15/08/2017
Í kvöld voru kaflaskipti í sögu KF Adriano þegar Brynjar Freyr Haldórsson, okkar öflugi miðjumaður, kvaddi liðið í bili þar sem honum bíða nýjar áskoranir í Barcelona.
Brynjar hefur spilað 89 leiki með KF Adriano, skorað í þeim 5 mörk, fengið 7 gul spjöld og rotast einu sinni.
Í tilefni seinasta leiks Brynjars var frítt á völlinn í gær i boði Arctia Finance, fyrrum vinnuveitanda Brynjars og var frábært að sjá hversu margir lögðu ferð sína í Breiðholtið til að kveðja hann og styðja Adriano í leiðinni. Að leik loknum var skálað honum til heiðurs.
Þessi kraftmikli varnartengiliður hefur lengi verið í uppáhaldi á meðal stuðningsmanna KF Adriano og mun hans vera sárt saknað.
Góða ferð Brilli og gangi þér vel í Barcelona!
14/06/2017
Stórtíðindi áttu sér stað í leik KF Adriano og FC Keppnis fyrir helgi þegar Sverrir Falur Björnsson varð fyrsti leikmaður Adriano til að rjúfa 100 leikja múrinn.
Þetta er að sjálfsögðu frábært afrek og var hann hylltur af liðsfélögum sínum sem veittu honum einn Tuborg Classic í tilefni áfangans, en það er einmitt einn af uppáhalds bjórunum hans.
Við óskum honum að sjálfsögðu til hamingju með þetta og ljóst er að nafn Sverris mun skipa stóran sess þegar saga KF Adriano verður rituð.
23/04/2017
Stór dagur í sögu félagsins. Fyrsti leikur liðsins í keppni á vegum KSÍ, en við keppum undir merkjum Gnúpverja og mætum KFR í Bikarkeppninni. Leikurinn var að hefjast núna klukkan 17:00 í Fagralundi.
24/08/2016
Dagsverkið búið hjá Ragga, kominn með þrennu. Staðan eftir 50 mínútur gegn Hönd Guðs er 4-0.
09/08/2016
Eftir góða byrjun KF Adriano manna í deildinni fór að halla smá undan fæti í síðustu tveimur umferðum. Fyrst mættum við sterku liði Landsliðsins þar sem þeir virtust frá byrjun ætla að slátra okkar mönnum en gegn gangi leiksins settum við fyrsta markið.
Eftir það gjörbreyttist leikurinn og stjórnuðu okkar menn leiknum fram að hálfleik. Í seinni hálfleik voru Landsliðs strákar töluvert meira með boltann án þess þó að skapa sér almennileg færi og Adriano spiluðu skynsaman og góðan fótbolta. Það var því sem blaut tuska í andlitið þegar Landsliðið jafnaði með undramarki af 30 metrunum .. Bæði lið sóttu hart restina af leiknum og uppskáru Adriano menn mark sem ranglega var dæmt af sökum rangstæðu.
Í uppbótartíma fengu svo andstæðingarnir mjög ódýra vítaspyrnu og skoruðu úr henni, svekkjandi tap því staðreynd það kvöldið.
Fyrr í kvöld mættum við síðan strákunum í Keppnis í fjórðu umferð og vill undirritaður litið um þann leik segja, menn voru alls ekki á tánum og leikar enduðu 1-0 fyrir FC Keppnis og áttum við lítið skilið úr þeim leik . Mark Adriano á móti Landsliðinu skoraði Hákon Guttormur
En svona til þess að hleypa ekki of miklum drunga í líf ykkar stuðningsmanna þessa dagana að þá eru Adriano menn sem sjaldan eru þekktir fyrir bikarævintýri komnir í undanúrslit bikarsins eftir 1-0 sigur gegn Fighting Irish í síðustu viku .
Mark Adriano í þeim leik skoraði Böddinn okkar
20/07/2016
Eftir hálf dapurt undirbúnings tímabil fór utandeildin loks í gang eftir EM þar sem kjarni Adriano manna spiluðu stórt hlutverk í Frakklandi . Fyrsti leikur tímabilsins var gegn ungu liði Fighting Irish sem hafa vaxið gífurlega frá fyrsta ári sinu í deildinni í fyrra .
Okkar menn byrjuðu leikinn af krafti og sóttu mikið til að byrja með . Sá sóknarþungi skilaði okkur flottu aukaspyrnumarki frá Hauki eftir 20 mínútna leik . Jafnræði myndaðist með liðunum þegar á leið og Fighting Irish gerðu sig líklega á timabili en það dugði ekki til og 1-0 sigur varð raunin . 3 stig í hús og hreint lak sterk byrjun fyrir okkar menn .
