Blessuð
Nú er komið að því að opna Golfherminn okkar formlega.
Gjaldskrá fyrir golfherminn október 2025 til maí 2026:
Árgjald:
40.000 kr 18 ára og eldri
30.000 kr 17 ára og yngri
Haustgjald 25.000 kr, Vorgjald 25.000 kr. 18 ára og eldri
Haustgjald 20.000 kr, Vorgjald 20.000 kr. 17 ára og yngri
Stakur tími 3.500 kr
17 ára og yngri þurfa að vera í fylgd með fullorðnum.
Númerið á lyklaboxinu breytist í dag.
Skráning sendist á [email protected], við skráningu þá fær viðkomandi nýja lyklaboxnúmerið.
Göngum vel um húsnæðið og búnaðinn okkar.
kv.Formaðurinn
Golfklúbbur Norðfjarðar
Grænanesvöllur
Golfvöllurinn á Norðfirði
www.golf740.is Golfklúbbur Norðfjarðar
Það var hinn 1.maí 1965 að Gissur Ó. Stofnfélagar voru fimmtán og var Gissur Ó.
Elingsson þá póst-og símstjóri í Neskaupstað, kallaði saman tíu menn í þeim tilgangi að hefja undirbúning að stofnun golfklúbbs í bænum. En Gissur hafði kynnst golfíþróttinni í Vestmannaeyjum og var að því best er vitað einn af stofnendum Golfklúbbs Vestmannaeyja.Til fundarins voru komnir Gissur Ó Erlingsson, Sigfús Guðmundsson, Kristján Lundberg, Stefán Þorleifsson, Jón L Baldursson, Stefán Pálma
Blessuð
Nú þurfum við hjálp við að sanda grínin á sunnudag kl.10.
Við þurfum að setja grasfræ á grínin, sanda yfir þau og að lokum áburð yfir þau.
Ef það verður góð mæting þá er lika hægt að taka inn bekki, rótbóta.
Kv.Formaðurinn
Blessuð
Í gær voru grínin tappagötuð, það þarf aðstoð við að moka töppunum af grínunum. Hákon Huldar er á golfvellinum og verður þar fram eftir.
Ef einhverjir geta komið og hjálpað honum þá væri það vel þegið, muna að taka með sér skóflur.
kv.Formaðurinn
Blessuð
Í dag hefst undirbúningur undir malbikun á bílaplaninu okkar.
Bílaplanið verður fín heflað í dag.
Mikilvægt að keyra ekki inn á bílaplanið eftir það og fram að malmikun.
Seinna í vikunni verður bílaplanið malbikað.
kv.Formaðurinn
Blesssuð
Skráning í golfferðina gengur vel.
Síðasti skráningardagur er mánudaginn 8.september.
Koma svo.
kv.Formaðurinn
27/08/2025
Bessuð
Nú er komið að því að skrá sig í golfferð næsta vor á golfvöllinn Montecastillo á Spáni.
Flogið með Icelandair til Jerez, 2.maí til 13.maí.
Skráningar linkur:
https://www.verditravel.is/is/einkaferd/montecastillo-gn
Við höfum pláss fyrir 40 til 48 í ferðina.
kv.Formaðurinn
Montecastillo GN Montecastillo er ein af perlum GolfSögu, þar er kylfingum boðið upp á einstaka 5 stjörnu golf- og hótel upplifun.Á Montecastillo er allt innifalið í mat, drykk og golfi við einstaklega glæsilegar aðst…
20/08/2025
Stefansmótið verður um helgina... ekki láta ykkur vanta. Kræsingar að vanda í skálanum milli hringja 🤗
Kæru GN félagar ⛳️
Nýir og gamlir
Karlar og konur
Stéfansmót GN og SÚN.
Er á laugardaginn 23 ágúst og byrjar kl 10:00 ⛳️
Nú leitum við til ykkar kæru félagsmenn að leggja okkur lið og slá til veislu (Pálinuboð) eins og verið hefur á þessum degi
🎂🎂☕️☕️🍰🧁🍰☕️
Það sem þarf er til dæmis :
Marensterta
Súkkulaðiterta
Brauðtertur
EÐA einhvað annað sem sómir sér vel á veisluborði okkar.
Best er að skrá hér í skilaboðum hvað þú kemur með . Og koma með bakkelsið inn í golfskála milli 11-12 .
⛳️⛳️⛳️⛳️⛳️
Svo þarf hjálp við vaktir
milli 11-13
milli 13- 15
milli 15-17
Best að skrifa í skilaboðum hvenær þú getur hjálpað til í skálanum . 🏌️
Með bestu kveðju
Húsnefndin 2025
20/08/2025
05/08/2025
Kæru hefðarmeyjar, ykkur er boðið á Hefðarmeyjarmótið 2025 fimmtudaginn 7.ágúst
Við hefjum leika kl 17:00 á fordrykk við skálann. eftir mót verður boðið uppá dýrindis kjúklingasúpu og eftirétt
A.T.H ! Þemað í ár er Hefðarmey og sérstök verðlaun verða veitt fyrir flottasta höfuðfat !
mótsgjaldið er 7000kr og skráning fer framm hér á facebook í gegnum einkaskilaboð.
-Tekið verður við skráningum út miðvikudaginn 6.ágúst
Mótið er skemmtimót þar sem spilaðar verða ýmsar golf þrautir með óhefðbundum hætti. mótið er spilað í pörum og því er gott að finna sér caddy. en endielga látið það ekki stoppa ykkur í að koma ef þið finnið ekki slíkan !
Hlakka til að sjá ykkur sem flestar og eiga með ykkur góða stund kæru vinkonur
Hæ GN félagar⛳️
Okkur vantar hjálp í golfskálanum milli 10 -16 á laugardaginn þegar Neistaflugsmótið er .
Er einhver GN-félagi sem getur hjálpað til, má hann skrá sig hér í skilaboðum.
Svanhvít er milli 10-13
Vilborg er milli 13-16
Og þar vantar hjálp⛳️⛳️🏌️⛳️
Kv.Helga Sveins
Click here to claim your Sponsored Listing.
Location
Category
Contact the business
Telephone
Website
Address
Norðfjarðarsveit
Neskaupstaður
740
Opening Hours
| Monday | 06:00 - 23:45 |
| Tuesday | 06:00 - 23:45 |
| Wednesday | 06:00 - 23:45 |
| Thursday | 06:00 - 23:45 |
| Friday | 06:00 - 23:45 |
| Saturday | 06:00 - 23:45 |
| Sunday | 06:00 - 23:45 |