Kettlebells Iceland

Kettlebells Iceland

Share

Æfingaklúbbur í Mosfellsbæ. Morguntímar og eftirmiðdagstímar fyrir þá sem vilja auka hreysti og bæta heilsuna á markvissan og heilbrigðan hátt.

Kettlebells Iceland er æfingaklúbbur staðsett rétt hjá Reykjalundi í Mosfellsbæ. Við bjóðum upp á morguntíma og eftirmiðdagstíma fyrir fólk á öllum aldri sem vilja auka hreysti og bæta heilsuna á markvissan hátt. Við vinnum með litla æfingahópa svo við getum fylgst vel með hverjum og einum og gefið áskoranir og verkefni við hæfi. Okkar markmið er að allir hafi gaman af því að koma á æfingar til ok

09/05/2025

Vika í KB þrautargleðina ☀️💪

Margir ráshópar fullir en ennþá einhver laus pláss. Hvetjum alla sem hafa gaman að brasi, útiveru og skemmtun að skrá sig í þetta einstaka hlaup. Skráning á [email protected]

13/03/2025

Grunnnámskeið í Mosfellsbæ!

Skráning og nánari upplýsingar: [email protected]

KB þrautin 2025! – kettlebells.is 03/11/2024

Vorum að opna á skráningar í hugsanlega skemmtilegasta þrautahlaup landsins - KB þrautina

17. maí, 2025 (laugardagur)

KB þrautin 2025! – kettlebells.is KB þrautin 2025! Þrautin 2025 verður haldin í Mosfellsbæ, laugardaginn 17. maí 2025. Vel á annað hundrað þátttakendur eru forskráðir í þrautina 2025. KB þrautin er frábært tækifæri fyrir vinahópa, fjölskyldur og vinnufélaga að takast saman á við fjölbreyttar, krefjandi og ...

16/10/2024

Strandir og Kettlebells Iceland æfingahópurinn, þvílíkt combó!

Takk fyrir samveruna, góða fólk ❤

Photos from Kettlebells Iceland's post 05/10/2024

Tveir glænýir og geggjaðir ketilbjölluþjálfarar kláruðu daginn með stæl. Til hamingju Erla Eiríksdóttir og Sigurlaug Hjaltadóttir 👏👏

Þjálfaranámskeið Kettlebells Iceland – kettlebells.is 30/09/2024

Styttist í þetta! Næsta laugardag, tvö laus sæti :)

Þjálfaranámskeið Kettlebells Iceland – kettlebells.is Þjálfaranámskeið Kettlebells Iceland Næsta þjálfaranámskeið: 5. október 2024 Staðsetning:  Kettlebells Iceland, Engjavegi 12, Mosfellsbæ Tímasetning: Laugardagur, 9.00 – 17.00 Kennari: Vala Mörk, yfirþjálfari Kettlebells Iceland Námskeiðsgögn: Þátttakendur fá strax að nám...

Photos from Kettlebells Iceland's post 24/09/2024

Vikan byrjaði bara all þokkalega með 0-0 sigri okkar manna á Fjölni í gær. Úrslitaleikur við Keflavík á laugardaginn (kl.14.) framundan.

Næst á dagskrá hjá okkur í Mos er Þrautahlaup Einars. Þetta er fyrsti viðburðurinn af mörgum í Íþróttaviku Evrópu í Mosfellsbæ.

Þrautahlaupið er blanda af kynningu á náttúruíþrótt/hreyfingu sem er orðin mjög vinsæl á heimsvísu - margir Íslendingar hafa t.d. tekið þátt í Spartan Race víðsvegar um heiminn - og virðingarvottur við sjálfboðaliðastarf sem við Íslendingar byggjum stóran hluta tilveru okkar á. Við megum öll vera duglegri að þakka sjálfboðaliðum fyrir sitt framlag og fagna með þeim eftir vinnutarnir - það gleymist stundum (ég þarf sjálfur að taka mig á í þessu).

Þrautahlaupið er öllum opið, það er um 6km langt og þrautirnar um 10 talsins. Það hefst klukkan 17.00 að Íþróttamiðstöðinni að Varmá og lýkur þar sömuleiðis. Engin tímataka, engin verðlaun, bara gleðin og hamingjan við að taka þátt með góðu fólki :)

Knattspyrnudeild Aftureldingar
Ungmennafélagið Afturelding
Mosfellsbær
Mosfellingur
KB ÞRAUTIN 2024 - þátttakendur og sjálfboðaliðar

Sjáumst spræk á eftir!

Þjálfaranámskeið Kettlebells Iceland – kettlebells.is 19/09/2024

ÞJÁLFARANÁMSKEIÐ 5 OKT. Ertu með?

