Eystra-Fróðholt Hrossarækt
Contact information, map and directions, contact form, opening hours, services, ratings, photos, videos and announcements from Eystra-Fróðholt Hrossarækt, Eystra-Fróðholt, Hvolsvöllur.
23/05/2023
Nýr gistimöguleiki í Húnabyggð, rétt sunnan við bæinn Blönduós, á bænum Brekkukoti. Hægt er að bóka í gegnum Booking.com, Airbnb.is eða hafa samband hér í gegn. Hægt að sjá hvaða dagsetningar eru bókanlegar með því að skoða í gegnum Booking.com eða senda fyrirspurn í Messenger.
11/08/2021
Það er alltaf gaman þegar ungviðið fer að skila sér á tamningaaldur, en þá fær maður að "kíkja í pakkann" eins og sagt er. Hérna er ein sem kemur von bráðar í frumtamningu en við erum afar spennt að sjá hvernig hún þróast. Hún kom nú til af slysni en Vala okkar, Spáar- og Váladóttir kom sér á deit með Krafti þegar hún var 3 vetra.
IS2018286181 - Krafla frá Eystra-Fróðholti
F. Kraftur frá Eystra-Fróðholti (8.42)
M. Vala frá Eystra-Fróðholti (8.39)
Við teljum hana Kröflu bera foreldrum sínum gott vitni um möguleika þeirra sem afkvæmahross 😊👌
----- English -----
It's always fun to "take a peak of the presents", if so to say, when you start working with the young horses. This one comes for training soon but we are really excited to see how she is going to develop. She wasn't planned however, as her mother Vala, decided to go on a date with Kraftur when she was only 3 years old.
We are not sorry now that it happened as we think that Krafla is demonstrating that her parents are well suited as breeding horses 😊👌
11/08/2021
Frábærri hestaferð um Mýrdalinn góða því miður lokið,félagskapurinn og sveitin mín eins og best verður á kosið❤️
31/07/2021
Kraftur frá Eystra-Fróðholti hlaut í vor 8.42 í aðaleinkunn, 6 vetra gamall. Fyrir sköpulag hlaut hann 8.39, þar af 9 fyrir hófa og fyrir hæfileika hlaut hann 8.43, þar af 9 fyrir skeið og samstarfsvilja.
Kraftur er undan Óskasteini frá Íbishóli og Sæl frá Eystra-Fróðholti, Sæludóttur frá Gerðum og Kraflari frá Miðsitju.
Kraftur getur bætt við sig hryssum í hólf ef áhugi er fyrir hendi, hægt er að hafa samband í skilaboðum eða í síma 663-2002 😊
19/06/2021
Félagarnir Heiður frá Eystra-Fróðholti og Teitur Árnason eru búnir að gera það gott á keppnisbrautinni í vor. Þeir skelltu sér í 7.30 í sinni fyrstu keppni á Selfossi fyrr í vor og í gær hlutu þeir 8.0 í forkeppni T1 á Reykjavíkurmeistaramóti. Það verður spennandi að sjá hvað þeir gera í A-úrslitum á morgun! 😊🤩
27/07/2020
24/07/2020
Kraftur frá Eystra-Fróðholti sinnir hryssum í Þykkvabæ í sumar. Verð er 80.000 kr með öllu. Nánari upplýsingar má fá í síma 663-2002 (Ársæll)
Kraftur var sýndur 5 vetra í vor og hlaut hann 8.35 í aðaleinkunn, þar af 8.44 fyrir byggingu (9 fyrir hófa) og 8.30 fyrir hæfileika (9 fyrir samstarfsvilja). Ekta alhliða gæðingur.
Hann er undan Óskasteini frá Íbishóli sem hlaut heiðursverðlaun á dögunum og Sæludótturinni Sæl frá Eystra-Fróðholti.
05/06/2020
Þessi mætti í heiminn í síðustu viku 😍 hann er undan Gná okkar frá Eystra-Fróðholti (8.49) og Glampa frá Kjarrhólum (8.61). Við höldum að þessi sé mikið framtíðarefni! 🌟🤩
Gná er núna í heimsókn hjá Óm frá Kvistum (8.61)
——-
This one arrived few days ago, a bay dun c**t 😍 out of our great Gná frá Eystra-Fróðholti (8.49) and sired by Glampi frá Kjarrhólum (8.61). We think he’ll make a future star! 🌟🤩
Gná is now visiting Ómur frá Kvistum (8.61)
Click here to claim your Sponsored Listing.
Location
Telephone
Website
Address
Eystra-Fróðholt
Hvolsvöllur
861