12/04/2026
Gæðingurinn og slaktaumatöltarinn Frosti frá Hjarðartúni (A.E. 8.70) hefur verið seldur og heldur á vit nýrra ævintýra. Áður en nýir eigendur, Frey fjölskyldan, bjóða hann velkominn til Sviss í haust verður spennandi að sjá hann á keppnisbrautinni með Arnhildi í sumar. Þessi gæðingur mun líka sinna hryssum í Hjarðartúni þangað hann fer utan í september.
The stallion and the loose rein tölt expert Frosti frá Hjarðartúni (A.E. 8.70) has been sold and is heading toward new adventures. Before his new owners family Frey welcome him to Switzerland this autumn, it will be exciting to see him on the competition track with Arnhildur this summer. This exceptional horse will also serve mares at Hjarðartún until he travels abroad in September.
Der Hengst und T2-Tölter Frosti frá Hjarðartúni (A.E. 8,70) wurde verkauft und begibt sich auf neue Abenteuer. Bevor seine neuen Besitzer, Familie Frey, ihn im Herbst in der Schweiz willkommen heißen, sind wir gespannt, ihn im Sommer mit Arnhildur auf der Turnierbahn zu sehen. Dieser besondere Hengst wird außerdem bis zu seiner Ausreise im September Stuten in Hjarðartún decken.
23/02/2026
Yfirburðir Hjarðartúns í fyrstu mótum Meistaradeildar Líflands | Eidfaxi.is
Meistaradeild Líflands hefur allt til brunns að bera sem prýðir öfluga og spennandi keppnisdeild. Knapar tefla fram sínum bestu hestum og markmiðið er skýrt ...
25/01/2026
Aðalheiður og Hjarðartún efst á stigalistum | Eidfaxi.is
Fyrstu keppni í Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum lauk í gær með sigri Aðalheiðar Önnu Guðjónsdóttur og Flóvents frá Breiðstöðum. Uppboðssætið telur í ...
16/07/2025
Sindri, Frosti og Feykir sinna hryssum á húsi næstu vikurnar í Hjarðartúni🌟
Sindri, Frosti og Feykir will be covering mares by hand the next weeks 😊
⭐️ Sindri frá Hjarðartúni
⭐️ Frosti frá Hjarðartúni
⭐️ Feykir frá Stóra-Vatnsskarði
Síminn hjá okkur er 8833660 😊
Our phone number is +3548833660
20/05/2025
.sigurds and our Fàkur did a great job at V1 Youth Class with the score of 7.07 and winning 👏🥇
We are really exited to whatch these guys together this summer ☀️
Matti og Fàkur okkar með 7.07 og unnu þar með V1 ungmennaflokkinn á WR íþróttamóti Sleipnis 👏 geggjaðir félagarnir og erum við mjög spennt að fylgjast með framhaldinu hjá þeim💥
sigurds
01/05/2025
Sindri, Frosti og Feykir taka á móti hryssum í Hjarðartúni í allt sumar 🍀
⭐️ Sindri frá Hjarðartúni
Sindri býr yfir miklu rými, fjaðurmagni og einstöku geðslagi. Hann sló heimsmet í hæfileikum á Landsmóti 2022 með 9.38 í einkunn og 8.99 í aðaleinkunn.
10 fyrir Brokk, Skeið og Samstarfsvilja
9.5 fyrir Tölt og Fegurð í reið
Verð 275.000 + vsk
⭐️ Frosti frá Hjarðartúni
Frosti er hæst dæmi sonur Skýrs frá Skálakoti með 8.70 í aðaleinkunn. Móðir hans er Hrund frá Ragnheiðarstöðum sem var eftirminnileg hryssa með 9.5 fyrir fegurð í reið. Einstaklega geðgóður hestur sem komin er í fremstu röð í slaktaumatölti. Fyrstu afkvæmi Frosta eru komin á tamningaraldur, þau eru geðprúð með mikinn fótaburð.
Verð 220.000 + vsk
⭐️ Feykir frá Stóra-Vatnsskarði
Feykir var hæsti dæmdi 4 vetra stóðhesturinn í fyrra með 8.71 í byggingu og 8.48 í hæfileikaeinkunn, með 9ur fyrir Háls/herðar/bóga, Skeið og Samstarfsvilja.
Faðir er Þráinn frá Flagbjarnarholti og móðir er Kylja frá Stóra-Vatnsskarði, Kiljansdóttir með 8.88 fyrir hæfileika.
