14/04/2023
Vinstri öxlin í golfsveiflunni og bolvinda(miðað við rétthentan kylfing)
Það skiptir máli að við snúum líkamanum í sveiflunni og beinum vinstri öxlinni niður.
Mjög algengt er að sjá kylfinga reisa sig upp í aftursveiflunni sem skapar mörg vandamál. Ef við reisum okkur upp er hætt við því að við myndum öfugan þyngdarflutning(höfuðið færist að skotmarki í aftursveiflu) og jafnvægið fer úr skorðum. Algengt er þá að ferillinn verði út-inn og áfallshornið óstöðugt(kúlan myndar sveig frá vinstri til hægri)
Ef við náum að framkvæma þetta rétt þá sjáum við að höfuðið færist örlítið frá skotmarkinu, og svo að því í niðursveiflunni.
Góð æfing er að leggja kylfu á axlir, koma sér fyrir í golfstöðunni og hafa gripendann við vinstri öxl. Snúa baki og öxlum þannig að gripendinn vísi niður í aftursveiflunni.
Þetta video fer ennþá betur yfir þetta:
https://www.youtube.com/watch?v=N9BGdKbVj0c
Bestu kveðjur.
Ari Magg
27/03/2023
**Eitt það mikilvægasta í sveiflunni**
"Low Point"(lægsti punktur í sveiflunni)
Það er erfitt fyrir marga kylfinga að hafa lægsta punktinn stöðugt á sama stað. Það er samspil margra þátta sem á sér stað. Ég sé fyrst og fremst að jafnvægi sé ekki gott, þá kemur einnig inn greinin sem ég setti inn varðandi höggvinkil(attack angle). Þessir tveir hlutir spila saman.
"Low Point" gefur okkur tölu í lægsta punkt ferilsins í sveiflunni(sjá mynd og video).
Þetta er ekki einfalt, en skoðum myndbandið og myndina 😊
Lægsti punktur getur verið áður en við hittum boltann eða eftir.
Fyrir járnahögg:
Við viljum að lægsti punktur sveiflunnar sé eftir að við hittum boltann, þar sem við hittum grasið eða mottuna.
Fyrir Driver:
Þeir sem slá lengst eru oftast með lægsta punkt áður en við hittum boltann þ.e. pósitívan höggvinkil(+attack angle)
https://www.youtube.com/watch?v=XftXf4CyePA
23/03/2023
Brian Manzella er einn fremsti golfkennari heimsins og hef ég notið þeirra forréttinda að hafa haft hann mér við hlið síðustu árin. Fyrst var ég kylfingur hjá honum og í seinni tíð hefur hann aðstoðað mig við kennslu :)
http://www.brianmanzellagolf.com/certified-instructor-program.html
----
Meira um Brian
Í dag er hann #25 í USA.
https://www.golfdigest.com/story/the-50-best-teachers-in-america
http://www.brianmanzellagolf.com/brians-bio.html
22/03/2023
Ég vil sýna ykkur hvernig er auðveldlega hægt að gera æfingarnar heima. Þetta er tengt því sem er fyrir neðan(setti það í comment)
Takið eftir því að þumlar stefna alltaf upp :)
Shoulder Stability - Prone YTW Holds
Check out my page for links to articles and more training content: https://www.facebook.com/sportlandtrainingandfitness/Follow me on: Twitter: ...
21/03/2023
Ég fæ oft til mín kylfinga sem hafa ekki nógu mikinn liðleika í öxlum og baki. Þá getur reynst erfitt að setja kylfuna á réttan feril, og þá getur reynst erfitt að ná þeim árangri sem við viljum.
Ég sendi nemendur mjög oft heim með æfingar til þess að teygja á öxlum og baki.
Myndin sýnir muninn á því hvernig liðleiki í hægri öxl og baki getur haft áhrif á sveifluna og feril. Auðvitað erum við öll mismunandi og sumir geta þetta bara alls ekki og þá er unnið út frá því. En þetta er vert að skoða.
Í þessu myndbandi eru góðar æfingar til þess að vinna í þessum liðleika og fá styrk í axlir og bak. Það þarf ekki lóð eins og notuð eru í myndbandinu, heldur einfaldlega gera þessar hreyfingar sem eru sýndar.
Gangi ykkur vel og "happy golfing" 🙂
https://www.youtube.com/watch?v=gvu43xVKcqk
19/03/2023
Fyrir lengra komna**
En gott fyrir alla!
Sveifluferill(club path), og sveiflustefna(swing direction) er tvennt ólíkt.
Club path er mælt í tvívídd(2D) og sveiflustefna er mæld í þrívídd(3D)
Nú getur þetta orðið flókið fyrir okkur 🙂
Miðað við Driver.
Þau sem geta sveiflað upp á boltann (+attack angle) eru með negatívan (-sveifluferil) þar sem Trackman (og öll önnur tæki ættu að mæla eins) þá mælir TM í neðstu stöðu ferilsins.
Þá halda margir að sveiflan sé yfir boltann(out-to-in), en það er ekki rétt. Það er hægt að skoða (Swing direction) í Trackman, og þá er auðveldlega hægt að sjá í hvaða stefnu við erum að sveifla kylfunni v.s. feril kylfunnar.
Sveiflustefna er mæld c.a. frá hné í hné.
Fyrir alla sem eru komin það langt að geta stjórnað ferlinu með driver, þá skiptir stefnan meira máli heldur en ferillinn.
Þetta á auðvitað við járnin líka, en skoðum fyrst hvað driverinn gerir 🙂
Fræðsla frá Trackman:
https://blog.trackmangolf.com/swing-direction/
15/03/2023
Hér er mjög gott efni til þess að skilja sveifluferilinn betur :)
Use a Hula Hoop to Understand Swing Plane in Golf
Swing plane is often discussed and just as often misunderstood. Jack Nicklaus uses a hula hoop to demonstrate plane. Take a look at this and consider the spa...
12/03/2023
Kylfuferill (Club path)
Þetta er ferillinn, eða sú leið sem kylfan er á, þegar boltinn er hittur.
Mínus tala þýðir að ferillinn er “út-inn” (þ.e. kylfan er á leið til vinstri þegar boltinn er hittur). Plús tala þýðir að ferillinn er “inn-út” (þ.e. kylfan er á leið til hægri þegar boltinn er hittur). Ágætt viðmið er -3° til +3°
https://blog.trackmangolf.com/club-path/
fb.me
07/03/2023
Ég býð upp á einka og parakennslu hjá Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar. Ég notast við TrackMan hermi í greiningu á sveiflugöllum.
Ég hef sjálfur verið afrekskylfingur og í landsliðshóp unglinga á yngri árum.
Árið 2012 fluttist ég til Bandaríkjanna og hóf þar nám á golfstyrk og lauk því árið 2016 með B.Sc í Stærðfræði
Ég hóf nám í PGA skólanum í Danmörku og kláraði skólann á Íslandi sumarið 2021.
Í Bandaríkjunum var ég undir handleiðslu fremstu golfkennara heimsins sem ég hef notið góðs af síðustu 6 ár sem ég hef kennt golf.
Til þess að bóka tíma vinsamlegast hafið samband í síma 867-8411 eða í tölvupóst á [email protected]