12/06/2026
Við erum afar stolt af því að segja frá því að Aníta Liv hefur verið valin ein af átta unglingum á Íslandi til að taka þátt í Youth Cup, sem haldið verður í Þýskalandi í júlí á þessu ári.
Þetta er frábært tækifæri fyrir Anítu Liv að taka þátt á þessu alþjóðlega móti og einstök reynsla fyrir unga knapa.
Við erum einstaklega stolt af því að eiga fulltrúa á Youth Cup og hlökkum til að fylgjast með Anítu Liv takast á við þetta spennandi verkefni.
Innilegar hamingjuóskir og bestu óskir um gott gengi í Þýskalandi! 🇮🇸🐴✨
08/06/2026
Það styttist óðum í 17júni og við ætlum að vera með fánareið og leitum að knöpum sem eru til í að slást í hópinn með okkur.
Endilega sendið skilaboð/tölvupóst ef þið hafið áhuga á að vera með.
08/06/2026
🏆 Frábær árangur hjá Ljúfsfélaga á Reykjavíkurmeistarmóti Fáks um helgina! 🏆
Janus Halldór Eiríksson keppti á hestinum Höfði frá Laugarbökkum í Fimmgangi F2 í meistaraflokki og stóð sig með mikilli prýði.
Þeir tryggðu sér sæti í A úrslitum með einkunnina 6.50 og náðu svo glæsilegum árangri á A-úrslitum,
🏆🥇 1. sæti með einkunnina 7,07! 🎉👏
Hestamannafélagið Ljúfur óskar Janusi og Höfða innilega til hamingju með frábæran árangur! 💙🐴
02/06/2026
**Tilboð á Topreiter-jökkum fyrir félagsmenn Ljúfs**
Félagsmönnum Ljúfs stendur nú til boða að kaupa vandaða Topreiter-jakka með Ljúfsmerkinu.
Í boði eru eftirfarandi gerðir:
🔹 **Gletta (kvk.) / Gustur (kk.)**
Verð: **27.000 kr.**
Litir: **Svartur** og **sandlitur**
🔹 **Tign (kvk.) / Taktur (kk.)**
Verð: **39.000 kr.**
Litir: **Svartur** og **mosagrænn**
Félagsmenn þurfa að fara í **Lífland á Selfossi eða í Korputorg Reykjavík** til að máta jakkana áður en pantað er.
Til að panta jakka þarf að senda tölvupóst á **[[email protected]](mailto:[email protected])** og taka fram:
• Nafn
• Gerð jakka
• Lit
• Stærð
**Pantanir þurfa að berast í síðasta lagi 7. júní.**
Greiðsluseðlar verða sendir út þegar jakkarnir eru afhentir.
Við hvetjum félagsmenn til að nýta sér þetta glæsilega tilboð!
31/05/2026
Úrslit Gæðingarkeppni Ljúfs og hverjir hafa unnið sér inn rétt til að keppa á Landsmóti 2026 fyrir hönd Ljúfs.
Um helgina fór fram Gæðingarkeppni og úrtaka Háfeta, Ljúfs og Sleipnis og lauk gæðingarkeppni í dag með A úrslitum.
