Körfuknattleiksdeild Breiðabliks

Körfuknattleiksdeild Breiðabliks

Share

Körfuknattleiksdeild Breiðabliks

06/08/2026

Körfuknattleiksdeild Breiðabliks hefur samið við Adrian McIntyre um að leika með meistaraflokki félagsins á komandi tímabili.

Adrian er 190 cm, líkamlega sterkur bakvörður sem kemur til Breiðabliks frá University of San Diego, sem leikur í efstu deild bandaríska háskólaboltans (NCAA Division I).

Hann er fjölhæfur leikmaður sem getur leyst margar stöður á vellinum og hefur áhrif á leikinn á báðum endum hans. Hjá okkur verður Adrian fyrst og fremst í hlutverki leikstjórnanda.

Adrian vakti gríðarlega athygli tímabilið 2024/25 þegar hann varð stigahæsti leikmaður allra deilda NCAA-háskólaboltans með 27,9 stig að meðaltali í leik fyrir Westmont College, sem leikur í annarri deild. Auk þess skilaði hann 5,3 fráköstum, 3,9 stoðsendingum og 2,1 stolnum bolta að meðaltali í leik, ásamt því að skjóta með afar góðri nýtingu.

Frammistaða hans vakti verðskuldaða athygli og varð til þess að University of San Diego fékk hann til liðs við sig fyrir síðasta tímabil. Þar sýndi hann fram á fjölhæfni sína með því að taka að sér fjölbreytt hlutverk og leggja sitt af mörkum fyrir lið sitt í sterkri NCAA Division I deild.

Hrafn Kristjánsson, þjálfari meistaraflokks karla, er ánægður með nýjasta liðsmanninn:
„Frá fyrstu samskiptum fannst okkur Adrian vera rétti karakterinn fyrir Breiðablik. Hann er metnaðarfullur, vinnusamur og liðsheildin skiptir hann miklu máli. Við erum sannfærð um að hann verði frábær viðbót, bæði innan vallar og utan. Við hlökkum mikið til að fá hann í Kópavoginn og sjá hann í Smáranum.“

Körfuknattleiksdeild Breiðabliks býður Adrian hjartanlega velkominn í Smárann og hlakkar til að sjá hann leika með liðinu á komandi tímabili.

Hér fyrir neðan má finna myndband af Adrian með Westmont College

https://www.youtube.com/watch?v=P67iBaYi7aQ&t=14s

Photos from Körfuknattleiksdeild Breiðabliks's post 24/07/2026

Takk fyrir ykkar framlag, strákar!

Körfuknattleiksdeild Breiðabliks þakkar Loga Guðmundssyni, Alexander Jan Hrafnssyni, Marinó Pálmasyni og Sölva Ólasyni kærlega fyrir þeirra framlag í Smáranum.

Logi hefur hlotið skólastyrk og heldur til Hawai þar sem hann mun leika með háskólaliði í sterkri deild. Alexander gengur til liðs við Sindra sem leikur í Bónusdeild karla. Marinó snýr aftur til síns uppeldisfélags, Skallagríms, eftir tvö góð ár hjá Breiðabliki. Sölvi hefur ákveðið að spila með ÍA í 1. deild.

Það er sérstaklega ánægjulegt að þrír þeirra séu uppaldir Blikar úr öflugum yngri flokkum félagsins. Það er staðfesting á því öfluga uppeldisstarfi sem unnið hefur verið hjá Breiðabliki og við erum afar stolt af því að sjá unga leikmenn okkar vaxa, dafna og fá tækifæri á stærra sviði eða utan landsteinana. Það verður einnig spennandi að fylgjast með öðrum ungum og efnilegum leikmönnum okkar stíga inn og axla aukna ábyrgð í Smáranum næstu tímabil.

