14/03/2024
❤️
Samstöðuæfing fyrir Anítu okkar❤️
Aníta hefur æft CrossFit hjá okkur síðan 2020.
Hún er hluti af stóra iðkendahópnum okkar og því snerti það okkur öll þegar hún greindist með krabbamein fyrir nokkrum mánuðum síðan.
Hún hefur barist eins og hetja og stöndum við í Crossfit Selfoss að sjálfsögðu við bakið á henni og fjölskyldu hennar í þeirri baráttu.
Til að sýna samstöðu ætlum við að taka styrktaræfinguna sem box800 hefur auglýst henni til heiðurs hér í CrossFit Selfoss næstkomandi laugardag kl 9:30 og ætla meistaraflokkar Selfoss og Árborgar að styðja hana með okkur.
Allir velkomnir og má taka með sér eins marga og þið viljið á æfinguna🙌🏽✨
Þeir sem geta og vilja styrkja okkar konu og fjölskylduna hennar geta lagt inn hér:
KT 681122-1170
RKN 0586 26 681122
Hlökkum til að sjá ykkur á laugardaginn😍
11/11/2023
Kæru Grindvíkingar
Hugur okkar allra er hjá ykkur.
Sporthúsið vill leggja sitt af mörkum og bjóða ykkur öllum frían aðgang hjá okkur á meðan þetta óvissuástand varir.
Hvort sem þið viljið bara koma við og hoppa í sturtu eða skella ykkur á æfingu, þá eruð þið hjartanlega velkomin.
Þetta gildir um tækjasalina hjá okkur, opna hóptíma, auk CrossFit, BootCamp og SportHiit.
Þið mætið bara í afgreiðsluna og gefið upp kennitöluna ykkar.
Kær kveðja,
Þröstur, Ari og Eva
20/10/2023
Kæru konur og kvár
Eins og allir vita, þá hefur verið boðið til kvennaverkfalls þann 24. október næstkomandi. Við í Sporthúsinu hvetjum sem flesta til að taka þátt í samstöðufundum og munum að sjálfsögðu ekki setja okkur á móti því að starfsfólk okkar geri það.
Þessu til viðbótar viljum við hvetja konur og kvár til þess að huga vel að eigin heilsu og því ætlum við að bjóða konum og kvárum frían aðgang að Sporthúsinu þennan dag. Þið mætið bara á staðinn og gefið ykkur fram í afgreiðslu.
Vissulega gerum við ráð fyrir einhverri skerðingu á þjónustu á meðan á verkfalli stendur, en karlmennirnir á svæðinu munu reyna að halda starfseminni gangandi eftir fremstu getu.
Kær kveðja,
Þröstur Jón, eigandi
14/04/2023
Næsta grunnnámskeið hefst á mánudaginn 🤗
02/03/2023
Vertu með á skemmtilegasta viðburði ársins 🥳
Miðasala í fullum gangi 💥