Skógá river

Skógá river

Share

Skógá er 4 stanga veiðisvæði sem hentar allri fjölskyldunni. veiðisvæðið samanstendur af Skógá og Kve

Photos from Skógá river's post 07/08/2023

Straumurinn síðasti hafði góð áhrif á laxgengdina, töluvert magn af stórlaxi er búinn að vera sveima um ósinn og svo virðist eins og hann komist ekki upp eða hann er að bíða eftir einhverjum öðrum skilyrðum til að ganga. Smálaxinn rennir sér þó upp og við búið að góðar göngur af smálaxinum fari að koma núna líkt og vanalega uppúr 10 ágúst.

Eigum einhverja staka daga lausa í ágúst og lok september - október með húsi.

Mynd af Grétari Hannessyni með hann á í Ármótum.

Photos from Skógá river's post 02/08/2023

Wow.. glæsilegt hús bara nánast tilbúið á met tíma. Unnið hefur verið dag og nótt í 2 vikur til að upplifa þessa stund. Það var svo kl 15 í dag að nýr hópur gekk inn og sá fyrsti í þessu húsi.

Húsið er virkilega fallegt og notalegt, vonandi eiga margir eftir að njóta hér í faðmi fjölskyldu eða meðal vina. Aðstaðan amk býður uppá allt það besta.

Þó er eitt vandamál sem vonandi leysist fljótlega en við erum ekki komin með rafmagn og því ekki hægt að keyra upp allt sem húsið hefur að bjóða í byrjun.

Næstu dagar verða áfram seldir því án hús og ætti enginn að láta það framhjá sér fara því nú fer ævintýrið að gerast og við eigum von töluvert meira Magni af fisk en í fyrra þó hann sé líkt og í fyrra seinn en þá mun hann koma og í stærri göngum.

Óseldir dagar verða því seldir frá morgni til kvölds í águst. En töluvert er selt með húsi sem við leysum með rafstöð.

Veiðin er öll að togast í gang og er straumurinn nú væntanlega að fara skila stórlaxi í bland við smálax.

Myndir frá því í dag..

Photos from Skógá river's post 21/07/2023

Mikið að gerast á bakkanum við Skógá.. Nú er svo komið að veiðihúsið sem hefur verið í byggingu er bara komið á sinn stað og allt gekk vel fyrir sig. Við tekur akkorðs vinna við að klára allan frágang við húsið að innan og utan. Stefnum á að keyra húsið í gang 2. Ágúst næstkomandi.

Um er að ræða 147 fermetra hús með 4 X 2manna svefnherbergjum og öll með sér baðherbergi. Stofa, eldhús, þvottahús og vöðlugeymslu. Pallar verða fyrir rafmagnspott, grillaðstöðu og aðalinngang. Gert er ráð fyrir rafhleðslu fyrir bíl.

Búið er að finna vatn og borað var eftir því niður á 30metra dýpi. Vatnsgæðin eru mikil enda vatnið vel síað frá forðabúrinu uppá fjalli. (jökulinum)

Læt fylgja myndir af gangi mála.. hver dagur er stór og skemmtilegur hjá okkur..

Photos from Skógá river's post 18/07/2023

Styttist í opnun Skógá. Opnunin verður 21. Júlí þetta árið og mikil tilhlökkun er fyrir komandi veiðitímabili enda eigum við von á slatta af stórlaxi í bland við smálax.

Á meðfylgjandi mynd er nýtt kort sem verður notað í sumar og mun leysa af yfir 20 ára gamalt kort. Kortið verður svo mögulega eitthvað lagfært í sumar ef þörf krefur.

Viðburðaríkt sumar er að hefjast og við munum taka í notkun nýtt 147 fermetra veiðihús sem búið er öllum helstu þægindum.

Húsið verður tekið í notkun um næstu mánaðarmót og verður því hægt að bóka leyfi frá ágúst með húsi.

