16/02/2019
Eigum við að ræða listmuni á Bali.
🌏 #
Contact information, map and directions, contact form, opening hours, services, ratings, photos, videos and announcements from Yoga með Nanný, Sports & Recreation Venue, Lágmói 16, Njarðvík.
Ég er mjög áhugasamur yogakennari og Qi Gong leiðbeinandi. Á þessari síðu ætla ég að kynna fyrir ykkur allar hugdettur sem snúast í höfðinu á mér og svo ætla ég að deila námskeiðunum sem ég mun standa fyrir.
16/02/2019
Eigum við að ræða listmuni á Bali.
🌏 #
05/03/2018
Við gæddum okkur á rauðrunnatei, drógum spil og spáðum í framtíðina eftir Heimajógatímann í dag🙏 næsti tími er á miðvikudaginn kl 16.30 og það eru nokkur pláss laus ❤️
25/02/2018
Örfá pláss laus í dekur Heima yoga í mars.
Við munum gefa okkur eina og hálfa klst í viku til að undirbúa okkur fyrir útivistina í vor og gera nærandi jógaæfingar, hugleiða, dvelja í núinu og við gefum okkur góðann tíma í slökun og auðvitað njótum samverunnar við hvort annað, eftir tímana fáum við okkur dásamlega nærandi yoga te, þetta gerum við allt heima hjá mér á Lágmóa 16 í Njarðvík.
Tímarnir verða á mismunandi dögum aðra vikuna á þriðjudögum og fimmtudögum og hina vikuna á mánudögum og miðvikudögum sjá dagsetningar hér fyrir neðan,
allir tímarnir verða kl 16.30 -18.00 dagsetningarnar eru:
1. mars fimmtudagur
5. mars mánudagur
7. mars miðvikudagur
13. mars þriðjudagur
15. mars fimmtudagur
19. mars mánudagur
21 mars miðvikudagur
27. mars þriðjudagur
Kostnaður fyrir 8 tímana í 4 vikurnar er kr 16000
Vinsamlega hafið samband í skilaboðum, hringið í síma 8938900 eða sendið póst á [email protected]
Takk elskur fyrir að koma og yoga með mér í heimayoga í janúar. Ég ætla að vera með nýtt Heimayoganámskeið sem byrjar fimmtudaginn 1. mars kl 16.30, þið sem eruð áhugasöm sendið mér skilaboð hér eða þar :)
Kæru jógavinir gleðilegt ár og takk fyrir dásamlegt jógaár.
Nú á nýju ári ætla að bjóða uppá Heimajóga í janúar,
við ætlum að gera hreinsandi jógaæfingar, hugleiðum og dveljum í Núinu, slökum og njótum, eftir tímana fáum við okkur yoga te, þetta gerum við allt heima hjá mér á Lágmóa 16 í Njarðvík.
Tímarnir verða á mismunandi dögum aðra vikuna á þriðjudögum og fimmtudögum og hina vikuna á mánudögum og miðvikudögum sjá dagsetningar hér fyrir neðan allir tímarnir verða kl 16.30 -18.00.
Ég byrja byrja þriðjud 9. jan kl 16.30
Dagsetningarnar eru:
þriðjudagur 9.jan
fimmtudagur 11.jan
mánudagur 15. jan
mðvikudagur 17.jan
þriðjudagur 23.jan
fimmtudagur 25,jan
mánudagur 29.jan
miðvikudagur 31.jan
Kostnaður er kr 16000
lagt inn á reikning 0142-05-078203 kt 020457 5549
Yoga með Nanný
Ég er mjög áhugasamur yogakennari og Qi Gong leiðbeinandi. Á þessari síðu ætla ég að kynna fyrir ykkur allar hugdettur sem snúast í höfðinu á mér og svo ætla ég að deila námskeiðunum sem ég mun standa fyrir.
06/11/2017
Nýtt námskeið 50+ er byrjað enn ennþá er laust pláss og ennþá hægt að skrá sig og koma með, þið sem eruð ennþá á leiðinni komið með okkur. Í dag ætlum við að hugsa um hvað við elskum á okkur axlirnar og hálsinn við ætlum að vinna með allskonar teygjur, kubba o.fl
Hægt er að kaupa 5 tíma klippikortkort fyrir kr 8.500
Tíminn er í dag í OM Setrinu Hafnargötu 57 Kef og byrjar kl 17.30
21/10/2017
Allt er vænt sem vel er grænt, í grænu krukkunni er blanda sem nefnist Græna Bomban 2 msk á dag af henni jafnast á við allan grænmetisskammt dagsins bragðast vel með kjöti og fiski:
Handfylli af spínati
handfylli af öðru grænu salati (t.d blandað salat eða vatnakarsi)
handfylli af ferskri steinselju
handfylli af ferskri basiliku
1 daðla
dash af olíu
dash af sítrónusafa
Allt sett saman í blandara í nokkrar mínútur
Borðað með gleði í hjartanu
Halló allir ég verð með jógatíma hjá Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum í dag kl 12.00 allir velkomnir þetta er kjörið tækifæri til að prufa jóga, enginn kostnaður bara að koma brosandi með dýnu undir hendinni
20/09/2017
Mjótum þess að taka á móti haust orkunni 🙏
Haustorkan | Tveir Heimar Samkvæmt kínverskum læknisfræðum er orka haustsins þyngri en hin létta orka sumarsins. Haustorkan hægir á ferðinni, hún gerir okkur hæglát og ígrunduð í hugsun, andstætt flæðandi og áhyggjulausri orku sumarsins. Á haustin byrjar skólinn, alls konar námskeið fara í gang og einbeitingin er í hávegum h...
10/09/2017
Ég hreinlega elska Hvönn hún er bæði falleg og holl 😊
Hvönn hefur lengi haft orð á sér sem lækningajurt, hún er góð fyrir blóðrásina bætir meltingu og vinnur gegn gigt. Hvönnin vex víða í kringum okkur og auðvelt að tína hana allt sumarið fram á haust það fer eftir hvaða hluta af hvönnini við ætlum að nota. Hvönnin er beisk í munni fyrir nútíma fólk, það er til gamalt máltæki sem segir "Það sem er tungunni beiskt er maganum sætt og einnig er því öfugt farið" Bragðið venst við notkun.
Það má nota hvannarstönglana sem forrétti og fylla þá af sætum, krydduðum rjómaosti eða fylla þá af kavíar úr túbu nú eða borða þá með harðfiski og smjöri ef þið viljið hafa þetta rammíslenskt.
Hvannarblöðin má skera smátt og nota í kornmat og brauð.
09/09/2017