18/09/2026
Hefur þig alltaf langað til að kunna skriðsund almennilega? Það er ekki eins flókið og margir halda 🙂
Næsta skriðsundsnámskeið haustsins fer að hefjast!
Það hefst 6.október og ekki er seinna vænna en að bóka sæti á það núna því fyrirspurnir eru farnar að berast inn 🙂
Námskeiðið er frábær leið til að læra skriðsund, hvort sem þú ert algjör byrjandi eða kannt eitthvað fyrir þér. Ég byggi það á aðferð sem hefur verið í þróun í um 35 ár og gerir æfingaferlið mun einfaldara og skilvirkara.
Að ná afslöppun í sundinu og njóta þess að synda í stað þess að sundið sé einhver kvöð eða eitthvað nærri óyfirstíganlegt er markmiðið mitt með þessu námskeiði. Þá eru líka meiri líkur á að þátttakendurnir hafi gaman af og haldi áfram að synda eftir námskeiðið.
Svo er auðvitað frábært að hoppa í pottinn eða í infra rauðu gufuna eftir tímann og slaka á í góðum hópi.
Námskeiðið er í Lágafellslaug og er á þriðjudögum og fimmtudögum milli kl 20-21 og er 8 skipti samtals.
Námskeiðið kostar 28.000 kr. og að sjálfsögðu er aðgangur að lauginni innifalinn í verðinu.
Hægt er að skrá sig eða fá frekari upplýsingar á [email protected] eða með því að senda skilaboð í gegnum Facebook.