27/09/2025
Við fórum á dögunum að kanna nýjar slóðir og í þetta sinn var það Skinnalón sem er á Melrakkasléttu. Frábært veður, fullt af fuglum og sáum við einn sel. Lónið er þannig að það er haft eða þröskuldur og þar er ekki dýpra en það að maður sá þaragróðurinn. Vorum við á útfallinu (að fjara út) og náðum við því nokkuð góðum endahraða er við fórum út fyrir það, ægilega skemmtileg upplifun mæli með þessu.
Nú er bara að leigja sér kajak og prófa 😀
28/08/2025
Tilbúin(n) í næsta ævintýri?
Við erum með kajaka tilbúna fyrir þig á Raufarhöfn.
Eins og tveggja manna kajakar, búnaður innifalinn—björgunarvesti, árar og vatnshelt símahulstur.
Þurrbúningur og sjóstöng í boði.
Bókaðu núna á arctickayak.is eða hringdu í +354 895 0654.
Opið alla daga kl. 08:00–19:00,
Frá 20. maí–20. september.
Aðalbraut 16, 670 Raufarhöfn
28/08/2025
Ready for your next adventure?
We have kayaks ready for you in Raufarhöfn.
Single and double kayaks. Essentials included—life vest, oars and a waterproof phone cover.
Dry suit and fishing rod available.
Book now at arctickayak.is or call +354 895 0654.
Open 08:00–19:00 daily, May 20–Sept 20.
Aðalbraut 16, 670 Raufarhöfn
26/08/2025
Upplifðu Raufarhöfn frá nýju sjónarhorni.
Experience Raufarhöfn from a new perspective.
Eitt að öðru munum við kynna betur þau verkefni sem fengu úthlutað úr frumkvæðissjóð brothættra byggað II á þessu ári.
Raufarhöfn og framtíðin / Öxarfjörður í sókn.
Nýr afþreyingarmöguleiki hefur litið dagsins ljós á Raufarhöfn undir heitinu Arctick Kayak Ferðamönnum er boðið uppá kajakferðir í kringum Raufarhöfn.
Lengri dvöl ferðamanna á svæðinu hefur verið eitt af markmiðum ferðaþjónustunnar á Norðausturhorninu, og hefur skortur á afþreyingarmöguleikum verið nefndur sem áskorun. Arctic Kayak er svar við þeirri þörf og er nú boðið uppá nýja leið til að upplifa náttúru og kyrrð svæðisins á einstakan hátt.
Ferðaþjónustuaðilum á svæðinu er bent á að kynna afþreyinguna fyrir gestum sínum og hvetja til þátttöku. Aukinn fjöldi viðkomustaða og lengri dvöl ferðamanna er til hagsbóta fyrir samfélagið í heild.