Júlí leyfin eru seld í 2 stanga pökkum frá morgni til kvölds.

Næstu daga munum við svo setja myndir af framgangi veiðihússins svo áhugasamir geti fylgst með.. Á nýja kortinu má sjá staðsetningu hússins.

29/09/2022

Enn berast jákvæðar fréttir af Skógá, en almennt tala veiðimenn að töluvert sé af fiski og laxinn er vel dreifður. Þá heyrðum við í Hlyni Gylfasyni nú í lok dags og var hann í fisk víða um efri hlutann ( 44 til 55 ) og setti í eina 6 laxa og þar af 3 stórar hrygnur. Þá var amk 20 til 25 laxa hópur við ármót Kvernu og Dalsár.

Þá hafa ýmsar nýjar flugur verið að rífa upp fisk undanfarið en skógá.is túpan er heilt yfir afburðar best.

Það sem var þó mest skemmtilegt í þessu öllu var að nú eru Bæjarlækjamótin skyndilega orðin heitur staður og hafa 4 laxar veiðst þar síðustu daga. Ekki hafa þó margir verið að reyna þennan stað sem kann þó að skýra afhverju hann gaf ekkert fyrr en nú. Bæjarlækjamótin (55) eru einn af fallegri stöðunum í ánni og útí þann stað rennur bæjarlækurinn frá bænum Dragshlíðardal og myndast alltaf fallegur staður þar. Bæjarlækurinn er uppeldisstöð fyrir bleikjuna í Skógá og þar virðist sem töluvert af seiðum sé að vaxa upp sem gæti skilað meiri bleikju eftir 2 til 3 ár. Verður spennandi að fylgjast með því.

Töluvert er af lausum leyfum í október og mjög góð veiðivon áfram..

Mynd er af þeim Kolbeini Ágústi Jónssyni og Degi Nóa Arnarsyni frá því í lok ágúst en þeir ásamt fjölskyldu settu í þennan dag 12 laxa..

Photos from Skógá river's post 18/09/2022

Vorum að fá myndir frá Bæring Jón Guðmundssyni sem og fullt af myndböndum, en hann og félagar hans áttu magnaða tvo daga sem skilaði þeim 26 löxum. Þar af tveim yfir 80 cm. Veiddust þessir fiskar vítt og breytt en þó allir fyrir ofan hyl nr. 41 og upp að foss.Talsvert sáu þeir einnig af laxi í Kvernu en náðu ekki miklu þar. Ekki er algengt að sjá laxinn mikið í Skógá en þar bara reytast þeir upp hver af öðrum og oft vítt og breitt um hvern hyl. Þeir félagar töldu vera mikið af fisk og nóg er eftir af sumrinu til að gera gott mót áfram. Við þetta má bæta að þeir félagar voru duglegir að skipta um flugur og var ekki nein áberandi betri en önnur, þó var áhugavert að græni liturinn gaf sitt sem ekki er algengt í Skógá.

Hvet alla til að skoða inná veida.is laus leyfi en talsvert er laust núna fyrir lokasprettinn og nóg af fisk til að gera góðan dag betri..

Photos from Skógá river's post 17/09/2022

Hörku gangur þegar vel viðrar.. heyrðum af félögunum sem eru að veiða núna í tvo daga. Eftir kaldar nætur undanfarið hefur taka verið treg á morgnanna og veiði glæðst seinnipartinn og fiskur farið að sýna sig meira. Í gær urðu smávægilegar veðrabreytingar og þegar veiðifélagarnir mættu til leiks um kl. 11 tók áin strax vel á móti þeim. Þeir enduðu daginn á 14 löxum sem er næst besti dagurinn í sumar. Og það sem var kannski enn skemmtilegra var að fiskurinn var dreifðari um svæði 3 og 4 og greinilegt að hann er byrjaður að leita á ný svæði. T.d. náðu þeir fyrsta laxinum í sumar úr Kríugrjóti sem er við bílaplanið á Skógafoss en þaðan eiga margir góðar minningar frá fyrri árum enda var sá hylur oft besti staðurinn í árdaga... Það er því ljóst að við gætum átt eftir að eiga fínasta haust það sem eftir lifir af seasoninu. Við veiðum til 20 október og töluvert er laust af leyfum framundan.

