Éxito - Fyrirtækjaráðgjöf & einstaklingsmeðferðir

Éxito - Fyrirtækjaráðgjöf & einstaklingsmeðferðir

Share

Fyrirtækjaráðgjöf, stjórnun og mannauðslausnir. Einstaklingsmeðferðir, markþjálfun, dáleiðsla og fl.

Éxito býr að 20 ára reynslu af stjórnun sem og akademískri þekkingu úr stjórnendafræðum, sálfræði, viðskiptafræði og gæðastjórnun auk stjórnendamarkþjálfunar og klínískri dáleiðslu. Við notum aðferðir sem sýnt hafa fram á að skili góðum árangri sambanber stjórnendamarkþjálfun (e. executive coaching), NLP markþjálfun, LET stjórnenda- og samskiptaþjálfun, Hugræna endurforritun og EMDR.

Við leggjum

25/07/2023
REBT - Éxito 18/07/2023

VILTU LÆRA AÐ STJÓRNA TILFINNINGUM, HEGÐUN OG HUGSUNUM ÞÍNUM?
Rational emotive behavior therapy (REBT) er tegund meðferðar sem Albert Ellis kynnti á fimmta áratug síðustu aldar. Þetta er aðgerðamiðuð nálgun. Hún miðar að því að hjálpa fólki að bera kennsl á óskynsamlegar skoðanir og neikvæð hugsanamynstur. Það lærir hvernig á að stjórna tilfinningum sínum, hugsunum og hegðun á heilbrigðari, raunsærri hátt. Samkvæmt REBT er hugsun okkar, tilfinningar og hegðun tengd. Lestu nánar í línknum hér fyrir neðan👇

REBT - Éxito Rational emotive behavior therapy (REBT) er tegund meðferðar sem Albert Ellis kynnti á fimmta áratug síðustu aldar.

04/07/2023

HVAÐ ER SAMÞÆTT NÁLGUN?
Samþætt nálgun byggist á því að stuðst er við ýmsar aðferðir til að styrkja og efla einstaklinga. Sú aðferð sem er notuð hverju sinni fer eftir því sem er verið að vinna með og þá í samráði við einstaklinginn. Það getur verið gott að vinna fyrst úr erfiðri lífsreynslu, áföllum, heftandi sannfæringu og trú eða hvað eina sem heldur aftur af fólki og hindrar framgang og þróun áður en haldið er af stað í að setja sér markmið og sækja fram. Langar þig til að styrkja og efla þig? Lestu nánar í Link in Bio. 👆

20/06/2023

Er þörf á að koma skipulagi á ýmis starfsmannamál? Eru til ráðningasamningar og starfslýsingar? Er verið að fylgja lögum og reglum á sviði vinnuverndar, jafnréttismála og persónuverndar? Éxito veitir ráðgjöf á breiðu sviði mannauðsmála og aðstoðar við að kortleggja stöðuna og móta áætlun um framhaldið.

Við komum tímabundið inn í verkefni með fyrirtækjum og þá í bland með ráðgjöf og vinnu að þeim verkefnum sem inna þarf af hendi.
Nánar um mannauðsráðgjöf hér https://exito.is/mannaudsradgjof/ 👇

Meðferðardáleiðsla - Éxito 07/06/2023

HEFUR ÞÚ PRUFAÐ MEÐFERÐARDÁLEIÐSLU?
Í dáleiðslumeðferð er hægt að meðhöndla ýmiskonar sálræn og sálvefræn einkenni, vandamál og reynslu, kvíða og vana sem þú vilt breyta. Meðferðin hefur reynst mjög áhrifarík í vinnu með afleiðingar áfalla. Gæti meðferðardáleiðsla verið fyrir þig? Lestu nánar í linknum hér fyrir neðan. 👇

Meðferðardáleiðsla - Éxito Meðferðardáleiðsla vinnur á áhrifaríkan hátt með undirmeðvitundina en þar geymum við alla okkar reynslu og færni sem og vandamál.

23/05/2023

HVERT STEFNIR FYRIRTÆKIÐ ÞITT?
Er fyrirtækið þitt búið að vaxa umfram innri getu til að taka við þeim vexti? Éxito veitir ráðgjöf sem stuðlar að skýrari ferlum, markvissari samskiptum og réttri skipan starfsfólks og þróun þeirra. Nánar um stjórnendaráðgjöf í linknum hér fyrir neðan.

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Reykjavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Category

Telephone

Address


Ármúli 23
Reykjavík
108

Opening Hours

Monday 09:00 - 17:00
Tuesday 09:00 - 17:00
Wednesday 09:00 - 17:00
Thursday 09:00 - 17:00
Friday 09:00 - 17:00