nú er eingöngu veitt verðlaun fyrir samanlagðan árangur úr öllum greinunum s*x sem keppt er í en ekki verðlaun fyrir einstakar greinar. Greinarnar eru 60 m hlaup, 400 m hlaup, langstökk, hástökk, kúluvarp og spjótkast.
Bræðrunum gekk vel um helgna. Ingi Hólmar stóð uppi sem sigurvegari fjölþrautarinnar og þá Íslandsmeistari. Hann átti líka besta árangurinn í langstökki þar sem hann stökk 4,05 m og í spjótkastinu þar sem hann kastaði því 20,57 m. Næst besta árangurinn átti hann í 400 m hlaupinu en hann kom í mark á tímanum 71,22 s. Þriðji varð hann í 60 m hlaupi á 9,28 s og fimmti í hástökki með 1,21. Í kúluvarpi endaði hann í 18. sæti með 5,81 m.
Bragi Hólmar varð Íslandsmeistari í tveimur greinum, hástökki með 1,52 m og í 300 m grindahlaupi en hann kom í mark á tímanum 51,27 s. Þriðji varð hann í 80 m grindahlaupi á 13,89 s og einnig þriðji í 300 m hlaupi á 45,69 s. Fjórði varð hann í 80 m hlaupi (11,23 s) og í langstökki (4,45 m). Fimmti varð hann í þrístökki (9,50 m) og 9. sæti í spjótkasti með 23,19 m. Í kringlukasti varð hann í 12. sæti (15,40 m) og í kúluvarpi í 14. sæti (7,52 m). Að lokum hljóp hann í gestasveit FH í boðhlaupi en þá voru þrír FH-ingar í liðinu ásamt Braga frá Kormáki. Enduðu þeir í þriðja sæti en hlutu engin verðlaun þar sem árangur þeirra telst ekki til verðlauna þar sem þeir koma úr mismunandi liðum. En gaman var þetta í rigningunni.
11/07/2022
Dagana 2.-3. júlí fóru fram Sumarleikar HSÞ fram á Laugum í Reykjadal. Kormákur átti þar tvo keppendur, þær Ingu Lenu Apel Ingadóttur sem keppti í 12-13 ára ára flokki stúlkna (er sjálf 12 ára) og Ingunni Elsu Ingadóttur sem keppti í kvennaflokki. Stóðu þær sig báðar mjög vel og bættu þær báðar tveimur silfurverðlaunum við verðlaunasafnið sitt. Inga Lena hlaut silfurverðlaun í 80 m grindahlaupi þegar hún hljóp vegalengdina á 17, 35 s og önnur silfurverðlaun í 600 m hlaupi en hún kom í mark á tímanum 2:16,79 s. Einnig varð hún fjórða í 60 m hlaupi á tímanum 9,85 s og fimmta í langstökki með 3,60 m.
Ingunn Elsa hlaut silfurverðlaun í spjótkasti kvenna en hún kastaði kvennaspjótinu 29,19 m og silfurverðlaun í kúluvarpi en hún varpaði kúlunni 7,72 m.
29/06/2022
Nú styttist í MÍ 11-14 ára en það fer fram á Akureyri 8.-9. júlí næstkomandi. Þeir sem vilja fá gistingu í skóla þurfa að láta vita fyrir 1 .júlí.
Hægt er að fá gistingu í Glerárskóla, sem er í 200 m fjarlægð frá keppnissvæðinu, ásamt morgunmat og kvöldmat. Verð fyrir helgina er 9.000 kr.
Látið vita í athugasemd hér að neðanverðu eða í gegnum sportabler appið.
23/06/2022
Næsta frjálsíþróttamót eru Sumarleikar HSÞ en þeir fara fram að þessu sinni 2.-3. júlí á Laugum í Þingeyjarsveit.
Virkilega skemmtilegt mót fyrir allan aldur. Þátttakendur eru á eigin vegum. Þeir sem vilja skrá sig geta látið vita hér í athugasemd eða hafið samband við Þóreyju í skilaboðum eða í síma 8952705. Skráningarfrestur rennur út 30. júní.