Eftirtalin hross og knapar hafa unnið sér rétt á Landsmót
🌟Barnaflokkur:
Hrafnhildur Þráinsdóttir og Bylgja frá Hvoli II
Ragna Margét Larsen og Trölli fra Vetleifsholti 2
🌟Unglingaflokkur:
Katla Björk Claas Arnarsdóttir og Hlín frá Hvammi eða Svartanótt frá Dimmuborg (en Katla þarf að velja hvor merina hún ætlar með)
Talía Häsler og Vænting frá Auðholtshjáleigu
Aníta Liv Snævarsdóttir og Glóð frá Hveragerði
🌟B flokkur ungmenna
Sunneva Sif Jónsdóttir og Kóngur frá Tóftum
Sigrún Björk Björnsdóttir og Tromma frá Bjarnanesi
🌟A flokkur ungmenna
Elsa Tham og Katla frá Kjarri
Sigrún Björk Björnsdottir og Elva frá Staðarhofi
🌟B flokkur áhugamanna
Hrókur frá Hafragili og Sigurrós Lilja Ragnarsdóttir
Mári frá Hvoli II og Elida Fagerhaell
🌟B flokkur
Glæðir frá Langholti og Pernilla Therese Göransson
Ösp frá Áskoti og Emma Golts
Eydís frá Kolsholti 3 og Emma Golts
Og varahestur er Sóley frá Dimmuborg og Dagbjört Skúladóttir
🌟A flokkur
Hildur frá Fákshólum og Helga Una Björnsdóttir
Dröfn frá Dimmuborg og Dagbjört Skúladóttir
Ljúfs-keppendur stóðu sig líka vel í A úrslitum í dag og áttu við keppendur í öllum flokkum nema Bflokk ungmenna. Úrslit Ljúfs keppanda voru eftirtalin:
🏆 Barnaflokk:
6. sæti Hrafnhildur Þráinsdóttir og Bylgja frá Hvoli II
7. sæti Ragna Margrét Larsen og Trölli fra Vetleifsholti 2
🏆 Unglingaflokkur:
5. sæti Talía Häsler og Vænting frá Auðholtshjáleigu
6. sæti Katla Björk Claas Arnarsdóttir og Hlín frá Hvammi
8. sæti Aníta Liv Snævarsdóttir og Glóð frá Hveragerði
🏆 A flokkur ungmenna
3. sæti Sigrún Björk Björnsdóttir og Elva frá Staðahofi
4. sæti Elsa Tham og Katla frá Kjarri
🏆 B flokkur áhugamanna
1. sæti Hrókur frá Hafragili og Sigurrós Lilja Ragnarsdóttir
6. sæti Mári frá Hvoli II og Elida Christina Fagerhaell
🏆 B flokkur
3. sæti Glæðir frá Langholti og Pernilla Therese Göransson
5. sæti Eydís frá Kolsholti 3 og Emma Goltz
🏆 A flokkur
5. sæti Dröfn frá Dimmuborg og Dagbjört Skúladóttir
Óskum við keppendum og eigendum innilega til hamingju með árangurinn um helgina.
Birt með fyrirvara um innsláttarvillur
30/05/2026
Við þökkum fyrir góðan og uppbyggilegan félagsfund.
Að mati stjórnar var fundurinn málefnalegur og jákvæður.
Í stuttu máli er niðurstaða fundarins sú, að óbreyttu, að formaður haldi áfram störfum út kjörtímabilið.
Stjórnin mun yfirfara verklag og leiðbeiningar fyrir nefndir félagsins og skilgreina skýrar umgjörðir um hlutverk þeirra, ábyrgð og hvaða ákvarðanir þær geti tekið án aðkomu stjórnar.
Einnig verður skoðað að skipa tengilið úr stjórn fyrir nefndir félagsins.
Stefnt verður að stofnun siðferðisnefndar.
Þá verður einnig leitað að upplýsingafulltrúa sem hafi það hlutverk að miðla upplýsingum um starfsemi félagsins til félagsmanna með skýrari og reglulegri hætti.
26/05/2026
Félagsreiðtúr í Maradal
Næsta ferð okkar verður þann 07.06. Að þessu sinni ætlum við að ríða saman með Hestamannafélagi Háfeta í Maradal.
Við hittumst klukkan 12:00 við gerðið í Kolviðarhóli.
Frá hesthúsunum í Hveragerði tekur um 20 mínútur að keyra í Kolviðarhól.
Reiðtúrinn er um 16 km langur og við verðum á ferðinni í um 3–4 klukkustundir. Eins og í fyrra munum við einnig útbúa samlokur og drykki fyrir ykkur til að taka með í ferðina.
Þar sem við verðum á ferðinni í stærri hópi er lágmarksaldur í ferðina 10 ár.
Við biðjum einnig um að aðeins vanir reiðmenn, sem eru öruggir á hestbaki, taki þátt í ferðinni svo allir geti notið ferðarinnar á öruggan og skemmtilegan hátt.