Verð 220.000 + vsk
Allt innifalið í verði á folatolli fyrir utan sérstakar meðferðir hryssna hjá dýralækni. Við óskum eftir að hryssur komi nálægt gangmáli en við erum liðleg ef komið er langt að og við óviðráðanlegar aðstæður ☺️
Pantanir í gegn um samfélagsmiðlana okkar eða í síma/sms
Hjarðartún 8833660
Arnhildur 8661382
Welcome to contact us on our social media or by phone or textmessage ☺️
Hjarðartún +3548833660
Arnhildur +354 866 1382
25/04/2025
Tveir villikettir í KS deildinni voru Hjarðartúnshestarnir okkar Tónn og Frosti en Tónn landaði 3.sætinu með einkunnina 8.17 og Frosti okkar endaði í 1.sæti með einkunnina 8.50!
Mikið erum við glöð með þessa meistara 😍❤️🙏
2 wild cats in the KS league tonight from our breeding! Tónn from Hjarðartún, owner and rider is , placed 3rd tonight with the score of 8.17 and our Frosti got 1 place with the score of 8,50!!
We are so proud of these two and their riders!!🙏🤝
26/10/2024
Ræktunarbú ársins 2024 - Allur listinn | Eidfaxi.is
Eins og mörgum er í fersku minni tilnefndi Fagráð í hrossarækt alls 12 ræktunarbú til sérstakrar viðurkenningar fyrir framúrskarandi ræktunarárangur á árinu ...
02/09/2024
Frosti 💫
We really love this guy, his first season in competition with a score of 7.87 in T2 and plenty of experience for next season!
9x 9 in Breeding Assessment later this summer with total score of 8.70, 8.56 for Conformation and 8.77 for Rideabilities 👌
F. Skýr frá Skálakoti
M. Hrund frá Ragnheiðarstöðum
📷
18/08/2024
Níu x níu - Stóðhesturinn Frosti frá Hjarðartúni hefur verið að gera það gott í keppni í slaktaumatölti með Arnhildi síðustu misserin. Eftir Íslandsmótið var ákveðið að setja hann á kynbótajárningu og fara með hann í kynbótadóm. Hann fór í fyrstu verðlaun 5. vetra en okkur grunaði að hann ætti meira inni. Svo reyndist vera og fékk hann hvorki meira né minna en 8.70 í aðaleinkunn – 8.56 í byggingu og 8.77 í hæfileika með Hans Þór á baki. Hann fékk 9 x 9 eða níu fyrir samræmi, hófa, prúðleika, tölt, skeið, greitt stökk, hægt stökk, samstarfsvilja og fegurð í reið. Með þessum dómi er hann orðinn hæst dæmdi hesturinn undan hinum feykivinsæla stóðhesti Skýr frá Skálakoti, sem einnig fékk 8.70 í aðaleinkunn á sínum tíma. Það stendur líka mjög sterkt að Frosta í móðurætt en hann er undan Hrund frá Ragnheiðarstöðum (AE. 8.25 klár). Sammæðra Frosta eru því gæðingarnir Hrönn frá Ragnheiðarstöðun (8.59 klárhryssa), Ísey frá Ragnheiðarstöðum (AE. 8.33 klárhryssa) og Aspar frá Hjarðartúni (AE. 8.37 klárhestur). Við höfum alltaf haft mikla trú á Frosta og hann hefur farið á okkar hryssur frá unga aldri. Fyrstu afkvæmi hans eru að koma í tamningu í haust og það verður spennandi að fylgjast með þeim. Frosti fer eftir helgi í hólf. Verð 120.000,- plús vsk fyrir fengna hryssu. Nánari upplýsingar í síma 883-3660 eða info@http://xn--hjarartn-62a7h.is/ Mynd Freydís Bergsdóttir
29/07/2024
Ölur frá Reykjavöllum fer í hólf í Vestra - Fíflholti miðvikudaginn 31. júlí.
Ölur er Íslandsmeistari í fimmgangi og hefur hlotið 8.50 í aðaleinkunn í kynbótadómi 🍀
Hæstu skor í keppni
Fimmgangur forkeppni 7.40
Fimmgangur úrslit 7.71
Tölt forkeppni 7.93
Gæðingaskeið 7.83
Ölur er yfirvegaður og geðprúður með einstaka burðargetu á tölti og mikla vekurð, tekur vel á móti nýjum hryssum í hólfi og fyljar mjög vel.
Verð 160.000 + vsk með öllu
Upplýsingar í síma
Hansi 616-1207
Arnhildur 866-1382