02/06/2022
Torfærubíllinn Verktakinn er til sölu.
Helstu upplýsingar:
Mótor: LSX 427 með fullt af dóti.
Holley 102 mm throttle body. Holley hi-ram intake manifold. Cnc portuð hedd með Titanium intaksventlum (2.165 in) sodium filtum exhaust.
Solid roller lifters og roller rockers 1.8. og góður ás frá Comp Cam.
Dimond stimplar með rod pin og ring upgrade fyrir Nítro.
GM Bowtie LSX block 4.125 bore (4 in í stroke) https://www.summitracing.com/parts/nal-19417352
Holley Dominator vélartölva og loom.
NOS x8 direct nitrous kerfi. Jettar fyrir 250-350 hp skot.
Afgash*ta mæling á öllum 8 cyl, tveir wideband o2. Allt dataloggað í Holley.
8x spíssa water injection kerfi og AEM dæla.
Þrýstingur á nitrói, fuel pressure, line-pressure á skiptingu, hiti á skiptingu, og allt í kringum mótor dataloggað.
Hægt að setja upp allskyns varnir fyrir mótor. Low pressure á fuel, oil pressure eða annað sem menn vilja,
Bensín lagnir lagðar í ryðfríum rörum fram í vélarsal.
Álvatnskassi og tvær viftur. Kælikerfið á vél og skiptingu virkar flott.
Th400 skipting með full manual revers valveboddy. Vara skipting.
Bullet race converter frá ProTorque (með Mechanical diode) settur upp fyrir bílinn og 250 hp gas.
Ljónsstaðar millikassi.
Hraust sköft og krossar sem hafa alltaf verið til friðs.
Framhásing sésmíðuð fyrir torfæru. Tvöfaldir liðir út við hjól, “ofur” beygjur. Liðhúsin voru spennugreind í Inventor og þola mikil átök. Ytri öxlar eru 35 rílu super 60 öxlar úr ram 2013 og innri öxlar eru standard dana 60 öxlar 35 rílu. Drifið er 9 tommu álköggull frá Strange, og spool. 4.10 hlutföll.
Afturhásing er 14 bolta fullfloat. 6 gata deiling.
12" airshocks hringinn auk Fox bumpstop að aftan.
5x bigger digger dekk og 2x skóflur sem varadekk.
Bíllinn hefur einu sinni keppt í sandspyrnu og náði þar fínum tíma 4.2x sek.
Hann er sterkt byggður og hefur ekki brotið öxul eftir að skipt var um afturhásingu 2018
Aðalboginn í búrinu eru smíðaður úr 4 mm og þolir því grjót betur í veltum. Hann var viktaður á 35“ dekkjum og stálfelgum 1340 kg.
Eitthvað af varahlutum.
Óskum eftir tilboði frá þeim sem hafa raunverulega áhuga á að kaupa.
Frekari upplýsingar í PM.
09/08/2021
Nokkrar myndir frá keppninni í Hafnarfirði um síðustu helgi.
06/08/2021
Við keppum í Hafnarfirði á morgun. Bein útsending á motorsport.is
Þökkum Automatic ehf. kærlega fyrir stuðninginn.
18/07/2021
1 braut á Blönduósi.
Kristján Finnur í fyrstu þraut
21/06/2021
Automatic er aðal styrktaraðilinn okkar og viljum við hvetja alla til að kíkja til þeirra því þeir eru með gæða vörur á flottu verði og frábæra þjónustu.
01/09/2018
Nú er fyrsta keppnisári Verktakans á Íslandsmeistaramótinu í torfæru lokið. Mikill lærdómur og reynsla komin í bankann. Þrátt fyrir töluvert af bilunum og brasi sem fylgir því að byrja í þessu sporti erum við mjög sátt við árangur sumarssins. Þar stendur uppúr bikar fyrir 3. sætið á Akranesi. En nú er stefnan tekin á Bandaríkin og verður verktakinn settur í gám næstu helgi. Dagana 4-6 okt verður svo keppt í torfæru í Dyersburg Tennessee-USA. Undirbúningur fyrir ferðina er í fullum gangi og spennan að magnast.
30/07/2018
VIDEO! Akranes Day 1! Kristján F. Sæmundsson – Verktakinn
Third place in Unlimited Class! Akranes 2018! Day 1 Kristján Finnur Sæmundsson driving Verktakinn
28/07/2018
Verktakinn náði 3. sæti á Akranesi.
Verktakinn tók þátt í 4. og 5. umferð Íslandsmótsins sem haldin var í Akrafjalli 21. og 22. júlí.
Á laugardeginum gekk allt upp hjá okkur og náðum við 3. sæti sem er okkar lang besti árangur til þessa. Verktakinn endaði með 1630 stig einungis 20 stigum eða einni stiku frá fyrsta sæti. Ingó náði flottum sigri og óskum við honum til hamingju með árangurinn. Sunnudagurinn var þokkalegur en nokkur klaufamistök þvældust fyrir og enduðum við í 7. sæti.
Bílstjórinn vill þakka sínu flotta aðstoðarliði fyrir alla hjálpina og stuðningsaðilum fyrir stuðninginn. Kærar þakkir, þetta var frábær torfæruhelgi. Hér að neðan eru myndir frá helginni.
https://www.facebook.com/media/set/?set=a.519146071852977.1073741831.459020634532188&type=1&l=0e2500896c
Akranes 21 og 22. júlí- 3 sætið
28/07/2018
Akranes 21 og 22. júlí- 3 sætið
19/07/2018
Um næstu helgi (21 og 22 júlí) verður haldin torfærukeppni á Akranesi, í námunum við Akrafjall. Af því tilefni ætlar Verktakinn að gefa 2 stk helgarpassa á þessa flottu tveggja daga keppni. Þeir sem henda like á þennan póst komast í pott sem dregið verður úr á morgun föstudag kl 12.00. Viljum sjá sem flesta mæta á þessa keppni rétt fyrir utan Reykjavík. Frítt er fyrir börn.