Deildará

Deildará

Share

Deildará á Sléttu is one of the best kept secrets when it comes to salmon fishing in Iceland.

A three rod river with comfortable self catering or fully catered lodging.

Photos from Deildará's post 07/12/2020

Deildará er þriggja stanga laxveiðiá. Meðalveiði síðustu ára er u.þ.b. 240 laxar. Til viðbótar við laxinn er einnig gjöful silungsveiði.

Mjög gott veiðihús fylgir með leyfum.

Eigum eftirfarandi daga lausa á komandi sumri:

2.-5. júlí
8.-11. júlí
11.-14. júlí
18.-24. júlí
22.-25. ágúst
31. ágúst - 1. sept
10.-20. sept

Frekari upplýsingar í s. 6669555 eða á [email protected]

Photos from Deildará's post 26/10/2020

Byrjað að taka við bókunum fyrir næsta sumar í Deildará.

Gjöful þriggja stanga laxveiðiá á Melrakkasléttu. Meðalveiði síðustu ára er u.þ.b. 240 laxar. Gott veiðihús fylgir leyfum.
Eigum eftirfarandi daga lausa á komandi sumri.

Áhugasamir geta haft samband á [email protected], s. 6669555 eða í skilaboðum hér á fb..

09/07/2020

Níu laxar á land í dag og einn 60 cm urriði að auki. Eftir líflega fimm laxa morgunveiði bættu veiðimenn sem nú standa vaktina við fjórum í kvöld.

Vegna forfalla erlendra veiðimanna eru lausir dagar 11-18/7 og svo aftur 24-27/7.

Áhugasamir geta haft samband í síma 6669555 eða sent tölvupóst á [email protected]

09/07/2020

Veiðin tók góðan kipp í morgun þegar fimm laxar komu á land. Eru þá komnir 17 laxar á land í sumar og vonandi að næstu dagar verði líflegir á bökkum Deildarár.

Á meðfylgjandi mynd má sjá Kjartan Ólafsson kljást við lax í Melrakka (nr. 7) nú í morgun.

Vegna forfalla erlendra veiðimanna eru nokkrir dagar lausir milli 11.-18. júlí.

Áhugasamir geta haft samband í s. 6669555 eða sent póst á [email protected]

Photos from Deildará's post 22/06/2020

Ritstjóri síðunnar leit eitthvað skakkt á dagatalið í gær og birti lokatölu opnunarhollsins degi áður en veiðum lauk. Hér er því komin leiðrétting með uppfærðum aflatölum.

Veiðar hófust 20. júní og voru í hádeginu komnir fimm laxar á land.

87 cm hrygna veiddist í Minkahyl, 86 cm hængur í Langhyl, 80 cm hængur og 74 cm hrygna í Melrakka og 73 cm hrygna í Illakeldu.

Mjög lífleg opnun og misstu veiðimenn s*x laxa til viðbótar. Þar af einhverja sem réttu úr krókum við löndun.

Mjög stór fiskur sem veiðimenn áætluðu um 100 cm stökk jafnframt í Langhyl.

Á myndunum má sjá Steingrím Friðriksson með fyrsta lax sumarsins úr Langhyl, Gunnar Örn með fallega hrygnu úr Minkahyl og Ilmi Maríu að landa einum af fjölmörgum urriðum sem hún krækti í.

Photos from Deildará's post 18/06/2020

Nú styttist að við opnun Deildará, þann 20.júní, og við getum staðfest að laxinn er mættur í ána. Sést hefur til laxa hrista af sér lýs í ósnum.

Við gleðjumst einnig yfir því að nýja veiðihúsið er reist og tilbúið að taka á móti veiðimönnum. Meðfylgjandi eru myndir úr húsinu.

Photos from Deildará's post 12/05/2020

Eins og margir vita brann annað af tveimur veiðihúsum - eða svefnálman - í Deildará í vetur. Nú eru framkvæmdir hafnar á nýju húsi og miðar verki vel. Húsið verður tilbúið fyrir byrjun veiðitímabils. Lukkulega slapp sánan og heiti potturinn svo það verður topp aðstaða fyrir veiðimenn í sumar.

Photos from Deildará's post 13/03/2020

Deildará er gjöful þriggja stanga laxveiðiá á Melrakkasléttu. Árleg meðalveiði síðustu fimm ára er rúmlega 240 laxar. Gott veiðihús fylgir leyfum.

Eigum eftirfarandi daga lausa á komandi sumri.
8.-11. júlí
15.-21. júlí
3.-15. september

Áhugasamir geta haft samband á [email protected], s. 6669555 eða í skilaboðum hér á fb..

Photos from Deildará's post 14/11/2019

Deildará á Sléttu er bæði skemmtileg og gjöful þriggja stanga laxveiðiá. Árleg meðalveiði síðustu 5 ára er rétt rúmlega 240 laxar.

Veiði var góð á sumrinu sem var að líða og bauð upp á öflugar smálaxagöngur samhliða mjög góðum möguleika á að setja í stórlaxa. Endaði heildarveiðin í ár rétt yfir meðalveiði síðustu ára.

Við ós árinnar stendur vel búið og notalegt veiðihús sem fylgir með veiðileyfum. Þar eru þrjú rúmgóð tveggja manna herbergi, hvert með sér baðherbergi.

Sala veiðileyfa fyrir næsta sumar er hafin og geta áhugasamir haft samband í s. 6669555 eða sent fyrirspurn á [email protected].

Photos from Deildará's post 21/09/2019

We have started booking for next season. For prices and available dates please contact +354 6669555 or [email protected].

Erum byrjaðir að taka við pöntunum í Deildará á Sléttu vegna næsta sumars.

Skemmtileg þriggja stanga laxveiðiá með góðu veiðihúsi. Meðalveiði síðustu 5 ára er ca. 240 laxar.

Nánari upplýsingar í s. 6669555 eða [email protected]

25/08/2019

Flott veiði hefur verið í Deildará síðustu daga. Tveir erlendir veiðimenn hafa verið við veiðar og síðasta þrjá og hálfan daginn hafa þeir landað 20 löxum. Þar með er heildarveiði í Deildará komin nokkuð upp fyrir lokatölu síðasta sumars og enn er nóg eftir af tímabilinu.

Eigum eftirfarandi daga enn lausa:

30. ágúst - 2. sept
8.-11. sept
14.-19. sept

Áhugasamir geta haft samband í síma 6669555.

22/08/2019

Deildará komin í 160 laxa og enn er flottur gangur í veiðinni.

Átta laxar á land í dag. Nokkrir vænir laxar komu á land og var sá stærsti 95 cm og veiddist í Holtunum.

Eigum eftirfarandi daga lausa.

31. ágúst - 2. sept
8.-11. sept
14.-20. sept

Áhugasamir geta haft samband í síma 6669555.

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Raufarhöfn?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Telephone

Website

Address


Raufarhöfn
675