Þjálfaranámskeið Kettlebells Iceland – kettlebells.is Þjálfaranámskeið Kettlebells Iceland Næsta þjálfaranámskeið: 5. október 2024 Staðsetning:  Kettlebells Iceland, Engjavegi 12, Mosfellsbæ Tímasetning: Laugardagur, 9.00 – 17.00 Kennari: Vala Mörk, yfirþjálfari Kettlebells Iceland Námskeiðsgögn: Þátttakendur fá strax að nám...

19/09/2024

Sjálfboðaliðar

Ég hef verið sjálfboðaliði síðan ég var gutti. Fannst það eðlilegur hluti af tilverunni að hjálpa til í kringum fótboltann hjá Þrótti þar sem ég tók mín fyrstu sjálfboðaliðaskref. Sjálfboðaliðastarf er risastór hluti af íslensku samfélagi. Viðbragðsaðilar Almannavarna eru að stórum hluta sjálfboðaliðar. Björgunarsveitirnir eru þar í aðalhlutverki en hlutverk sjálfboðaliða Rauða krossins er sömuleiðis mjög mikilvægt. Íþróttir á Íslandi byggja á sjálfboðaliðum. Það eru engin Manchester City eða Nottingham Forest hér. Það á enginn íþróttalið á Íslandi. Við eigum þau saman, samfélagið. Sjálfboðaliðar mynda stjórnir, taka ákvarðanir og fá aðra með sér í að halda mót og fjárafla. Halda starfinu gangandi. Gera börnunum okkar mögulegt að æfa hjá sínu félagi.

Sumir sjálfboðaliðar eru áberandi í samfélaginu. Drifkraftar sem brenna fyrir félaginu sínu, björgunarsveitinni sinni, íþróttinni sinni. Þessir drifkraftar eru mjög mikilvægir. Stundum of mikilvægir. Við treystum svo mikið á frumkvæði þeirra og getu þeirra til að leiða verkefni að við förum að treysta of mikið á þau. Hanna græjar þetta, engar áhyggjur. Þessir drifkraftar stoppa aldrei, en við hin þurfum að passa upp á þau, taka af þeim álagið og dreifa ábyrgðinni.

Aðrir sjálfboðaliðar eru minna sýnilegir en jafn mikilvægir. Sjálfboðaliðar Rauða krossins sem opna fjöldahjálparstöðvar og sinna sálrænum stuðningi og áfallahjálp eru minna sýnilegir en sjálfboðaliðar í leitar- og björgunarstörfum úti á vettvangi, en jafn mikilvægir. Einar Þór, vinur minn, sem verður 60 ára á þriðjudaginn er jafn mikilvægur Hönnu sinni, þótt hann sé ekki eins sýnilegur í samfélaginu. Einar er bóngóður, úrræðagóður, traustur vinur og félagi. Alltaf tilbúinn til að hjálpa til og finna lausnir á verkefnum og áskorunum. Ég hvet alla Einarsvini til að koma með okkur í Þrautahlaup Einars á þriðjudaginn til að heiðra manninn bak við tjöldin og sýna í verki að allt sem hann hefur gert fyrir Mosó skiptir okkur miklu máli!

Heilsumolar Gaua
Mosfellingur 19. september 2024

Mosfellingur
Mosfellsbær
Ungmennafélagið Afturelding
Þrautahlaup Einars

Photos from Kettlebells Iceland's post 10/09/2024

Þriðjudagsmorgunpælingar eftir þrautahlaup í Ölpunum, þarf að skrifa þetta úr mér og kasta út í kosmósið. Aðallega fyrir mig sjálfan, en vonandi geta einhverjir nýtt sér þessar pælingar á einhvern hátt.

Spartan Race Beast í Kaprun þykir vera það erfiðasta í Evrópu og er væntanlega ofarlega á blaði líka á heimsvísu. Aðallega út af hækkuninni sem er samtals um það bil 2200 metrar. Það er farið tvisvar upp Kitzenhorn (ekki alveg upp á jökul, en vel hátt samt), seinna skiptið er ansi bratt á köflum og þá er farið lengra upp en í fyrri ferðinni. Þrautirnar eru um 30. Margir veggir til að klifra yfir, fjölbreyttir apastigar og fötur, sandpokar og (djöfullegar) keðjur að bera. Leiðin er um 26-28 km, fer eftir því hvort maður þurfi að taka aukaburð eða hlaup sem refsingu fyrir að klikka á þraut.

Við fórum þetta í fyrra, góður hópur frá Kettlebells Iceland. Frábær ferð, en það voru ekki margir heitir fyrir því að fara aftur á sama stað í sömu keppni. Í ár vorum við 6 sem fórum saman út, 4 í þraut, 2 snillingar sem fóru eiginlega í þrautahlaup – þær Gumma og Halla voru svo öflugar í að hlaupa upp og niður fjallið til að peppa okkur hin á ýmsum stöðum á leiðinni. Og stálmassarnir Kiddi og Haddi, maður minn, respect!

