02/09/2025
Þórsgata Volcano Trail Run er skráð hjá ITRA. Hér má finna upplýsingar um hlaupið á vef ITRA.
ITRA
Þórsgata Volcano Trail Run er eitt vinsælasta utanvegahlaup ársins Laugardaginn 6. september árið 2025 fer fram í ellefta sinn utanvegahlaupið Þórsgata Volcano Trail Run. Hlaupið er opið öllu áhugafólki um utanvega- og fjallahlaup. Boðið verður upp á tvær vegalengdir sem báðar ...
02/09/2025
Þórsgötuhlaupið fer fram laugardaginn 6. september í 12. sinn og það er útlit fyrir glimrandi hlaupaveður í Þórsmörk... eins og venjulega! ; )
Skráning í fullum gangi á Hlaup.is. Sjáumst hress í Húsadal um helgina.
Hægt er að lengja dvölina og gista í Húsadal.
https://hlaup.is/vidburdir/thorsgata-volcano-trail-run-06-09-2025/
Volcano Trail Run - Þórsgatan 2025 | Hlaup.is
Laugardaginn 6. september árið 2025 fer fram í tólfta sinn utanvegahlaupið Þórsgata Volcano Trail Run í Þórsmörk. Hlaupið er opið öllu áhugafólki um utanvega- og fjallahlaup. Hlaupið er haldið í samstarfi við Hlaupár sem sér um hlaupastjórn.
02/09/2025
Það er útlit fyrir glimrandi hlaupaveður í Þórsmörk um helgina þegar Þórsgötuhlaupið verður haldið í tólfta sinn... Eins og venjulega! Skráning í fullum gangi á Hlaup.is. Sjáumst hress um helgina.
https://hlaup.is/vidburdir/thorsgata-volcano-trail-run-06-09-2025/
19/08/2025
Eruð þið örugglega skráð í eitt besta hlaup ársins?
Þórsgata Volcano Trail Run
Laugardaginn 6. september árið 2025 fer fram í tólfta sinn utanvegahlaupið Þórsgata Volcano Trail Run. Boðið verður upp á tvær vegalengdir sem báðar liggja um bestu útsýnisstaði Þórsmerkur.
01/04/2025
Allir klárir í bátana í þá gömlu góðu! Í dag er þetta allt annað og rúturnar sigla yfir árnar eins og ekkert sé. Sjáumst á ráspól réttu megin við Krossá laugardaginn 6. september. Ævintýrin gerast á leiðinni.
Að dúndra yfir Krossá, festast, klifra upp á þak eða vaða í land —
Þessi mynd minnir okkur á að leiðin í Þórsmörk hefur alltaf verið hluti af ævintýrinu. Sem betur fer eru 4x4 jepparnir okkar aðeins betur búnir í dag.
Spennan? Hún er alltaf sú sama, ferðin er enn vilt, og enn algjörlega þess virði.
21/01/2025
Nú er búið að opna fyrir skráningar í Þórsgötuhlaupið 2025. Hlaupið fer fram laugardaginn 6. september en þetta verður í 12. sinn sem hlaupið er haldið. Í fyrra voru sett brautarmet bæði í karla og kvennaflokkum svo það verður spennandi að sjá hvor það séu sprettharðir hlaupagikkir þarna úti sem geta slegið metin.
Hér á vefsíðu hlaupsins er hægt að nálgast allar nánari upplýsingar
https://volcanotrails.is/boka/ferdir-vidburdir/thorsgata-volcano-trail-run/
Hlökkum til að sjá ykkur sem flest aftur og tökum sérstaklega vel á móti nýliðum í þetta fallegasta og skemmtilegasta hlaup landsins.
13/10/2024
Hér sést vel síðasti spölur Þórsgötunnar niður frá toppi Valahnúks að endamarkinu í Húsadal. Sæmilegasta salibuna!
Conveniently located... in the middle of nowhere! 🌋✨ At Volcano Huts, you're surrounded by untouched wilderness, far from the hustle and bustle but close to everything that matters—majestic landscapes, epic hiking trails, and pure tranquillity. Come find your adventure in Þórsmörk!
11/09/2024
Myndir frá helginni 🤩
Takk fyrir algjörlega dásamlegan dag, þið frábæru hlauparar, trylltu stuðningsaðilar og allir stórir sem smáir sem komu að hlaupinu!
🏃 🏃♀️ 🏃♂️ 💨