Keflavík, Íþrótta og Ungmennafélag

Keflavík, Íþrótta og Ungmennafélag

Share

Keflavík er fyrirmyndarfélag ÍSÍ

Innan Keflavíkur eru 9 deildir starfræknar þar sem fjölbreyttar íþróttir eru í boði

24/06/2026

Sundráð ÍRB leitar að þjálfara fyrir næsta sundtímabil fyrir yngri hópa félagsins!
Erum við að leita að þér? 😀

Photos from Sundráð ÍRB's post 22/06/2026
15/06/2026
10/06/2026

Það er með miklum trega sem Keflavík kveður Þorstein Ólafsson, fyrrum markvörð félagsins, sem fallinn er frá.

Þorsteinn stóð vaktina í marki Keflavíkur um árabil og var mikilvægur hluti af einu sterkasta tímabili í sögu félagsins. Hann var lykilmaður í gullaldarliði Keflavíkur sem vann Íslandsmeistaratitilinn þrisvar á fimm ára tímabili, 1969-73.

Á ferli sínum lék Þorsteinn m.a. með IFK Gautaborg í Svíþjóð, og var ávallt öflugur fulltrúi Keflavíkur og íslenskrar knattspyrnu. Hann á að baki 16 landsleiki fyrir Íslands hönd.

Keflavík þakkar Þorsteini fyrir ómetanlegt framlag til félagsins í gegnum árin. Minning hans mun lifa áfram í sögu Keflavíkur og hjá öllum þeim sem fengu að kynnast honum.

Aðstandendum og vinum sendum við okkar dýpstu samúðarkveðjur 🔵⚪️

09/06/2026

Vertu velkominn til okkar í Keflavík 💙

Leifur Steinn Àrnason kemur til Keflavíkur!

Barna og unglingaráð körfuknattleiksdeildar Keflavíkur hefur ráðið Leif Stein Àrnason til starfa í þjálfun fyrir veturinn 2026/2027.

Leifur mun þjálfa nokkra flokka hjá okkur í vetur:
7.-8. bekk karla
9.-10. bekk kvenna
11. flokk / 12. flokk / b-lið karla (Meira um það verkefni síðar)

"Við erum gríðarlega spennt fyrir því að fá Leif til starfa hjá okkur. Það er okkur mikill heiður að Leifur, sem hefur víðtæka reynslu að þjálfun vilji koma til Keflavíkur og þjálfa hjá okkur. Hann er mjög metnaðarfullur þjálfari. Okkur hlakkar til að vinna með honum í vetur." Sagði Garðar Örn ný kjörinn formaður BUR.

Tilkynnt verður um frekari þjálfara ráðningar fyrir næsta vetur á næstu dögum.

Áfram Keflavík

Yfirþjálfari Rafíþróttadeild Keflavíkur | Rafíþróttadeild Keflavíkur 09/06/2026

Við leitum af yfirþjálfara Rafíþróttadeildar Keflavíkur - skemmtilegt og spennandi starf í boði

Yfirþjálfari Rafíþróttadeild Keflavíkur | Rafíþróttadeild Keflavíkur Keflavík, íþrótta- og ungmennafélag, leitar að öflugum og metnaðarfullum yfirþjálfara til að leiða rafíþróttadeild félagsins. Rafíþróttir eru ört vaxandi íþróttagrein og hjá Keflavík bjóðum við upp á metnaðarfullt og faglegt starf þar sem áhersla er lögð á jákvæt...

Photos from Keflavík Karfa's post 05/06/2026

Við erum endalaust stolt af okkar iðkendum 💙

01/06/2026

Við stöndum með Ingvari og fjölskyldu💙

Keflvíkingar allir standa heilshugar við bakið á Ingvari Jónssyni og fjölskyldu í þeirri erfiðu baráttu sem þau heyja 💙

Fótboltafjölskyldan á Íslandi er samheldin og viljum við sýna stuðning okkar í verki. Fjölskylda Ingvars stendur okkur nærri en börn Ingvars æfa hjá félaginu og þá er Ingvar einnig mágur Haraldar Guðmundssonar, þjálfara meistaraflokks karla.

Við hvetjum alla sem geta til að leggja sitt af mörkum og bendum á styrktarreikning fyrir Ingvar.

Reiknisnr. 0357-22-8868
Kt. 420787-1469

Það þarf fólk eins þig 💙

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Keflavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Category

Telephone

Address


Sunnubraut 34
Keflavík
230