En af hverju langaði mig aftur í þessa þraut? Þetta er helvíti strembið, það verður að viðurkennast. En mig langaði að prófa að undirbúa mig öðruvísi en í fyrra skiptið og sömuleiðis finnst mér þetta vera mælikvarði á hreysti. Hvar stend ég? Miðað við sjálfan mig og mín markmið í lífinu. Ég vil geta labbað upp fell og fjöll. Ég vil geta skokkað/hlaupið niður án erfiðleika. Ég vil hafa úthald, líkamlegt og andlegt, til að klára verkefni eins og þetta. Ég vil hafa styrk, liðleika og stökkkraft til að klára þrautirnar. Flóknara er það ekki. Ég er ekki í þessu til að keppa við aðra. Í fyrsta lagi af því ég hef ekki hugmynd um við hverja ég er að keppa – maður veit aldrei hverjir skrá sig í svona hlaup. Í öðru lagi af því ég á ekki nokkurn einasta séns í öflugustu fjallahlauparana í mínum aldursflokki – þeir fljótustu í mínum flokki voru svo langt á undan mér að þeir hefðu getað horft á fótboltaleik (framlengdan og með vítaspyrnukeppni) áður en ég kom í mark. Og í þriðja lagi, af því mér er eiginlega slétt sama hvar í töflunni ég enda í þessu. Ég er að gera þetta fyrir mig, fyrir mína heilsu.

Málið er nefnilega að þegar maður hefur svona erfiða áskorun fyrir framan sig í marga mánuði þá hvetur það mann til dáða dags daglega. Ég er búinn að hafa Kaprun brekkurnar í hausnum í nánast heilt ár og vissi að til að komast vel frá þessu væri skynsamlegt að undirbúa sig vel. Ég skráði mig í fjareinkaþjálfun hjá vini mínum Steve Maxwellog lærði eins og alltaf mikið af honum. Hann er meistari í einföldum og erfiðum styrktaræfingum, öndun, endurheimt, æfingaálagi, mataræði og andlega þættinum. Ég notaði líka reynsluna frá því í fyrra og fór mjög reglulega á Esjuna í undirbúningsferlinu – það skilaði sér heldur betur. Ég var betri í brekkunum í ár en í fyrra, bæði upp og niður.

En það gekk ekki allt upp. Lífið er áskorun og ég náði ekki að æfa alveg eins og ég hafði áætlað. Ég lenti t.d. í því í lok júlí að klemma taug sem gerði að verkum að ég g*t varla gert eina armbeygju eða upphífingu – það var ekki gæfulegt á leiðinni í þrautahlaup þar sem styrkur í efri hluta líkamans skiptir miklu máli. Eftir nokkrar vikur þar sem ég beið eftir því að þetta lagaðist af sjálfu sér (sem það gerði ekki) leitaði ég á náðir félaga míns Dóra Víglunds hjá Sjúkraþjálfun Garðabæjar. Halldór Víglundsson greindi stöðuna, tók mig í meðferð og setti mig í daglegar æfingar til þess að leysa vandann. Og það tókst á furðu skömmum tíma – sem betur fer. Án Dóra hefði ég ekki komist í gegnum margar þrautir. Takk minn kæri!

Eftir þrautina var ég vel þreyttur, þetta tók á. Sérstaklega seinni hlutinn. En mér leið vel og var sáttur með hvernig gekk. Náði 27 af 30 þrautum. Tvær sem ég klikkaði á voru ekki líkamlega krefjandi og ég hef venjulega náð þeim, en s**t happens sometimes og það þýðir ekkert að velta sér upp úr því. Eins og tennisgoðsögnin Federer segir: A point is a point. When it’s behind you, it’s behind you. Sem þýðir, einbeittu þér að því sem er framunandan og gerðu það eins vel og þú getur. Ekki velta þér upp úr stiginu sem þú tapaðir (eða þrautinni sem þú klikkaðir á). Þriðja þrautin sem ég klikkaði á var líklega tengd taugaklemmunni, ég náði ekki að æfa hana nógu vel – byggja upp styrktarúthald til að klára hana. Þrátt fyrir að vera ekki að pæla mikið í hvar ég endaði í töflunni þá kíkti ég nú samt á stöðuna. Endaði í 18/29 í mínum aldursflokki í Evrópumótinu í Spartan Race – já þetta var sem sagt opinbert Evrópumót 😊 og alvöru spaðar í brautinni. Ég hefði endað fyrstur í mínum aldursflokki ef ég hefði verið í opnum flokki í sömu vegalengd – en það sannar einmitt fyrir mér að samanburður við aðra í svona ævintýrum er tilgangslaus – fyrir mig allavega. Ég veit lítið (ekkert) um hina sem voru í þessari þraut. Ekkert um þeirra bakgrunn eða nálgun.