Mynda af Árný Öldu með fyrsta flugulaxinn sem reyndist 84cm og tók fluguna skóga.is

Photos from Skógá river's post 12/09/2022

Fínasti gangur er enn í veiðinni og fiskur farinn að dreifa sér um svæðið í meira mæli. Helgin skilaði einum 7 löxum og nokkrir sluppu að auki, fallegum bleikjum og einum 58cm sjóbirting, ekki slæmt. Þá heyrðum við í morgun af einum einum veiðimanni sem var kominn með 3 laxa úr áramótunum og fiskur að sýna sig í ferðamannafit. Raflínustrengurinn hefur verið mjög sterkur i sumar en ármótin hafa þó töluvert verið að sækja á núna síðustu viku sem besti hylurinn. Greinilega spennandi áfram og aðeins spurning um að veðrið verði okkur hagstætt.

Eigum töluvert laust af leyfum út veiðitímabilið.

Mynd af Simon Fle sem náði maríulaxinum í raflinustreng fyrir stuttu.

29/08/2022

Hér er aflakóngurinn í sumar ( Davíð Snær Jónsson) með hann á. Davíð átti ótrúlega skemmtilegan dag í Skógá um helgina. Hann náði 9 löxum í beit úr ármótunum nr. 52 og dagurinn skilaði 15 löxum. Þetta er minning sem lifir klárlega. Fiskurinn gaf sig ekki fyrir hádegi en svo eftir hádegi fór allt í gang og veislan varð stór og skemmtileg. Sterkasta flugan hjá okkur er líkt og áður skógá.is

Fiskur er nú byrjaður að dreifa sér meira og því veiðist nú lax frá hyl 41 og upp alla Kvernu líka.

Lax er enn í göngu og því gæti orðið mjög gaman áfram hjá okkur í Skógá. Töluvert enn laust í september og október.

Loksins stuð í Skógá eftir mögur ár 26/08/2022

Fyrir áhugasama um Skóga þá er hér skemmtileg frétt af svæðinu okkar..

Loksins stuð í Skógá eftir mögur ár Skógá undir Eyjafjöllum hefur gefið góða veiði síðustu viku og það þrátt fyrir litla ástundun. Áin hefur vart borið sitt barr eftir eldgosið í Eyjafjallajökli í apríl árið 2010. Gríðarlegt magn af ösku fór illa með Skógá og lagðist veiði nánast af eftir gosið.

22/08/2022

Frábær helgi að baki. Það er greinilegt að fiskur er að ganga enda veiðast nú glænýir laxar í göngu alla leið uppí Kvernu. Helgin skilaði 13 löxum á land og veiðimenn settu í samtals 23 laxa, þetta er afgerandi mesta veiðin í sumar og stækkandi straumur nú fram yfir helgi og þá má búast við enn stærri göngum enda okkar stærsti straumur ár hvert fyrir Sķógá.

20/08/2022

Allt að ske þessa dagana. Amk sáust yfir 20 laxar undir Kvernubrú í morgun og lúsugur lax um allt. Ljóst er að veiðin er að detta í þrumu gang. Ljósmynd er frá Herði Nilsen sem var við veiðar nýverið og náði 3 löxum úr Raflinustreng. Samkvæmt tölfræði síðustu ára gæti orðið frábær gangur á næstu vikum svona miðað við göngur síðustu daga. Verður verulega gaman að fylgjast með haustinu.

Eigum laust hér og þar næstu daga..

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Hvolsvöllur?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Address


Skógarfoss
Hvolsvöllur
861