Cheeriosmót Víkings 2024

Cheeriosmót Víkings 2024

Share

Upplýsingasíða fyrir árlegt Cheeriosmót Víkings sem haldið er af barna- og unglingaráði Knattspyrnudeildar Víkings

02/05/2025

Við erum klár í Hamingjunni og hlökkum til að taka á móti ykkur á morgun.
Víkingur

02/05/2025

Minnum á að koma tímanlega um helgina, bílastæði eru að skornum skammti.

Minnum á að í grendinni eru bílastæði og jafnvel Hopp hjól.

Sjá sniðuga síðu hér til að skoða hvernig er hægt að koma gangandi og/eða hjólandi:
https://korter.vistorka.is/ #/

29/04/2025

Við endurtökum leikinn frá því í fyrra en hægt er að senda inn myndir af þátttakendum á mótinu í aðdraganda þess á https://www.cheerios.is/cheerios-motid-2025

Valdar verða nokkrar myndir sem birtar verða á strætóskýlum í kringum Víkina á meðan á mótinu stendur.

Photos from Cheeriosmót Víkings 2024's post 06/05/2024

Takk fyrir komuna á Cheeriosmótið 2024!

Við erum himinlifandi með hvernig tókst til með mótið í ár og vonum innilega að þau 2.550 börn sem tóku þátt séu það líka.

Við viljum þakka öllum forráðamönnum og öðrum áhorfendum sem komu á mótið fyrir þolinmæði í umferðinni og í leit að bílastæðum.

Að Cheeriosmótinu stendur barna- og unglingaráð knattspyrnudeildar Víkings með dyggum stuðningi frá og í samstarfi við Nathan & Olsen. Allur ágóði af mótinu rennur til barnastarfs í Víkinni.

Þetta árið sáu 3. fl. karla og 4. fl. karla Víkings um veitingasölu en þeir flokkar halda í keppnisferðir erlendis á komandi sumri.

Við viljum þakka þeim fjölmörgu sjálfboðaliðum úr Víkingssólkerfinu ásamt starfsfóki félagsins sem stóðu vaktina í dómgæslu, verðlaunaafhendingu, umferðarstýringu og mörgu fleira.

Cheeriosmótið 2025 verður haldið helgina 3. til 4. maí n.k.

Sjáumst að ári :)

05/05/2024

Það er ekki Ibizaveður í Víkinni en milt og fallegt er það.

Við villjum minna gesti á að nýta almenningssamgöngur ef þeir eiga þess nokkurn kost, ef gestir koma á einkabíl að gera ráð fyrir að það taki nokkrun tíma að finna bílastæði.

Verið velkomin

Photos from Cheeriosmót Víkings 2024's post 04/05/2024

Minnum á að á æfingakeilunum er QR kóði, notaðu myndavélina í símanum þínum til að fara á vefslóðina á bakvið kóðann. Þar eru myndbönd með hugmynd af æfingum með æfingakeilunum.

Photos from Cheeriosmót Víkings 2024's post 04/05/2024

Leikjaplan á mótinu

03/05/2024

Hérna er vallarskipulagið okkar:

Photos from Cheeriosmót Víkings 2024's post 03/05/2024

Þátttakendur á Cheeriosmótinu þetta árið fá verðlaunapening, Cheeriospakka og æfingakeilur í mótsgjöf.

Á æfingakeilunum er QR kóði, þegar tekin er mynd af kóðanum þá lendir maður á síðu þar sem eru myndbönd með hugmyndum að æfingum með keilurnar.

Gôðar stundir!

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Reykjavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Category

Address


Traðarland 1
Reykjavík
108