17/08/2024
Endaði 11. í seinni keppninni og var aftur í slag við írsku konuna Kayleigh Cole, núna var ég rétt á eftir henni mestalla keppnina, komst nokkrum sinnum nógu nærri til að íhuga að divebomba.
Á einni mynd er pallurinn úr seinni keppni og á annari er sigurvegarinn samanlagt, Craig Pollard sem leiðir nú mótaröðina.
17/08/2024
Ég endaði 13. í fyrri keppni dagsins, ég var í baráttu við Kayleigh Cole frá Írlandi í byrjun en misti hana svo frá mér þegar leið á keppnina.
Þetta er hröð braut og Jedi bílarnir eru hraðir bílar. Til að setja það í samhengi, þá var meðalhraði minn þessa 15 hringi sem ég keyrði, yfir 160 km/klst.
Seinni keppnin byrjar svo kl. 16:30 að íslenskum tíma.
Við notum tíman mill keppna skoða inncar videó, við svissa dekkjunum milli hliða, breytum hjólastillingum útfrá dekkjaslitinu í keppninni og Geiri fer yfir boltana og slithlutina í fjöðruninni og endurnýjar ef eitthvað sýnir minstu merki um að vera ekki í toppstandi.
17/08/2024
Ég varð 14. í tímatökunum. Ég mætti gallvaskur á splunkunýjum slikkum búinn að hugsa þetta alveg út.
Planið að standa hann flatan í 1. beygju og vanda exitið úr 5. beygju inn á backstraightina sem er kölluð Hangar straight. Bremsa minna og standa hann meira. En gírkapallinn losnaði fljótlega svo ég g*t ekki skipt um gír. Ég þurfti því að pitta en þar sem tímatökulotan var bara 15 mínútur, lenti ég á rauðu ljósi á leið út aftur eftir að Geiri var búinn að laga bilunina.
Sem betur fer var ég búinn að ná einum "hotlap" og þó hann hafi ekki verið alveg "hreinn" dugir hann í 14. sæti á ráslínu í fyrri keppninni sem byrar klukkan 12:25 að íslenskum tíma.
16/08/2024
Það gekk á ýmsu í æfingunum í dag, rafmagnsvesen á bílnum í upphafi dags, svo, lét rafskiptirinn ekki að stjórn og að lokum fór vélin í annarri lotunni. Svo Geiri stóð í ströngu fram á kvöld með hjálp minni og annarra úr TSR liðinu við að setja varavélina í. Hún er komin í gang og allt tilbúið fyrir keppnisskoðun í fyrramálið kl 7:45.
Á morgun er tímataka og tvær keppnislotur og svo fljúgum við heim á sunnudag.
15/08/2024
Við Valgeir á leið til Silverstone. Æfingar á föstudag og tímataka + tvær keppnir á laugardag. Tíminn er klukkutíma á undan svo tímatakan er klukkan 8:45 og keppnirnar kl 12:25 og 16:30 að íslenskum tíma.
21/07/2024
Ég endaði í 15. sæti í keppni 2 sem einkenndist af óhöppum og öryggisbíl, strax á öðrum hring. Mér tókst að ná fram úr aðal keppinaut mínum, Joshua Diment, á nýsköfnum dekkjum, á fyrsta hring, á bremsunni, eftir lengsta beina kaflann, alveg eins og í gær. En nù lenti hann í því að snúa bílnum í krækjunum á "Fjallinu" og endaði í veggnum. Út kom öryggisbíllinn sem var úti mestalla keppnina. Liðsfélagi minn, Bert Chapmann, var fjórði í röðinni en endaði í veggnum í síðustu beygjunni. Hann er að hugsa um að gerast "Íslandsvinur" og keppa í Íslandsmótinu á Formúlu 1000 í næsta mánuði.
21/07/2024
Ég endaði 16 í fyrstu keppninni, var orðinn 15. á tímabili en "snéri" fyrir neðan svæði sem er kallað Fjallið, rann afturábak útí gras og tapaði einu sæti. Var mest allan tímann í geggjaðri keppni við gaurinn sem ræsti fyrir framan mig, ég náði framúr honum á 1. hring en hann komst framúr þegar ég snéri.
Á einni myndinni er Geiri að hreinsa dekkin fyrir keppnina en svona keppnisdekk verða eins og tyggjó þegar þau hitna og tína upp alskonar rusl, gúmítæjur og smásteina á leiðinni af brautinni sem er gott að losna við og hjálpar upp á gripið á 1. hring.
20/07/2024
Tímatökurnar gengu ekki alltof vel, ég var 2 sekúndum frá besta tímanum í gær. Það losnaði ró í afturfjöðruninni sem datt að lokum alveg af í síðustu beygju á síðasta hring. Eiginlega hepplegur staður, þegar á allt litið, því það eru nokkrar beygjur sem eru teknar á meira en 200 km/klst. Ég fékk engar aðvaranir, eins og skrölt eða annað, bíllinn var bara aðeins lausari en í gær. Tíminn dugir mér í 18. sæti á ráslínu, af 20 keppendum. Liðsfélagi minn, Thomas Gadd ræsir fremstur, hann var heilli 1,1 sek á undan öðru sæti sem er fáheyrt í þessum bransa. Keppni dagsins, sem er sú fyrsta af þrem, hefst klukkan 15:45 að íslenskum tíma. Sjá má fjöðrunina og nýjan bolta á einni myndinni, sem Geiri er búinn að festa með öryggisvír. Á annari má sjá Tom Gadd sýna mér tölvugögn úr hringnum góða sem við gátum borið saman við mín. Einnig fékk ég að skoða inncar myndband frá honum úr hringnum gòða.
18/07/2024
Við Valgeir erum mættir til Cadwell Park þar sem næsta umferð verður um helgina. Það kom skemmtilega á óvart að liðið var búið að merkja hvern bás með nöfnum ökumannanna. Valgeir fór strax að ditta að bílnum og á einni myndinni er hann með hinum fimm sem halda þessum fjórum bílum gangandi og gera allt sem hægt er til að ökumennirnir nái að einbeita sér að akstrinum.
05/07/2024
Sverrir Þóroddsson keppti í formúlu 3 á Bretlandi og Ítalíu og víðar frá 1964-1970. Árangurinn var lyginni líkastur, hann vann margar keppnir bæði á Ítalíu, á Englandi, meðal annars 1. keppnina sem hann keppti í á Snetterton brautinni.
Ég fékk að skoða stýrið úr kappakstursbílnum sem hann krassaði árið 1965 eða 66 (held ég) í Hróarskeldu. Þá voru engin öryggisbelti í bílunum, líklega sprakk dekk í einni beygjunni og Sverrir vissi fyrr til enn hann hékk í stýrinu eins og supermann þegar bíllinn flaug útaf, hátt fyrir ofan hann á hvolfi. Eins og sjá má kengbognaði stýrið.