Fjarðargangan

Fjarðargangan

Share

Fjarðargangan á Ólafsfirði er hluti af Íslandsgöngum SKÍ. Trimmganga fyrir alla fjölskylduna.

Photos from Fjarðargangan's post 17/02/2026
Photos from Fjarðargangan's post 15/02/2026

Edda og Kristján fyrst í Fjarðargöngunni 2026.
Fjarðargangan fór fram í dag hér á Ólafsfirði við fínar aðstæður þó veður hefði mátt vera betra. Alls voru 83 keppendur skráðir til leiks í hinum ýmsu vegalengdum og gekk mótahald vel. Fjarðargangan á 40 ára afmæli, en fyrsta gangan var haldin 1986.
Fyrst kvenna með 20km var Edda Vésteinsdóttir Ulli og hjá körlunum var Kristján Hauksson SÓ fyrstur.

Öll úrslit mótsins má sjá hér..... www.timataka.net/fjardargangan2026
Meðfylgjandi eru nokkrar myndir en meira af myndum frá þessum frábæra degi koma hingað inn síðar í kvöld.

Takk allir fyrir komuna, takk allir sjálfboðaliðarnir fyrir vinnuna, án ykkar væri þetta ekki hægt.

15/02/2026

Allt á plani í dag.
Veðrið þokkalegt, snjóaði í morgun og smá gjóla sem ekkert er.
Hér er brautarkort fyrir daginn.

14/02/2026

Jæja frábæra fólk, þá er allt að verða klárt hjá okkur og vonandi eigum við frábæran dag hér í firðinum á morgun. Þátttaka er framar vonum miðað við aðstæður í vetur og við svakalega ánægð að ná að færa gönguna inn í bæjinn okkar.

Dagskrá er eftirfarandi:
09-10:30 Afhending keppnisgagna í Tjarnarborg
10:30 Barnagangan 2026 ræst
11:00 Fjarðargangan 2026 ræst
12:00 Sundlaugin á Ólafsfirði opnar
13:00-16:00 Craftverslun með pop-up í Tjarnarborg
14:30 Kaffisamsæti og verðlaunaafhending í Tjarnarborg

Við hvetjum bæjarbúa til að flagga, enda hátíð í bæ ;-)

Hlökkum til að taka á móti ykkur!

Photos from Skíðafélag Ólafsfjarðar's post 14/02/2026

Allt að gerast

13/02/2026

Góða kvöldið.
Enn kyngir niður snjó hér í Ólafsfirði og hefur gert í allan dag. Við vorum að funda og höfum ákveðið að fresta Fjarðargöngunni til sunnudags og halda þá gönguna hér í miðbænum.
Dagskráin verður óbreytt nema færist yfir á sunnudag, auk þess að við verðum með opið fyrir skráningu sólarhring lengur.

Við hlökkum til að sjá ykkur og geta loksins haldið gönguna í miðbænum!

13/02/2026

Góðan og blessaðann 🥳
Staðan hér á Ólafsfirði er þannig að hér er búið að vera óveður síðan seint í nótt. Töluvert hefur snjóað og gerir enn. Veður á hinsvegar að ganga niður þegar líður á daginn og þá sjáum við betur hvernig staðan er með Lágheiði. Við viljum bara upplýsa ykkur um þetta, hér er mikil óvissa hvort við þurfum að seinka göngunni um einhverja klukkutíma á morgun, náum að halda plani eða hvað. Við upplýsum ykkur aftur um kl 20 í kvöld.
Við minnum á að hægt er að sækja númerin sín í dag í Tjarnarborg og tilvalið að kíkja í Pálshús auk þess sem CRAFTVERSLUN er mætt með pop-up verslun og er hjá okkur í Tjarnarborg.

16-20:30 Afhending keppnisgagna í Tjarnarborg
16-20:30 CRAFTVERSLUN með pop-up verslun í Tjarnarborg
16-19:00 Sögusýning um skíðaíþróttina í Ólafsfirði í Pálshúsi

Photos from Fjarðargangan's post 12/02/2026

Skráningu lýkur á miðnætti á morgun, föstudaginn 13.febrúar!
Komdu með: www.netskraning.is/fjardargangan

DRÖG að dagskrá mótsins er eftirfarandi:
Föstudagur 13.febrúar
16:00 - 20:30 Móttaka keppnisgagna í TJARNARBORG
16:00 - 20:30 Craftverslun með sölubás í Tjarnarborg
16:00 -19:00 Opnun sögusýningar skíðaíþróttarinnar á Ólafsfirði í Pálshúsi.

Laugardagur 14. febrúar
08:00 - 10:00 Móttaka keppnisgagna í Tjarnarborg
10:30 Barnagangan 2026 ræst
11:00 Fjarðargangan 2026 ræst
13:00 - 16:00 Craftverslun með sölubás í Tjarnarborg
13:00 - 16:00 Sögusýning skíðaíþróttarinnar á Ólafsfirði í Pálshúsi.
15:00 Kaffisamsæti og verðlaunaafhending í Tjarnarborg
Verðlaunað er í eftirfarandi aldursflokkum:
20 km, 17-34 ára, 35-49 ára, 50-64 ára, 65 ára og eldri, kvenna og karla.10 km, þrjú efstu sæti kvenna og karla
Úrdráttarverðlaun verða dregin út í kaffisamsætinu kl 15:00

10/02/2026

Nú er ljóst að Fjarðargangan verður haldin á Lágheiði 14.febrúar. Veðurspáin er frábær, það verður kalt, en aðstæður eru flottar á heiðinni. Við verðum með 5km hring og eru hægt að velja 5km, 10km og 20km, barnagöngu 500m ca og stemmningin verður til staðar þrátt fyrir að vera ekki í miðbæ Ólafsfjarðar eins og við viljum vera. Akstur frá bænum tekur um 20 min upp á Lágheiði frá Ólafsfjarðarbæ.

DRÖG að dagskrá mótsins er eftirfarandi:
Föstudagur 13.febrúar
16:00 - 20:30 Móttaka keppnisgagna í TJARNARBORG
16:00 - 20:30 Craftverslun með sölubás í Tjarnarborg
16:00 Opnun sögusýningar skíðaíþróttarinnar á Ólafsfirði í Pálshúsi.

Laugardagur 14. febrúar
08:00 - 10:00 Móttaka keppnisgagna í Tjarnarborg
10:30 Barnagangan 2026 ræst
11:00 Fjarðargangan 2026 ræst
13:00 - 16:00 Craftverslun með sölubás í Tjarnarborg
15:00 Kaffisamsæti og verðlaunaafhending í Tjarnarborg
Verðlaunað er í eftirfarandi aldursflokkum:
20 km, 17-34 ára, 35-49 ára, 50-64 ára, 65 ára og eldri, kvenna og karla.10 km, þrjú efstu sæti kvenna og karla
Úrdráttarverðlaun verða dregin út í kaffisamsætinu kl 15:00
Craftverslun með sölubás í Tjarnarborg.

Hlökkum til að sjá ykkur!

www.netskraning.is/fjardargangan

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Olafsfjördhur?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Category

Telephone

Address


Tindaöxl
Olafsfjördhur
625