21/09/2026
5.flokkur kvenna A-lið RKVN Íslandsmeistarar!
Stelpurnar í 5.flokki kvenna hafa staðið sig frábærlega í sumar. Þær sigruðu alla 14 leikina sína í A-riðli Íslandsmótsins. Í undanúrslitum unnu þær Fylki 6-1 og mættu svo Breiðablik í úrslitaleiknum í gær. Leikurinn endaði 3-1 fyrir RKVN og Íslandsmeistaratitillinn tryggður! Stelpurnar hafa sannarlega sýnt mikinn dugnað og vinnusemi í sumar.