22/12/2025
Nýju vatnsrennibrautirnar í Þorlákshöfn hafa verið opnaðar! 👏👏
Nýjar vatnrennibrautir opnaðar
Síðastliðinn laugardag var mikil hátíð í Sundlauginni í Þorlákshöfn þegar tvær nýjar vatnrennibrautir, Slanginn og Drekinn, voru formlega opnaðar. Það var við hæfi að Kári Böðvarsson, fulltrúi eldri borgara og fastagestur í sundlauginni, færi fyrstu ferðina niður brautina...
14/07/2025
Glæsilegri endurnýjun lokið á íþróttagólfi í íþróttamiðstöðinni á Hellu. Um er að ræða slitsterkt samskeytalaust PU gólf sem hentar íþróttum á breiðu sviði auk þess að vera með langan endingartíma og þurfa lágmarks viðhald 👌👏👏
03/11/2024
Spennandi verkefni farið af stað í Þorlákshöfn. Við byggjum nýjar og glæsilegar vatnsrennibrautir 👏👏
Risa vatnsrennibraut keypt í Þorlákshöfn fyrir 150 milljónir - Vísir
Ein glæsilegasta og hæsta vatnsrennibraut landsins verður í sundlauginni í Þorlákshöfn en Sveitarfélagið Ölfus hefur fjárfest í tveimur braut fyrir 150 milljónir króna, sem verða settar saman í eina. Stigahúsið upp í brautina verður tólf metra hátt.
26/07/2024
Nú á Ólympíuleikunum sem endra nær eru byggðar "tímabundnar" sundlaugar sem síðan eru oft teknar niður aftur og seldar til nálægra sveitarfélaga. Nánast undantekningalaust eru þetta sundlaugar frá Myrtha Pools sem við erum í stoltu samstarfi með og höfum verið í áratugi.
Hér er skemmtilegt "time-lapse" sem sýnir uppsetningu á Myrtha 50 m. keppnislaug í París fyrir Ólympíuleikana 2024.
🚧Time lapse of the Myrtha installation inside Paris La Défense Arena in Nanterre!🚧 #paris #olympics
#2024
15/03/2024
Föstudagsgleði hjá móttökustjóra, innheimtustjóra og starfsmanni í þjálfun 😍
21/11/2023
Við höfum uppfært og stórbætt sýningarherbergið okkar 😍 Bjóðum af því tilefni afslátt af mörgum flottum vörum út nóvember.