23/06/2026
Pottarnir eru ekki heitir. Sundlaugin er tæpar 29 gráður. Höfum opið á meðan laugin er góð🤞🌞 fullorðnir fara ofaní á barnagjaldi meðan ástandið er svona
Bilun í hitaveitu Laugarvatni
Bilun er í búnaði hitaveitunnar á Laugarvatni.
Viðgerð stendur yfir. Gera má ráð fyrir að viðgerð taki talsverðan tíma.
Vonum það besta. En allt eins má búast við að viðgerð ljúki ekki fyrr en í kvöld.
16/06/2026
Opið 17.júní frá kl.10-18 ✨️ frítt í sund milli 16 og 18, sundlaugarparty og ís í pottinn 🌞
29/05/2026
Sundlaugin og íþróttasalurinn verða lokuð laugardaginn 30.maí vegna útleigu. Ræktin er opin 🏋♀️
28/05/2026
Sumaropnun er hafin - verið velkomin 🌞
22/05/2026
Sundlaug og íþróttahús opna kl.14 á morgun, 23.maí - vegna útskriftar ML ✨️
13/05/2026
Fimmtudagur 14.maí - Opið kl.10-18 í sund og rækt
✨️
01/05/2026
Opið í rækt og sund kl.10-18,1.maí
21/04/2026
Opið frá kl.10-18 Sumardaginn fyrsta og Uppstigningardag ☀️
20/04/2026
Kíkið til okkar í íþróttahúsið á Sumardaginn fyrsta! Frítt í sund kl.14-16, ís í pottinn, ljóð frá grunnskólabörnum þar til sýnis, í anddyrinu er myndlistarsýning frá leikskólanum, gamlar ljósmyndir úr Bláskógabyggð og skiptidótamarkaður ☀️ Hlökkum til að sjá ykkur ✨️
09/04/2026
Sundlaugin verður lokuð föstudaginn 10.apríl vegna útleigu