Gullspretturinn

Gullspretturinn

Share

Hlaupið er í kringum Laugarvatn yfir ár, mýrar og móa með frjálsri aðferð. Allur ágóði af hlaupinu rennur til kaupa á straumvatnsbjörgunarbúnaði.

Vegalengdin er ca. 8,5 km

Björgunarsveitin Ingunn í Bláskógabyggð er umsjónaraðili hlaupsins.

11/06/2025

Það stefnir í bongó á laugardaginn!

Photos from Gullspretturinn's post 08/06/2025

Undirbúningur fyrir Gullsprettinn er í fullum gangi. Stikað var fyrir brautinni í dag í blíðskaparveðri.

Photos from Gullspretturinn's post 07/06/2025
04/01/2025

Við sendum hlaupurum, sjálfboðaliðum og öðrum velunnurum Gullsprettsins bestu óskir um nýtt skemmtilegt hlaupár með þökk fyrir það gamla!
Allur ágóði af hlaupinu á síðasta ári rann til kaupa á björgunarsæþotu (e. jet ski) fyrir Uppsveitir Árnessýslu. Slysavarnafélagið Landsbjörg lagði til lánsfé og fengum við afhenta sæþotu GTI SE 170 frá Ellingsen, ásamt aukabúnaði, síðastliðið haust. Sýningareintakið er við vorum með að láni nú í sumar.

Landsvirkjun , samfélagssjóður úthlutaði 300 þús. nú rétt fyrir jól til Björgunarsveitarinnar. Styrkur er ætlaður er til að kosta merkingar á sæþotunni fyrir komandi hlaupasumar!

Photos from Antanas Šakinis Photography's post 15/06/2024

Antanas Šakinis Photography fangaði stemminguna í dag í Gullsprettinum í frábæru veðri við Vatnið. Við erum alsæl með daginn og hlökkum til að hitta ykkur sem flest í kvöld á Gullsprettsballinu.

15/06/2024

Ath. við erum á nýjum stað nú í ár. Á grasflötinni sunnan við Íþróttahúsið á Laugarvatni, neðan við gamla malarvöllinn. Skráning í Viking tjaldinu :)

14/06/2024

Allt að verða klárt fyrir morgundaginn!

14/06/2024

Veðurspáin lofar góðu fyrir morgundaginn og sökum fjölda fyrirspurna höfum við ákveðið að framlengja skráningu í hlaupið fram að ræsingu, eða til kl. 11:00 á morgun :)

Ari í Útey hefur hannað nýja verðlaunapeninga fyrir Gullsprettinn. Þeir eru úr laserskornu birki ásamt leðurbandi.

Sprett úr spori og dansað á Laugarvatni 13/06/2024

Skráningu í Gullsprettinn líkur klukkan 20:00 í kvöld!
Tryggðu þér þátttöku á www.netskraning.is/gullspretturinn

Sprett úr spori og dansað á Laugarvatni Það verður mikið um að vera á Laugarvatni á laugardaginn þegar víðavangshlaupið Gullspretturinn fer fram. Deginum lýkur svo með dansleik á bökkum vatnsins og allt er þetta gert í þágu góðs málefnis…

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Laugarvatn?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Category

Telephone

Address


Laugarvatn
840