Mín nálgun er að geta þetta, reyna við allar þrautir og helst ná öllum – muna samt Federerviskuna - ekki gefast upp, njóta þess að vera úti í náttúrunni að reyna á líkamann, vera þakklátur fyrir að vera á þessum stað á þessum tíma og að halda áfram að nota þrautahlaup sem gulrót fyrir heilsuhreysti.

Við Vala Mörk erum félagar í þessu. Þrautahlaup eru okkar golf. Við erum búin að fara í margar Spartan Race ferðir og eigum margar eftir.Það er svo dýrmætt. Það er líka frábært að eiga vini og æfingafélaga sem eru á sömu bylgjulengd – þótt kannski ekki alveg allir elski brekkurnar jafn mikið og sumir…

Hvert næst? Hver veit? Hugurinn er strax farinn á flug.

Það sem ég veit er að ég ætla að halda áfram að æfa reglulega á Esjunni, það verður áfram einn af stólpunum í mínu æfingaplani. Styrkur, liðleiki og alls konar íþróttasprikl er og verður líka hluti af planinu.

Stay alive!

p.s. í fyrra hljóp ég í áritaðri keppnistreyju Hvíta riddarans. Í ár áritaðri Kaleo/UMFA treyju. Stoltur fulltrúi #270. Alltaf.

27/08/2024

Íþróttahátíðin

Et, drekk og ver glaðr, segir í Hávamálum og sömuleiðis, Sjaldan liggjandi úlfur lær um getur né sofandi maður sigur. Bæjarhátíð Mosfellsbæjar snýst um þetta. Hreyfingu, næringu og gleði.

Það er heldur betur margt í gangi í Mosfellsbænum á bæjarhátíðinni þegar kemur að hreyfingu og hreysti. Hundahlaupið er mætt í bæinn, Ævar Mosverji leiðir göngu á Reykjaborg, fjallahjólakeppnin Fellahringurinn er á sínum stað, nýja hjólabrautin og nýuppfærði frisbí­golfvöllurinn í Ævintýragarðinum verða formlega vígð, meistaraflokkar Aftureldingar í knattspyrnu spila bæði heimaleiki í Lengjudeildinni, það verður frítt í sund í nýuppgerðri Varmárlaug, Afturelding og Gæðabakstur halda stórt mót fyrir 6. og 7. flokk karla og kvenna á Tungubökkum, Tindahlaupið fagnar 15 ára afmæli og fyrsti opni fjölskyldutími vetrarins verður um helgina – svo nokkur dæmi séu nefnd.

En það er margt fleira í gangi í íþrótta– og útivistarbænum og það er ýmislegt í gangi sem ekki allir vita af. Það er til dæmis komið borðtennisfélag í bæinn, bardagaíþróttaflóran stækkar og UMFA mun senda meistaraflokkslið karla til leiks í körfubolta.

Ég er búinn að gefa það út að ég ætla, í góðum félagsskap, að prófa æfingu eða tvær hjá öllum þeim sem bjóða upp á skipulagðar æfingar í Mosfellsbæ. Sé fyrir mér að vera eina viku á hverjum stað, kynnast íþróttinni og þeim sem leiða hana og kynna svo í framhaldinu fyrir öðrum bæjarbúum. Ég tek fagnandi á móti upplýsingum og tillögum um íþróttir á [email protected].

Knattspyrnutímabilið er að klárast. Kvennalið UMFA er í uppbyggingarfasa og verður áfram í Lengjudeildinni að ári. Karlalið UMFA er þegar örfáar umferðir eru eftir í baráttu um að komast í úrslitakeppni um sæti í Bestu deildinni. Hvíti riddarinn er að berjast fyrir að halda sér í 3. deild og Álafoss átti frábært tímabil í 5. deild og var hársbreidd frá því að komast í úrslitakeppni þar.

Hreyfi– og hreysti­kveðjur!

Heilsumolar Gaua
Mosfellingur 27. ágúst 2024

Mosfellingur
Mosfellsbær

18/08/2024

Byrjendanámskeið hefst á morgun, fyrsti tími á morgun kl 18. Fjögur laus sæti. Hægt að senda á vala@kettlebells fyrir nánari upplýsingar. Gudjon

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Mosfellsbær?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Telephone

Address


Engjavegur 12
Mosfellsbær
270

Opening Hours

Monday 09:00 - 17:00
18:00 - 19:00
Tuesday 09:00 - 17:00
Wednesday 09:00 - 17:00
18:00 - 19:00
Thursday 09:00 - 17:00
18:00 - 19:00
Friday 09:00 - 17:00
Saturday 09:00 - 17:00