12/08/2025
Nú er tækifærið, við tökum vel á móti þér👊
Skráðu þig í dag! Sporthúsið - Heilsurækt fyrir alla
Contact information, map and directions, contact form, opening hours, services, ratings, photos, videos and announcements from Boot Camp Iceland, Gym/Physical Fitness Center, Dalsmára 9-11, Kópavogur.
12/08/2025
Nú er tækifærið, við tökum vel á móti þér👊
Skráðu þig í dag! Sporthúsið - Heilsurækt fyrir alla
💥💥💥ÞJÁLFARANÁMSKEIÐ BOOT CAMP
-17. & 18. janúar
Vilt þú vera partur af frábæru samfélagi sem er fyrsta sinnar
tegundar á Íslandi?
Sporthúsið í Kópavogi leitar af áhugasömum einstaklingum
í stöðu þjálfara Boot Camp.
Leitað er að metnaðarfullum einstaklingum sem hafa áhuga á því að vinna innan samfélags heilsusækins fólks og hafa mikla hæfni í mannlegum samskiptum.
Eftirsóknarvert væri að viðkomandi hefði reynslu af þjálfun en ekki nauðsynlegt.
Þjálfarar á námskeiðinu eru Erlendur Jóhann Guðmundsson og Robert Traustason
Valið verður úr umsóknum og eftir það boðað á þjálfaranámskeið.
Boot Camp Iceland Gym/Physical fitness centre
24/12/2024
Kæra samfélag. Takk fyrir frábærar stundir á árinu sem er að líða, hlökkum til komandi æfinga og verkefna sem framundan eru.
Takk fyrir okkur ❤️
Jólakveðja Ómar & Elli 🎅🎅
18/12/2024
Jóla/áramótadagskráin 👇👇👇
Hendið á okkur skilaboðum eða spyrjið þegar við hittumst næst ef það eru einhverjar spurningar👊
Kv. Þjálfarar
15/12/2024
🎄 JólaÆfing Boot Camp Iceland og CrossFit Sport
Við vorum svo heppinn að Kertasníkir kíkti við og gaf börnunum íþróttanammi í lokin á flottri æfingu 🍎🧃
07/12/2024
Jólapeysu dagurinn var haldin með krafti í morgun. Jóladressin voru falleg þetta árið og vöktu sum dressin mikla lukku. Eftir æfingu var boðið upp á drykki til að kæla mannskapinn niður.
Takk fyrir ykkur snillingar 💪🏽
- Þjálfarar.
18/09/2024
Bootcamp og framtíðin
Eins og flestir í Bootcamp fjölskyldunni vita eru breytingar á þjálfaramálum framundan, þar sem núverandi þjálfarar eru flestir að breyta um vettvang.
Mig langar að óska þeim velfarnaðar í nýjum verkefnum og þakka þeim kærlega fyrir allt sem þau hafa gert fyrir Bootcamp samfélagið okkar.
Það er okkur mikið gleðiefni að tilkynna ykkur að við höfum ráðið tvo reynslubolta í þjálfun til þess að taka við keflinu.
Það eru þeir Erlendur Jóhann Guðmundsson og Ómar Freyr Sævarsson.
Til þess að bæta þjónustuna ennþá frekar ætlum við svo að halda þjálfaranámskeið fyrir Bootcamp, sem mun standa öllum til boða að sækja um þátttöku í. Það verður enginn annar en Róbert Traustason sem mun hafa yfirumsjón með þjálfaranámskeiðinu, með aðstoð reynslubolta úr Bootcamp samfélaginu.
Við munum auglýsa þjálfaranámskeiðið fljótlega og hvet ég alla áhugasama til þess að taka þátt.
Nánar um nýju liðsmennina okkar:
Erlendur Jóhann Guðmundsson – Elli er með fjölbreyttan bakgrunn úr íþróttum og hefur æft og keppt í fjölmörgum greinum. Hann býr yfir gríðarlegri reynslu af þjálfun einstaklinga, hópa og afreksfólks. Hann hefur áður þjálfað í Reebok Fitness, World Class, Toppþjálfun, Yama Heilsurækt og er núverandi styrktar- og þrekþjálfari Fjölnis.
Menntun og réttindi:
ÍAK Einkaþjálfari
Accredited Rehab Trainer
Master Rehab Trainer
Maxwell level 1 ketilbjölluþjálfari
Dipómanám í styrk og þrekþjálfun í HR
CrossFit Level 1 Trainer
Muscle Camp seminar með Ben Pakulski
Glute Lab & Muscle and strength seminar með Bret Contreros og Brad Schoenfeld
Sérhæfð vöðvauppbygging og fitutap með Brad Schoefeld
1 stigs þjálfunarréttind Lyftingasambands Íslands
Námskeið í ólympískum lyftingum hjá Harvey Newton og Gísla Kristjánssyni
Námskeið í gerð æfingakerfa hjá Helga Jónasi Guðfinnssyni
Ómar Freyr Sævarsson kemur úr heimi frjálsra íþrótta og hefur mikla reynslu af þjálfun á þeim vettvangi. Ómar var mikill afreksmaðurí 100 metra hlaupi. Aðeins 13 ára gamall var Ómar valinn íþróttamaður Dalvíkur.
Menntun og réttindi:
Íþrótta- og styrktarþjálfun – Íþróttalýðháskólinn í Söndeborg
ÍAK Einkaþjálfari
Einkaþjálfaraskóli World Class
Við viljum bjóða Ella og Ómar innilega velkomna í Bootcamp fjölskylduna og vonum að þið takið vel á móti þeim.
Þið getið samt alveg treyst því að þeir eru ekki að fara að gefa ykkur mikinn afslátt á æfingum næstu vikur, mánuði og ár.
| Monday | 06:00 - 21:00 |
| Tuesday | 06:00 - 22:00 |
| Wednesday | 06:00 - 21:00 |
| Thursday | 06:00 - 22:00 |
| Friday | 06:00 - 20:00 |
| Saturday | 08:00 - 12:00 |
| Sunday | 09:00 - 15:00 |