12/06/2026
1 sæti laust vegna forfalla í Ölgerðarmótið (Kristals) okkar í fyrramálið á Dalbúa við Laugarvatn !
https://tourentry.golfbox.dk/?cid=5584363
Golfklúbburinn Dalbúi er 9 holu golfvöllur staðsettur í Miðdal í 1 km fjarlægð frá Laugarvatni. Hópur Dalbúa er hér á Facebook : www.facebook.com/groups/dalbui/
12/06/2026
1 sæti laust vegna forfalla í Ölgerðarmótið (Kristals) okkar í fyrramálið á Dalbúa við Laugarvatn !
https://tourentry.golfbox.dk/?cid=5584363
10/06/2026
Innanfélagsmót sem allir gildir meðlimir geta tekið þátt í!
Jónsmessu-kvöldmót Dalbúa. 19.júní kl: 20:00
Verð aðeins 3500 kr á mann og pylsa+drykkur eftir mót fylgir.
Skráning er hafin og reglan eins og alltaf, fyrstir koma, fyrsti fá 🙂
https://www.golfbox.dk/livescoring/tour/ #/competition/5584375
03/06/2026
Smá leiðrétting á einni dagsetningu á mótaskránni okkar á Dalbúa.
(Hjóna og paramótið okkar sem var troðfullt í fyrra)
Skráning hafin á mörg mótanna nú þegar.
02/06/2026
Búið er að opna fyrir skráningu á Kristalsmót Dalbúa sem verður haldið 13.júní ! 🙂
Sjá texta í fyrstu athugasemd og skráning er hér.
https://tourentry.golfbox.dk/?cid=5584363
Kæru Dalbúar og vinir Dalbúa
Við reiknum með að opna hjá okkur á fallega Dalbúa laugardaginn 30. maí.
Búið er að gata og sanda flatir en við eigu enn eftri að valta völlinn, en það verður gert á næstunni.
Það styttist svo í það að við opnum skálann okkar formlega aftur eftir framkvæmdir og uppbyggingu.
Aðstaðan okkar þar verður sérlega glæsileg.
Kæru Dalbúar
Vinnudagurinn okkar á Dalbúa verður sunnudaginn 17. maí frá 10:00 – 14:00 eða svo.
Gaman væri að sjá ykkur sem flest en við vonumst eftir því að fá ágætis veður.
07/05/2026
Kæru Dalbúar og verðandi Dalbúar
Við erum með nokkrar óafgreiddar inngöngubeiðnir hjá okkur í Dalbúa sem eftir á að setja inn í kerfið hjá okkur og reiknum við með að klára þær beiðnir um miðja næstu viku. Ekki örvænta, þið fáið að vera með okkur.
Þið sem viljið vera með getið sent okkur póst á [email protected]
Hér er verðskráin okkar.
Verðskrá – Golfklúbburinn Dalbúi Verðskrá Verðskrá Dalbúa 2026 Full aðild GD sem heimaklúbbur 66.000.- Full aðild Hjónagjald – GD sem heimaklúbbur 118.000.- Full aðild 67+ GD sem heimaklúbbur 58.000.- Full aðild GD sem aukaklúbbur 58.600.- Full aðild hjónagjald GD sem aukaklúbbur 103.200.- Full aðild 67+ GD sem ...
22/04/2026
17/04/2026
Við bíðum mjög spennt eftir sumrinu sem nálgast óðfluga ! Mótadagskrá sumarsins er klár og við minnum á hagstæð verð á mismunandi aðildum hjá okkur ⛳️❗️
Til útskýringa :
Aukaaðild = Ef þú ert t.d. í 2 golfklúbbum, þá ertu að greiða GSÍ gjald (7400 kr) í aðeins annan klúbbinn. Hann telst "heimaklúbbur" og hinn telst því "aukaklúbbur" Golfsambandsgjaldið greiðist aðeins einu sinni per kylfing á ári fyrir alla 16 ára og eldri. Meðlimir sem eru með Dalbúa sem aukaklúbb eru eftir sem áður fullgildir meðlimir klúbbsins.
Fjaraðild = Eingöngu verið að greiða fyrir aðgang að golfbox og GSÍ númer. 18 holur á Dalbúa fylgja. Engir vinavellir fylgja og ekki í boði að taka þátt í innanfélagsmótum né meistaramóti GD.