01/04/2026
Skokkhópur Hauka - opin síða
Opin fésbókarsíða Skokkhóps Hauka. Æfingar eru á Ásvöllum mánudaga og miðvikudaga kl 17:30 og laugardaga kl 9:00. Aðalþjálfari er Hreiðar Júlíusson.
Allir eru velkomnir á æfingu til að prófa.
01/04/2026
26/12/2025
Gleðilega Hátíð.
Kirkjuhlaup Skokkhóps Hauka og Ástjarnarkirkju 2025
Hjartans þakkir til ykkar allra sem tóku þátt á einn eða annan hátt, fyrir að gera Kirkjuhlaupið að veruleika, ásamt hlaupafélögum og gestum okkar.
Takk fyrir veitingar á hlaðborðið sem svignaði undan kræsingum. 🥰
Ástjarnarkirkju þökkum við fyrir messuna og afnot af kirkjunni. 🥰
Þátttaka var 110manns
Hátíðarkveðja ♥️
Hér er Facebook grúppa fyrir nýliðahópinn: https://www.facebook.com/share/g/1AFwtety8k/?mibextid=wwXIfr
26/12/2023
Skemmtilegar myndir sem Guðni tók í dag í Kirkjuhlaupinu
02/01/2023
Skokkhópur Hauka fór 108 ferðir í Himnastiganum í dag. Vel gert í snjónum ⛄️
Æfingar Skokkhópsins eru á mánudögum og miðvikudögum kl 17:30 og laugardögum 09:00 (10:00 um háveturinn). Oftast er lagt af stað frá Ásvöllum, en mánudagsæfingar frá Hvaleyrarvatni yfir sumarið.
Allir velkomnir að kíkja á æfingu með okkur, hægt að hafa samband í Messenger eða tölvupósti [email protected] til að fá nánari upplýsingar.
01/09/2021
Skokkhópur Hauka mun ekki halda nýliðanámskeið í haust. Væntenlega verður haldið nýliðanámskeið næsta vor, haldið verður vel utan um hópinn með það að markmiði að taka þátt í Reykjavíkurmaraþoni 2022.
Skokkhópurinn stefnir hins vegar á að halda opna hlaupaæfingu nú í september, þetta verður nánar augýst þegar nær dregur.
Nýliðanámskeiðið byrjar í dag kl. 17:30 á Ásvöllum. Skráning á staðnum eða með því að senda nafn og kennistölu á [email protected]. Hlökkum til að taka á móti ykkur!
22/03/2020
Skokkhópur Hauka mun halda nýliðanámskeið í vor. Námskeiðið verður væntanlega 10 vikur og verðinu stillt í hóf eða 10.000. Innifalið verður aðstoð frá nýliðaþjálfara, frábær félagsskapur og aðgangur í Skokkhóp Hauka til haustsins.
Nánari dagsetning kemur um leið og ástandið skýrist.
22/03/2020
Kæru hlauparar.
Hvítasunnuhlaupið verður að öllu óbreyttu annan í Hvítasunnu sem í ár er 1. júní.
VIð höfum ekki opnað fyrir skráningu, en munum gera það um leið og ástandið skýrist. Skráning verður að venju á hlaup.is.
Hlaupakveðjur og knús úr Hafnarfirðinum.
Click here to claim your Sponsored Listing.
Location
Category
Contact the business
Website
Address
Kópavogur