Hanna Björk - Einkaþjálfun

Hanna Björk - Einkaþjálfun

Share

Hanna Björk Halldórsdóttir Ég býð upp á fjarþjálfun með miklu aðhaldi, daglegum e-mail samskiptum, mælingum á 4-6 vikna fresti og ráðgjöf með mataræði.

Til að fá upplýsingar um verð, og svar við þeim spurningum sem þú hefur má senda email, eða hringja.

2016 Breytingarstjórnun - Hawaii Pacific University
2014 Íþróttafræði frá HR
2011 IAK -- styrktarþjálfun barna og unglinga
2009 National Personal Training Institute -- Einkaþjálfun
2008 Sport Performance -- afreksþjálfun

Photos 14/02/2017

Er einhver að tengja við þessa mynd?
Hafa ekki allir villst inn í þessum frumskóg af því hvað við megum og við eigum og hvað allsekki?

Þetta er allt spurning um að finna hvað hentar hverjum og einum bestum.

Mín upplýsta skoðun, og mín leið til að líða vel. Er að passa að það sé eitthvað prótein í öllum mínum máltíðum, þá helst í formi matar.
Morgunmat, hádegismat og kvöldmat.

Egg - tunfiskur - kjúklingabaunir - allur fiskur - kjúklingur - blátt skyr - fræ og aðrar baunir er eitthvað sem ég borða daglega.
Þannig líður mér best, þannig hef ég mesta orku og er alltaf þægilega mett yfir daginn.

Dagar sem byrja á brauðsneið, eða morgunkorni eru dagarnir sem maginn á mér virðist vera botnlaus - öll eigum við þannig daga!
Ég mæli með að þú prófir þetta - gæti verið leiðin útúr frumskóginum!

Pallof Press - How To Do Pallof Presses + Variations 08/02/2017

Líkaminn okkar er er dásamlega áhugavert fyrirbæri!
Ég er hrifin af þeirri hugmynd að hafa sterka miðju sé eitt af því mikilvæga til þess að geta gert aðrar æfingar.

Þetta er uppáhalds kviðæfingin mín!
átt þú einhverja uppáhalds??

https://www.youtube.com/watch?v=5_8d8vHgZvU

Pallof Press - How To Do Pallof Presses + Variations Pallof Presses are a great anti-rotation core exercise, and in this video, I show you correct technique, and a number of variations you can use to further ch...

Photos 06/02/2017

Lífið er nú kannski ekki alveg svona klippt og skorið- en þessi mynd er klárlega eitthvað sem má velta fyrir sér.

Markmið eru mitt uppáhad !

01/02/2017

Meistaramánuður að hefjast! Það held ég nú að sé rétti tíminn til þess að endurvekja þessa síðu.

Ég er sjálf alveg að fara verða komin á fullt eftir smá viðgerð og langar að taka ykkur með í það. Ég kem gjörsamlega endurnærð efitr tveggja ára veru á Hawaii og ætla byrja á því að bjóða upp á fjarþjálfun.

Ég gæti trúað því að við þjálfarar séum að valda ákveðnum valkvíða hjá mörgum þeirra sem vilja taka meistaramánuðinn föstum tökum. Við erum ansi mörg sem bjóðum upp á fjarþjálfun, en mín þjálfun felur í sér fjölbreyttar æfingar, nokkrar aukaæfingar 'on the side' ef þið viljið taka svoleiðis.
Ég fer daglega yfir matarræðið og æfingadagbækur. Mikil og ströng eftirfylgni. Og að sjálsögðu mælingar á 4-6 vikna fresti.

Undir 'description' má finna allt um menntun mína - en kannski minna um mig persónulega, en ég hef farið allan skalann í lífinu. Frá því að vera vel virkur íþróttakrakki í of feitan ungling og unga konu, í vel virkan íþróttafræðing sem hefur gengið í gegnum allskonar meiðslapartý.

Verðskrá má nálgast í gegnum email.
Ég hlakka þvílíkt til að fara þjálfa aftur !

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Mosfellsbær?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Telephone

Website

Address


Mosfellsbær
270