Gullgæsin býður uppá gistingu og gæsaveiðipakka í A-Landeyjum. The Golden Goose offers Goose hunting trips with accommodation in South Iceland.
Gullgæsin býður uppá gistingu og gæsaveiði í A-Landeyjum . Húsið er nýlegt einbýli á einni hæð með fjórum svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum. Tvö herbergi með hjónarúmi og tvö með tveimur einbreiðum hvort. Það er möguleiki að bæta við tveimur rúmum og þá geta 10 gist í heildina. Sæmilega útbúið eldhús, einhver krydd, olíur og svona þetta helsta,gasgrill, internet tenging, útvarp, sjónvarp, h
andklæði, WC pappír osrfv.
Í bílskúrnum er aðgerðarborð og þar getið þið hengt af ykkur gallana osfrv.
Það eru til um 40 tálfuglar(skeljar úr Hlað) og er ykkur velkomið að fá þá lánaða. Akurinn er um 2.5 hektarar, úr alfaraleið, um 4km frá húsinu og er fólksbíla fært að honum. Hann er ílangur og eru skurðir á þrjár hliðar af fjórum. Ruðningur er eftir skurðbakkanum að norðanverðu og nýleg tún í góðri rækt liggja að akrinum. Hálmurinn liggur á akrinum allt veiðitímabilið og við “gefum” korn á hann milli holla. Við setjum enga kvóta pr byssu en hvetjum veiðimenn til að sýna hófsemi þegar ástæða er til. Við getum auðvitað aldrei lofað veiði, en veiðimenn geta gengið að því vísu að akrurinn er friðaður á milli holla,korn borði í hann þess á milli, og að hann er vel staðsettur á einu besta gæsaveiði svæði landsins. Húsið er sæmilegt þannig að allir ættu að geta notið þess að dvelja í Landeyjunum í góðri veiðivon og félagsskap.
100.000 ISK Ein nótt og morgunflug. ( Veiðum hætt 11:30)
Ef fólk hefur áhuga á að slaka á og gista eftir veiðidaginn bætist við 20.000
Greiðsla staðfestir bókun. Ef eitthvað er óskýrt eða ef fólk vill bóka er langbest að senda okkur línu hérna eða á