Við þökkum þeim öllum fyrir tímann í Breiðabliki, óskum þeim innilega góðs gengis í nýjum verkefnum og vonumst að sjá þá í Blikabúningnum síðar – við munum fylgjast stolt með ykkur. 💚

Photos from Körfuknattleiksdeild Breiðabliks's post 10/07/2026

Bríet Lilja og Hjörtfríður taka slaginn í Smáranum 💚

Við erum afar ánægð með að bjóða þær Bríeti Lilju Sigurðardóttur og Hjörtfríði Óðinsdóttur velkomnar til Breiðabliks fyrir komandi tímabil.

Hjörtfríður, sem er uppalin hjá Grindavík, kemur með góða reynslu úr 1. deildinni en Bríet Lilja hefur leikið í efstu deild. Þær munu taka slaginn með ungu og metnaðarfullu liði Breiðabliks í Smáranum á komandi tímabili.

Við hlökkum til að sjá þær í Smáranum

Með stelpunum er Hlín Sveinsdóttir, formaður kvennaráðs Körfuknattleiksdeildar Breiðabliks.

Áfram Breiðablik! 💚

09/07/2026

Þrjár Blikastelpur skrifa undir við félagið 💚

Körfuknattleiksdeild Breiðabliks hefur gengið frá samningum við þær Helgu Elvarsdóttur, Sigrúnu Jónu Helgadóttur og Evu Sliuzaite.

Það er ánægjulegt að sjá leikmenn úr yngri flokka starfi félagsins halda áfram vegferð sinni innan Breiðabliks. Við óskum þeim velfarnaðar og hlökkum til að fylgjast með þeim taka næstu skref í Smáranum.

Til hamingju með samningana og áfram Breiðablik! 💚

Photos from Körfuknattleiksdeild Breiðabliks's post 07/07/2026

Hrafn Kristjánsson framlengir við Breiðablik til næstu fjögurra ára 💚

Körfuknattleiksdeild Breiðabliks hefur framlengt samning sinn við Hrafn Kristjánsson til næstu fjögurra ára.

Hrafn mun áfram stýra meistaraflokki karla ásamt Mikael Mána Hrafnssyni. Samhliða því tekur hann við yfirþjálfun og utanumhaldi nýstofnaðs liðs Augnabliks í 2. deild, sem verður mikilvægur hlekkur í áframhaldandi uppbyggingu félagsins. Markmiðið er að skapa fleiri og betri tækifæri fyrir unga leikmenn og styrkja enn frekar leið þeirra úr yngri flokkum upp í meistaraflokk.

Jafnframt mun Hrafn, ásamt Mikael Mána og Ismael Herrero, halda áfram að samræma leikskipulag og þjálfun elstu yngri flokka og meistaraflokks samkvæmt þeirri hugmyndafræði sem félagið hefur markvisst byggt upp undanfarin ár.

Aðspurður segist Hrafn afar ánægður með samkomulagið og hlakka mikið til næstu fjögurra ára

„Ég er himinlifandi með að halda áfram þessari vegferð. Sú stefna sem við höfum markað síðustu þrjú ár er eitthvað sem ég er mjög stoltur af og hlakka til að þróa enn frekar með mínum samþjálfurum og öllu því frábæra fólki sem kemur að starfi félagsins. Markmiðið er að tefla fram tveimur sterkum og samkeppnishæfum meistaraflokksliðum sem veita okkar uppöldu leikmönnum raunveruleg tækifæri til að vaxa, dafna og taka næstu skref á sínum körfuboltaferli.“

Við erum afar ánægð með að Hrafn haldi áfram í Smáranum og hlökkum til að fylgjast með áframhaldandi uppbyggingu félagsins á komandi árum.

Áfram Breiðablik! 💚

Photos from Körfuknattleiksdeild Breiðabliks's post 06/07/2026

Tómas Kárason gengur til liðs við Breiðablik! 💚

Körfuknattleiksdeild Breiðabliks hefur samið við Tómas Kárason um þjálfun hjá félaginu á komandi tímabili.

Tómas mun stýra 7. flokki karla, vera aðstoðarþjálfari hjá 9.–10. flokki karla og sinna leikgreiningu fyrir meistaraflokk kvenna.

Við erum ánægð að fá Tómas til liðs við okkur. Metnaður og áhugi hans á þjálfun mun nýtast félaginu vel í áframhaldandi uppbyggingu.

