Team Topcon

Team Topcon

Share

Reiðhjólalið Topcon ætlar að taka þátt í mörgum hjólakeppnum sumarið 2017 og láta gott af sér leiða . Fylgist með ævintýrum okkar hérna!

Team Topcon er lið s*x karla og s*x kvenna sem mun hjóla saman allt keppnistímabilið 2017 í öllum helstu götuhjólakeppnum landsins. Tilgangur liðsins er að hafa góð áhrif á hið íslenska hjólasamfélag, þroska liðshugsun og taktík í íslenskum hjólakeppnum, auka veg kvenna í hjólreiðum og láta gott af okkur leiða. Hjólatengd markmið eru að taka þátt í mörgum mótum, taka miklum framförum og stelast kannski öðru hvoru á pall, að minnsta kosti í B-keppnum og aldursflokkum.

11/09/2017

Okkur í Team Topcon langar að þakka öllu því frábærlega duglega og metnaðargjarna fólki sem stóð að framkvæmd Tour of Reykjavík um síðustu helgi. Kjartan Freyr Ásmundsson og hans fólk unnu sannkallað þrekvirki ásamt Íþróttabandalag Reykjavíkur, starfsmönnum, Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu, dómarar og sjálfboðaliðar.

Við Í Team Topcon tókum þátt í tveggja daga keppninni, sem var alveg ótrúlega spennandi nýjung fyrir öll okkar og dásamlegur lokahnykkur á frábæru hjólasumri.

Fyrri dagurinn, 125 km rúntur á Þingvelli um Nesjavelli á leiðinni til baka, var algjör snilld! Umgjörðin, startið, dönsku atvinnumennirnir, dómararnir, veðrið, Nesjavallarbrekkan, mótorhjólalöggan sem tók við okkur við þjóðveg 1 og leiddi okkur örugglega inn í endasprettinn, allt eins og best varð á kosið. Allir skiluðu sér heilir í mark á fínum tíma.

Seinni dagurinn var sömuleiðis mikil upplifun. Þreyttir fætur gerðu sitt besta til að hanga með dönsku hraðabreytingunum en tókst misvel til. Tubeless dekkið hans Hilmars fékk lekanda í rásmarkinu, Aðalbjörn tafðist við magalendingu á grösugri umferðareyju og Inga varð fyrir lúalegri árás fjúkandi grindar. Pétur hélt þó sínu striki frá deginum áður og kláraði feiknasterkur í 16. sæti overall í samanlagðri keppni - frábær árangur hjá honum sem við erum sannarlega stolt af. Stelpurnar tóku þriðja sætið í liðakeppninni og ekki erum við minna stolt af þeim!

Til að reka endahnútinn á frábært tímabil héldum við svo lokahóf strax á sunnudagseftirmiðdeginum með mökum og börnum, borðuðum dýrindis grillmat og rifjuðum upp eitthvað af þeim óteljandi notalegu stundum sem við höfum átt saman á árinu.

Okkur langar að lokum að þakka öllum okkar keppinautum fyrir frábært tímabil. Við lögðum upp með að berjast hart en ávalt heiðarlega, vera brosandi og reyna að láta gott af okkur leiða og hjálpa þannig til við að þróa hið frábæra íslenska hjólasamfélag í réttar áttir. Við vonum að vel hafi tekist til. Í það minnsta er það alveg með eindæmum hvað okkur finnst Team Topcon hafa verið vel tekið í hjólasamfélaginu og fyrir það erum við þakklát inn að dýpstu hjartarótum.

Svo má ekki gleyma að það var velgjörðarmaður okkar og snillingur, Ólafur Baldursson sem gerði okkur þetta kleift og ruddi vonandi braut sem fleiri munu feta á næstu árum. Takk Óli.

Bless í bili.
Team Topcon

11/09/2017

Stelpur mæta strákum í Tour of Reykjavik um helgina. Ljósmynd: Þorsteinn Jóhannsson.

Íþróttir 12/08/2017

Góður dagur fyrir Team Topcon í Tour de Ormurinn! Ingvar vann 103 km keppnina í æsilegum endaspretti. Orri vann 68 km keppnina á nýju brautarmeti. Friðrika náði öðru sætinu á flottum tíma. Sjá má skemmtilega umfjöllun og viðtöl við Ingvar og Orra í íþróttapakkanum hjá RÚV (byrjar kl. 8:35).

Íþróttir

08/07/2017

Slysið í Gullhringnum:
Hilmar lenti í slysinu en meiddist bara lítillega og hjólaði áfram. Aðrir Topcon liðsmenn ómeiddir. Allir slegnir og hugur okkar hjá þeim sem meiddust.

Photos 08/07/2017

Team Topcon mætt á keppnisfund í . Fulla ferð og njótið í botn everybody!

Photos 03/07/2017

WOW Cyclothon 2017 var ekkert nema ævintýri og við öll í Team Topcon himinlifandi með þessa skemmtilegu og skrautlegu hringferð um landið.
Við viljum koma á framfæri þakklæti til þeirra fyrirtækja og einstaklinga sem styrktu okkur og studdu á einn eða annan hátt í undirbúningnum. Takk fyrir okkur! salt - café & bistro Ölgerðin Egill Skallagrímsson Bananar Ehf Mjólkursamsalan Hreysti SS - Sláturfélag Suðurlands Stjörnuegg Goði Tradex ehf harðfiskur Gló Ólafur Baldursson takk fyrir alla hjálpina, Lilja Torfadóttir takk fyrir gómsætt bananabrauð, flatkökur og alla vinnuna.
Auk þess þökkum við fyrir öll handtökin frá fullt af góðu fólki sem voru boðin og búin að hjálpa til - þið vitið hver þið eruð 🙂

Photos from Team Topcon's post 24/06/2017

[Af einhverjum ástæðum datt kynningin á Valborgu út af síðunni - hér kemur hún aftur]. Valborg Guðlaugsdóttir er 44 ára tvíburi og býr ásamt sambýlismanni og dóttur í Grafarholti. Samtals eiga þau 4 börn! Hún starfar sem leikskólastjóri hjá Reykjavíkurborg. Valborg byrjaði að hjóla af fullum krafti 2015 og hjólaði með liði sínu Team Spinnigal til sigurs í kvennaflokki í Wow 2016. Þetta er fyrsta sumarið sem Valborg keppir af miklum krafti og kemur hún sér iðulega á verðlaunapall. Þrautseig dísilvél! Valborg er eina manneskjan sem við þekkjum sem er beintengd við karmað sitt svo að við hin erum farin að passa uppá hvað hún segir, t.d. er á bannlista að tala um að sprengja slöngur! Þetta er þriðja skipti Valborgar í Wow.

23/06/2017

Hér er myndband af endasprettinum milli Team Topcon og Team Cintamani. Æsispennandi!

Photos 23/06/2017

Baráttan um 14. - 15. Sætið í WOW Cyclothon milli Team Topcon og Cintamani var svona hörð! En Hilmar hafði það fyrir okkar hönd. Niðurstaðan 13. Sæti af rúmlega 100 liðum og 3. sætið í flokki blandaðra liða.

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Laugarvatn?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Website

Address


Laugarvatn