Maður leiksins var okkar trausti markmaður Arnar Kári
Viku seinna mættum við Áreitni í annari umferð og strax frá byrjun sást hvort liðið ætlaði sér sigurinn . Adriano komst yfir með marki frá fyrirliðanum Geir eftir fallegt spil snemma í leiknum. Fyrir leikslok höfðu okkar menn síðan bætt við þremur mörkum en þau skoruðu , Haukur(fyrir aftan miðju) , Daan og Kristján. Lokatölur 4-0 og fullt hús stiga og hreint lak staðreynd eftir fyrstu tvo leiki tímabilsins .
Maður leiksins var fyrirliðinn tignarlegi Geir Eggerts
04/05/2016
Það voru svekktir stuðningsmenn sem þurftu frá að víkja sökum skorts á bílastæðum á Hlíðarenda í kvöld þegar Adriano drengir spiluðu annan æfingaleik sinn á þessu undirbúningstímabili. Mótherjar okkar í kvöld KFC Reynir höfðu styrkt sig fyrir komandi tímabil með nokkrum klassa leikmönnum og ætla sér augljóslega mikið í sumar.
Það voru þó Adriano drengir sem mættu ákveðnari í þennan leik og stjórnuðu spilinu fyrsta korterið og sköpuðu sér nokkur ágætis færi án uppskeru.
Leikurinn jafnaðist þegar nær dróg hálfleik og nýttu KFC drengir skyndisóknir sínar og leiddu 2-0 í hálfleik.
Reynismenn komu sér síðan í 3-0 snemma í seinni hálfleik og hálfgert andleysi var yfir Adriano mönnum, lítið um spil og mótherjarnir gengu á lagið. En comeback liðið Adriano hafði ekki gefist upp enn og jöfnuðu í 3-3 með mörkum frá Daan,Hlyn Magnús/Gústa og Ragga.
Síðustu mínúturnar voru okkar menn líklegri til að skora og voru komnir frekar hátt á völlinn sem skilaði sér að endingu með marki úr enn einni skyndisókninni frá KFC Reyni.
4-3 tap niðurstaðan í kvöld en margir ljósir punktar í leik Adriano manna sem teknir verða með í komandi sumar.
Næstu daga ætlum við svo að koma til móts við beiðnir stuðningsmanna og henda inn kynningu á hverjum leikmanni fyrir sig.
13/04/2016
Undirbúningstímabil KF Adriano er farið á fullt þessa dagana og hafa menn verið duglegir að æfa í vetur enda markmiðin háleit eins og ávallt fyrir komandi tímabil.
Þriðjudaginn 12.apríl var síðan fyrsti æfingaleikur tímabilsins spilaður á móti góðvinum okkar í Skell og Helga.
Adriano menn mættu einbeittir í upphitun en urðu ögn skelfdir þegar þeir sáu Eyþór Helga nokkurn Birgisson hita upp með andstæðingunum.
Greina mátti í fyrri hálfleik okkar manna að menn báru full mikla virðingu gagnvart þessum fyrrum úrvalsdeildarmanni og fóru Skellur inn í hálfleikinn með verðskuldaða 2-0 forystu.
Eftir hárblásara frá þjálfaranum í hálfleik ákváðu Adriano strákar að hætta þessari vitleysu og mæta að fullu til leiks í seinni.
Þessi ákveðni skilaði sér og tóku þeir gulklæddu gjörsamlega yfir leikinn og unnu hann á endanum 4-2 með mörkum frá Hlynur Einar(bambi) Ragnar og Böðvar
Ánægjuleg úrslit í fyrsta leik þrátt fyrir smá hiksta í byrjun, enda menn að slípa sig saman eftir langan vetur.
En eins og vitur maður sagði þá er þetta ekki búið fyrr en feita konan syngur og hún var alls ekki búin að þenja raddböndin í hálfleik.
13/01/2016
Æfingar hjá KF Adriano eru hafnar og fara þær að sjálfsögðu fram við bestu aðstæður landsins í Fífunni. Stefnan er sett á titil í ár og dugar því ekkert annað en það besta.
31/08/2015
Afmælisbarnið með sigurmark í risastórum 1-0 sigri
15/05/2015
Heyrst hefur...
..að Helgi Brynjarsson sé farinn í verkfall. Hann muni ekki spila með KF Skell nema þeir bjóði honum hærri laun en þau sem KF Adriano hafi nú boðið honum.
...að framkvæmdastjóri KF Adriano sé farinn til New York að ræða við hugsanlegan arftaka Vilhjálms Jónssonar sem þjálfara félagsins. Stjórnin ku vera mjög óánægð með iðjuleysi Villa í störfum sínum.
..að Hlynur Þorsteinsson sé líka farinn í verkfall og muni ekki mæta fyrr en hann fær greiðslu fyrir hvern spilaðan leik. Einar formaður KF Adriano segist ekki ætla að semja við "hryðjuverkamenn sem ætla sér að vekja verðbólgudrauginn" eins og hann sagði sjálfur.
...að lykilmaður í vörn KF Adriano hafi lent í veseni á ónefndum bar og handleggsbrotnað. Stjórnin mun hinsvegar ekki refsa honum fyrir agaleysið og hvetur aðra leikmenn til að taka sömu áhættur og umræddur leikmaður.