02/06/2026
Æfingarennsli fyrir úrtöku, með dómara, fer fram fimmtudaginn 4.júní og byrjar klukkan.18.
Rennslið er ætlað þeim sem stefna á úrtöku fyrir Mána í barna-, unglinga- og ungmennaflokkum.
Lárus Sindri sér um að halda utan um dagskrá og er skráning í athugasemdum undir fréttinni hér fyrir neðan þar sem skilja þarf eftir nafn knapa og hests ásamt flokki.
Æfingarennsli fyrir úrtöku, með dómara, fer fram fimmtudaginn 4.júní og byrjar klukkan.18.
Rennslið er ætlað þeim sem stefna á úrtöku fyrir Mána í barna-, unglinga- og ungmennaflokkum.
Lárus Sindri sér um að halda utan um dagskrá og er skráning í athugasemdum hér fyrir neðan þar sem skilja þarf eftir nafn knapa og hests ásamt flokki sem keppt er í.
01/06/2026
Það er ekki tími hjá Bergeyju í dag
25/05/2026
ATH ATH !!
Það er tími hjá Bergeyju í kvöld 🐴
19/05/2026
Að gefnu tilefni vill stjórn hestamannafélagsins Mána biðla til ökumanna vélknúinna ökutækja, bifhjóla, fjórhjóla og buggybíla að aka ekki á reiðvegum hestamanna.
Slík háttsemi getur valdið mjög alvarlegum slysum þar sem útreiðafólkið okkar er á öllum aldri, með mismikinn kjark og með mismikla reynslu, börn og fullorðnir ásamt því að hestar eru oft hræddir við slík ökutæki.
Virðing og tillitsemi kosta ekkert. Það vill enginn verða valdur að slysi.
Reiðvegir eru mannvirki sem hestamannafélagið hefur lagt heilmikið fé og vinnu í til lagningar og viðhalds. Því er mjög sárt að sjá vegina tætta upp af ökutækjum sem eiga ekkert erindi með að keyra þar um.
Virðingarfyllst
Stjórn hestamannafélagsins Mána
11/05/2026
Tíminn hjá Bergeyju verður fimmtudaginn 14.maí, byrjar kl.10.
Pollar mæta kl.9.30🐴
04/05/2026
Tíminn hjá Bergeyju fellur niður í dag en næsti tími verður miðvikudaginn 13.maí í stað mánudagsins 11.maí.
27/04/2026
Æfingar dagsins falla niður í dag 27.04
24/04/2026
Við minnum á sýninguna Æskan og Hesturinn sunnudaginn 26.apríl í reiðhöllinni hjá Sörla í Hafnarfirði. Sýningin hefst kl.14 og er frítt inn meðan húsrúm leyfir.
19/04/2026
ATH!
Barnaflokks tímarnir á morgun þeas kl 18:00 og 18:30 fara í æfingu fyrir æskuna og hestinn.