🇮🇸 17. Júní 🇮🇸verður haldinn hátíðlegur í Neskaupstað í ár.
Við auglýsum hér með eftir virkum sjálfboðaliðum sem vilja taka þátt í skipulagningu dagsins með deildum Þróttar.
Hafið samband á [email protected]
Þróttur Neskaupstað
Þróttur Neskaupstað
26/04/2026
Leikur hjá stelpunum í FHL á SÚN vellinum í dag kl. 14:00
Kíkjum á völlinn í góða veðrinu ⚽️☀️
Stelpurnar taka á móti Völsungi í Mjólkurbikarnum á SÚN vellinum í Neskaupsstað kl 14.00 á morgun sunnudag. Fjölmennum á völlinn og hvetjum stelpunar áfram til sigurs. Verðum með grillaðar pylsur til sölu og heitt á könnunni. Áfram FHL.
09/04/2026
“Mér finnst að börnin okkar eigi rétt á sömu tækifæri að stunda íþróttir og krakkar annars staðar”
Kastljósþáttur kvöldsins tekur á máli sem iðkendur okkar hjá Þrótti og fjölskyldur þeirra þekkja vel. Höldum umræðunni hátt á lofti.
Rúmlega tvær milljónir á einu ári í ferðakostnað vegna kappleikja barnanna - RÚV.is Umsóknir í ferðasjóð ÍSÍ eru rúmlega fimm sinnum meiri en er til úthlutunar úr sjóðnum. Faðir þriggja íþróttadrengja á Egilsstöðum greiddi yfir 2 milljónir króna á síðasta ári í ferðakostnað vegna keppna í Reykjavík.
13/03/2026
ALLIR ÞRÓTTARAR Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU !! ÞAÐ ER EKKERT ANNAÐ AÐ GERA Á FÖSTUDAGSKVÖLDI EN AÐ RÍFA UPP GULU OG SVÖRTU TREYJURNAR OG HVETJA OKKUR ÞRÓTTARA Í UNDANÚRSLITUM KJÖRÍSBIKARSINS
ÁFRAM ÞRÓTTUR. LITUM STÚKUNA GULA.
Karlaliðið okkar spilar í undanúrslitum Kjörísbikarsins 2026.
Þeir mæta Hamri á föstudag kl 19:30.
Miðasala er hér https://stubb.is/events/bvv9wb og í Stubb appinu.
Leikurinn er í beinni á RUV 2📺 https://www.ruv.is/sjonvarp/beint/ruv2
Okkur þætti svo gaman að fylla stúkuna af Þrótturum🤝💛🖤
Sjáum vonandi sem flesta í Digranesinu👏
Áfram Þróttur👊💛🖤
12/03/2026
Aðalfundur Þróttar fer fram í kvöld kl. 20:00. Hefðbundin aðalfundarstörf.
Staðsetning: Fundarherbergið í Egilsbúð, hægt að ganga inn að austanverðu.
11/03/2026
Það er risa blakhelgi fyrr sunnan um helgina. KJÖRÍS-bikarinn þar sem strákarnir eru að spila til undanúrslita.
Nú viljum við alla með í stúkuna, gula, svarta og glaða 💛🖤
Bikarvikan hafin, blakveisla 12 -14. mars🤩
Okkar fólk verður í Digranesinu um næstu helgi🙌
Karlaliðið mætir Hamri í undanúrslitum og U16 stelpurnar spila úrslitaleik um bikarinn við HK.
Miðasalan er hafin í Stubb appinu.
Með því að velja Þrótt Fjarðabyggð þá fer andvirði miðakaupanna til okkar.
Hlökkum til að sjá sem flesta Þróttara í stúkunni💛🖤
08/03/2026
Við höldum áfram með aðalfundi deilda í vikunni.
Aðalfundur blakdeildarinnar fer fram á mánudag, sunddeildin á þriðjudag og aðalfundur Þróttar á fimmtudag.
08/03/2026
Leikir dagsins. Gleðilegan blak sunnudag 💛🖤
Seinni tvíhöfði helgarinnar er í dag.
Stemningin í húsinu var góð í gær..sjáumst í dag!!
Miðasala í Stubb appinu.
Streymið á símum stað https://bli-web.dataproject.com/MainStreaming.aspx
Áfram💛🖤
07/03/2026
Í dag er ekkert annað í stöðunni en að kíkja í íþróttahúsið þar sem bæði liðin okkar eru að keppa 💛🖤
Blakveislan byrjar í dag þegar Þróttur Fjarðabyggð og Afturelding mætast í fyrri tvíhöða helgarinnar.
Það væri gaman að sjá íþróttahúsið fullt á þessum síðustu deildarleikjum liðanna okkar í vetur.
Miðasala er í Stubb appinu og við mælum með helgarpassanum sem gildir á alla fjóra leikina.
Streymi er hér https://bli-web.dataproject.com/MainStreaming.aspx
Áfram Þróttur!!
Click here to claim your Sponsored Listing.
Location
Category
Contact the business
Website
Address
Neskaupstaður