28/05/2026
Sumarið heilsar!
Mánudaginn 01. júní tekur við sumaropnun. Þar með verður opið alla daga í 11.0 klukkustundir milli kl. 10:00 - 21:00. Það eru liðlega 1.000 klukkustundir á sumartímabilinu svo gestir þurfa ekki að örvænta! Að þessu sinni miðast sumaropnun við sumarmánuðina 3, frá og með 01. júní til og með 31. ágúst. Þrifavika að sumri verður þannig í fyrstu viku september.
Undantekning frá reglunni er ein, þ.e. annars konar opnun: Á þjóðhátíðardaginn 17. júní verður opið milli kl. 10:00 - 14:00. Eru íbúar Þingeyjarsveitar hvattir til þátttöku í hátíðarhöldunum hvar við fögnum afmæli lýðveldisins og heiðrum minningu Jóns Sigurðssonar. Er vert að geta þess að hátíðarhöldin verða í Mývatnssveit þetta árið, við Skjólbrekku nánar tiltekið.
Verið öll hjartanlega velkomin til laugar og ræktar sumarið 2026!
17/05/2026
Skyndihjálp og þrifavika
Sundprófi og skyndihjálp starfsmanna íþróttamiðstöðvar/sundlaugar er lokið en ásamt starfsmönnum ÍML taka starfsmenn sundlaugarinnar á Grenivík og starfsmenn ÍMS í Mývatnssveit þátt í námskeiðinu. Þeir fyrrnefndu aukinheldur í sundprófinu.
Líkt og verið hefur til fjölda ára er þrifavika sundlaugarsvæðis og húsnæðis íþróttamiðstöðvar 4ðu vikuna í maí. Nú er að þeim tímamótum komið og sama hvað fólki kann að finnast um lokunina kemur hún öllum vel; það er óneitanlega ánægjulegri tilfinning að geta með fullvissu baðað sig í hreinni laug og pottum, gengið um ganga og klefa meðvitaður um hið sama. Svo því sé til haga haldið er framangreint markmið alla daga ársins en 2var á ári er ráðist í meiriháttar þrif sem, ekki síst á sundlauginni.
Sum sé, næstu dagar eru þrifadagar er mynda þrifaviku og eins hratt og tíminn virðist fljúga líður hún hratt og handan næstu helgar er allt sem fyrr, bara heldur hreinna.
10/05/2026
Ágætu gestir íþróttamiðstöðvar
Fimmtudagurinn 14. maí er síðasti opnunardagur fyrir þrifaviku 18.-22. maí. Fimmtudagur er uppstigningardagur og er opið kl. 12:00-16:00. Föstudaginn 15. er lokað vegna sundprófs og skyndihjálparnámskeiðs starfsmanna og laugardaginn 16. eru skólaslit Framhaldsskólans.
Staðan á sundlauginni við lok þrifaviku verður metin hvort opið verður laugardaginn 23. en annars miðast enduropnun við mánudaginn 25. og verður opið samkvæmt vetraropnun til mánaðamóta maí-júní.
Frá og með 01. júní og verður opið alla daga vikunnar til og með sunnudaginn 16. ágúst er næsta þrifavika tekur við. 11 vikur með 11 tíma opnun með einni undantekningu, 17. júní - þjóðhátíðardagur lýðveldisins, er opið kl. 12:00-16:00.
-forstöðumaður
30/04/2026
Fyrsti maí
Íþróttamiðstöðin verður opin á degi verkalýðsins 1. maí milli kl. 12:00 og 16:00. Sama opnun á laugardag annan maí.
20/04/2026
Sumarið heilsar!
Sjálfsagt á eftir að ganga á ýmsu í veðrinu næstu vikurnar, það er gömul saga og ný, en alltént mun íslensk þjóð fagna sumri næstkomandi fimmtudag, á sumardaginn fyrsta þann 23. apríl.
Í tilefni sumarfögnuðar er gestum íþróttamiðstöðvarinnar á Laugum boðinn aðgangur endurgjaldslaust þann dag! Hlökkum til að sjá ykkur sem flest, kveðjum vetur og heilsum sumri með tilheyrandi gleði og gáska - velkomin!
Rétt er að geta þess að opnun á sumardaginn fyrsta er milli kl. 12:00-16:00.
06/04/2026
Vakin er athygli á eftirfarandi:
Breyting á opnuntartíma íþróttamiðstöðvar þær vikur sem eftir eru vetrar þannig:
Mán.-fim. kl. 07:30-09:30 / 15:00-21:30, þ.e. klukkustund fyrr en verið hefur.
Fös. kl. 07:30-09:30 / 13:00-19:00, þ.e. 2 klukkustundum fyrr en verið hefur.