Látið okkur endilega vita hvort þið ætlið að vera með.
Við hlökkum til að sjá ykkur!
Kveðja,
Ferðanefnd
22/05/2026
Ágætu félagsmenn
Á þriðjudaginn næsta verður vegurinn við hesthúshverfi þveraður á tveimur stöðum, að sjálfsögðu verður reynt að loka veginum í sem allra skemmstan tíma í senn.
Annars vegar er verið að koma rafmagnsheimtaug í hreinsistöðina og hins vegar er verið að koma heitu vatn inn í hesthúsahverfið.
Sjá mynd fyrir neðan hvar vegur verður þveraður.
Nánari tímasetning á lokunum kemur á þriðjudaginn.
21/05/2026
Sælir Ljúfsfélagar!
Þeir sem ætla að nýta sér beit á beitarsvæði Ljúfs þurfa að sækja um fyrir 1. júní 2026.
Sækja þarf um á [email protected].
Taka þarf fram nafn umsækjanda, kennitölu, hvaða svæði er sótt um ásamt fjölda hesta.
Litur, kyn, aldur og örmerkinúmer hvers hests skal einnig fylgja umsókninni.
Athugið að aðeins félagsmenn sem eru skuldlausir við Ljúf geta sótt um beitarhólf.
Verðskrá per hest á mánuði:
Dalur: 6000 kr.
Sólborgarland: 4000 kr.
Dalur er eingöngu fyrir hesta í brúkun og er bara um að ræða sumarbeit.
Sólborgarlandið er eingöngu fyrir hesta sem eru ekki í brúkun og er sumar og haustbeit.
Þar eru skeifur ekki leyfðar!
Með kveðju,
Beitar- og mannvirkjanefnd
20/05/2026
Sameiginlegt gæðingamót Sleipnis, Háfeta og Ljúfs fer fram á Brávöllum,
Selfossi, dagana 28.-31. maí næstkomandi.
Mótið er einnig úrtaka fyrir Landsmót 2026. Boðið verður upp á tvær umferðir úrtöku.
Skráning í seinni umferð er valkvæð.
Skilyrði fyrir skráningu í seinni umferð er að parið hafi verið skráð til keppni í fyrri umferð. Inn á Landsmót gildir betri árangur hests eða knapa úr fyrri eða seinni umferð.
Gæðingakeppnin eru eingöngu fyrir félaga Sleipnis/Háfeta/Ljúfs í yngri flokkum og eigendur hesta í A- og B-flokki þurfa að vera félagar í Sleipni/Háfeta/Ljúfi, þar sem um úrtöku fyrir Landsmót er að ræða.
Að forkeppni lokinni verður opnað fyrir skráningar í seinni umferð
úrtöku sem verður laugardaginn 30. maí fyrir þá sem vilja. Skilyrði er að parið hafi verið skráð í fyrri umferð, en þátttaka í fyrri umferð er ekki skilyrði fyrir þátttöku í seinni umferð.
Skráning er hafin og verður opin til miðnættis 25.maí, í gegnum sportfeng, velja þarf Sleipni sem aðildarfélag.
Skráningargjöld:
- Barnaflokkur og unglingaflokkur kr. 8000
- A og B flokkar ungmenna kr. 10.000
- A og B flokkar kr. 12.000
Sýningargreinar | Landsmót Hestamanna 2026:
https://www.landsmot.is/.../reglugerd-ahugamannaflokkur-2...
https://www.landsmot.is/.../syningargreinar-a-lm2026...
Mótanefndir félaganna óska eftir að farandgripum verði skilað sem fyrst
hafi það ekki nú þegar verið gert.
Boðið verður uppá pollaflokk. Teymdir pollar skráðir í pollatölt og Ríðandi pollar skráðir í pollaþrígang í gegnum sportfeng. Ath pollar þurfa einnig að vera skráðir í félga.
Fyrirspurnir og annað fer í gegnum [email protected]