Áfram Breiðablik! 💚

03/07/2026

Einar Örvar Gíslason framlengir í Smáranum! 💚

Körfuknattleiksdeild Breiðabliks hefur náð samkomulagi við Einar Örvar Gíslason um áframhaldandi samstarf og mun hann leika með meistaraflokki félagsins á næsta tímabili.

Einar var lykilleikmaður í 12. flokki og U-liði Breiðabliks á síðasta tímabili, samhliða því að æfa og leika með meistaraflokki. Hann á einnig leiki að baki með U18 ára landsliði Íslands.

Við hlökkum til að sjá Einar halda áfram að þróast og taka næstu skref í Smáranum.

Áfram Breiðablik! 💚

Photos from Körfuknattleiksdeild Breiðabliks's post 01/07/2026

Ismael Herrero Gonzalez framlengir samning sinn við Breiðablik! 💚

Körfuknattleiksdeild Breiðabliks hefur gengið frá samkomulagi við Ismael Herrero Gonzalez um framlengingu á samningi hans við félagið.

Á komandi tímabili verður Ismael áfram aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla, en tekur jafnframt að sér breytt og aukið hlutverk í yngri flokkum félagsins. Hann mun leiða þjálfun 11. og 12. flokks karla ásamt 8. flokki karla.

Með þessu hlutverki mun Ismael vinna markvisst að því að innleiða leik- og þjálfunarhugmyndafræði meistaraflokksins hjá elstu yngri flokkunum. Markmiðið er að skapa skýra leið fyrir efnilega leikmenn inn í meistaraflokksumhverfið og tryggja samfellda þróun innan félagsins.

Við erum afar ánægð með að Ismael hafi ákveðið að halda áfram í Smáranum og hlökkum til áframhaldandi samstarfs.

Áfram Breiðablik! 💚

29/06/2026

Eva Bryndís og Gerður Lind skrifa undir sína fyrstu samninga við Breiðablik! 💚

Körfuknattleiksdeild Breiðabliks hefur gengið frá samningum við þær Evu Bryndísi og Gerði Lind, sem báðar eru uppaldar Blikastelpur fæddar árið 2007.

Það er afar ánægjulegt að sjá unga leikmenn úr öflugu yngri flokka starfi félagsins taka stór skref og festa sig enn frekar í sessi hjá Breiðabliki. Við hlökkum til að fylgjast með áframhaldandi þróun þeirra í Smáranum

Innilega til hamingju, Eva Bryndís og Gerður Lind! 💚🤍

Photos from Körfuknattleiksdeild Breiðabliks's post 19/06/2026

Eysteinn Bjarni Ævarsson mætir í Smárann 💚

Körfuknattleiksdeild Breiðabliks og Eysteinn Bjarni Ævarsson hafa komist að samkomulagi um að Eysteinn leiki með meistaraflokki félagsins á næsta tímabili.

Eysteinn á farsælan feril að baki með Hetti, Keflavík, Stjörnunni og Álftanesi og kemur til Breiðabliks með mikla reynslu úr efstu tveimur deildum landsins. Á síðasta tímabili skilaði hann 10,6 stigum, 6,1 frákasti, 2,2 stoðsendingum og 1,5 stolnum bolta að meðaltali með toppliði Hattar.

Þetta verður jafnframt þriðja samstarf Eysteins og Hrafns Kristjánssonar, en þeir hafa áður unnið saman hjá Stjörnunni og Álftanesi.

„Eysteinn er leiðtogi og frábær liðsmaður sem mun styrkja okkur á báðum endum vallarins. Hann hefur mikla reynslu og getur miðlað henni til okkar ungu og efnilegu leikmanna,“ segir Hrafn Kristjánsson, þjálfari meistaraflokks.

Við bjóðum Eystein Bjarna hjartanlega velkominn í Breiðablik og hlökkum til að sjá hann í Smáranum 🏀

Áfram Breiðablik💚

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Kópavogur?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Category

Telephone

Address


Dalsmári 5
Kópavogur
200