Vísað er til samþykktar sveitarstjórnar hér að lútandi, sbr.:
Á 76. fundi sveitarstjórnar Þingeyjarsveitar sem haldinn var 25. mars var eftirfarandi bókað og samþykkt:
2603061 - Ungmennaráð - opnunartími íþróttahúss
Á 2. fundi ungmennaráðs Þingeyjarsveitar var eftirfarandi samþykkt undir lið 6.a. - Önnur mál:
"Nemendur Þingeyjarskóla óska eftir því að opnunartími íþróttahúss, sundlaugar
og ræktar á Laugum verði breytt í samræmi við komu skólabíla úr Þingeyjarskóla
á virkum dögum og einnig að um helgar verði opið lengur og sundlaugin opin
lengur fram á kvöldið.
Bókun fundar: Ungmennaráð styður þessar óskir. Samþykkt.
Sveitarstjórn þakkar ábendingu ungmennaráðs og samþykkir lengda opnun sundlaugar á Laugum á virkum dögum út þetta skólaár, í samræmi við framlagða kostnaðaráætlun. Þessi lenging á opnunartíma verði endurskoðuð fyrir næsta skólaár m.t.t. nýtingar.
27/03/2026
Opnun íþróttamiðstöðvar um páska:
Miðvikudagur 01. apríl - kl. 07:30-09:30/16:00-22:00
Skírdagur, 02. apríl - kl. 12:00-16:00
Föstudagurinn langi, 03. apríl - kl. 12:00-16:00
Laugardagurinn 04. apríl - kl. 12:00-16:00
Páskadagur, 05. apríl - LOKAÐ
2. í páskum, 06. apríl - kl. 12:00-16:00
Þriðjudagur 07. apríl - kl. 07:30-09:30/16:00-22:00
Verið hjartanlega velkomin - gleðilega páska!
01/01/2026
Gleðilegt ár með þökk fyrir hið liðna!
Nú árið er liðið í aldanna skaut og aldrei það kemur til baka segir í upphafsorðum ljóðs Valdimars Briem og er hverju orði sannara. 2025 hefur kvatt, 2026 gengið í garð með sína 365 daga og vægt áætlað er íþróttamiðstöðin opin 80% þeirra daga eða hátt í 300 daga. Gestir okkar eru þannig velkomnir bróðurpart ársins og sem fyrr munum við eftir sem áður einsetja okkur að taka vel á móti hverjum þeim er til okkar leitar. Þannig hefur það verið og markmiðið hið sama.
Áramót eru merkileg að því leyti að við horfum fremur um öxl á þeim tímamótum en aðra daga þótt í sjálfu sér breytist fátt ef nokkuð annað en að eftir 20 kemur 26 í stað 25. Hvað sem öðru líður, verið öll hjartanlega velkomin í íþróttamiðstöðina á Laugum árið 2026 og njótið í hvívetna þess sem miðstöðin hefur upp á að bjóða.
Sjáumst glöð og reif á nýju ári!
-Starfsfólk Íþróttamiðstöðvarinnar á Laugum
23/12/2025
Slæm veðurspá - lokað á aðfangadag
Í ljósi þess að Veðurstofan gerir ráð fyrir slæmu veðri á aðfangadag verður íþróttamiðstöðin lokuð. Á vef stofunnar segir:
Sunnan 18-28 m/s, hvassast vestan til á svæðinu, vindhviður geta farið yfir 40 m/s við fjöll. Hættulegt að ferðast vegna vinds, sérílagi fyrir ökutæki sem eru viðkvæm fyrir vindi. Lausamunir eru líklegir til að fjúka og staðbundið foktjón mögulegt.
Óháð því hvort veður gangi eftir hefur ákvörðun verið tekin, hefðin rofin þetta sinnið. Hollvinir íþróttamiðstöðvarinnar halda sína jólahátíð með sínum nánustu, njóta augnabliksins minnug tilgangi hátíðarinnar. Á öðrum degi jóla er opið skv. áætlun, megi það ganga eftir.
Hugheilar jólakveðjur!
P.S. Meðf. mynd er tekin fyrir fáeinum dögum í desembermánuði.
20/12/2025
Ágætu gestir
Um hátíðir er opnun svofelld:
22. desember mánudagur - kl. 07:30-09:30 / 16:00-21:30
23. desember, Þorláksmessa - kl. 09:00-12:00
24. desember, aðfangadagur - kl. 09:00-12:00
25. desember, jóladagur - LOKAÐ
26. desember, 2. dagur jóla - kl. 09:00-12:00
27. desember, laugardagur - kl. 12:00-16:00
28. desember, sunnudagur - LOKAÐ
29. desember, mánudagur - kl. 07:30-09:30 / 16:00-21:30
30. desember, þriðjudagur - kl. 07:30-09:30 / 16:00-21:30
31. desember, gamlársdagur - kl. 09:00-12:00
01. janúar, nýársdagur - LOKAÐ
Verið velkomin til íþróttamiðstöðvar - gleðilega hátíð!