Heilsuklasinn

Heilsuklasinn

Share

Contact information, map and directions, contact form, opening hours, services, ratings, photos, videos and announcements from Heilsuklasinn, Gym/Physical Fitness Center, Bíldshöfða 9, Reykjavík.

Fleira hægt að gera en að þamba mjólk 26/01/2026

Meira um beinheilsu, en nú var viðtal tekið við Sigríði Björnsdóttur, innkirtla- og efnaskiptalækni. Opnuð hefur verið vefsíðan beinheilsa.is, þar sem ýmsa fróðleiksmola er að finna tengt heilsu beinanna okkar og hvað er hægt að gera til að stuðla að góðri beinheilsu. Hægt er að lesa viðtalið hér: https://www.mbl.is/frettir/innlent/2026/01/26/fleira_haegt_ad_gera_en_ad_thamba_mjolk/?fbclid=IwY2xjawPkWItleHRuA2FlbQIxMABicmlkETBPUTk3R0s1em5WMXFETTRnc3J0YwZhcHBfaWQQMjIyMDM5MTc4ODIwMDg5MgABHgOatOcOvDrs9IbJK93KAFogTTs74h0zf2WZ5FrHz3psFWJIemjwvlD2HpGS_aem_Qxf8dXNX4t7rXcBlpRtYHg

Þriðjudaginn 27. janúar hefst svo námskeiðið Sterkari bein í Heilsuklasanum, sem lesa má nánar um hér: https://klasinn.is/namskeid-hja-heilsuklasanum/likamsraekt/sterkari-bein/

Fleira hægt að gera en að þamba mjólk Í liðinni viku gerði mikil ísing vart við sig á götum og gangstéttum borgarinnar og þurftu tugir að leita á bráðamóttöku Landspítalans vegna hálkuslysa. Líkum má leiða að því að hægt hefði verið að fyrirbyggja einhver slysanna, og alvarlegar afleiðingar fyrir þá sem í...

Sterkari bein - Heilsuklasinn 14/01/2026

Rætt var um beinheilsu í Síðdegisútvarpinu á Rás 2 í gær. Þar voru þau Sigríður Björnsdóttir innkirtla- og efnaskiptalæknir í Heilsuklasanum og Lars Óli Jessen fagstjóri heilsuræktar Heilsuklasans fengin í viðtal. Viðtalið þeirra hefst eftir rúmar 37 min og má nálgast hér: https://www.ruv.is/utvarp/spila/siddegisutvarpid/23825/bimpc8

Sigríður og Lars, ásamt Thelmu Rut Grímsdóttur næringarfræðingi, settu upp vefinn beinheilsa.is. Þar má finna ýmsan fróðleik og æfingar tengt beinþynningu og þeim áskorunum sem fylgja þeim þögla sjúkdómi.

Í Heilsuklasanum er í boði heilsuræktarnámskeið fyrir þá sem glíma við beinþynningu. Næsta námskeið hefst 27. janúar og nánar má lesa sig til um það námskeið hér: https://klasinn.is/namskeid-hja-heilsuklasanum/likamsraekt/sterkari-bein/

Sterkari bein - Heilsuklasinn Heilsuklasinn hefur sérstöðu innan heilsugeirans. Hér taka saman höndum ólíkir sérfræðingar eins og læknar, hjúkrunarfræðingar, næringarfræðingar, sálfræðingar, félagsráðgjafi og sjúkraþjálfarar, auk sérfræðinga á öðrum sviðum. Þannig verður þjónustan heilstæð ...

28/10/2025

Góðan dag

Vegna veðurviðvarana tengt veðrinu verður húsinu lokað kl 17:00 í dag. Stefnt er að því að hafa hefðbundinn opnunartíma á morgun, en staðan á því verður tekin eldsnemma í fyrramálið.

Farið varlega ❤

Sam­skipti: Lykillinn að vel­líðan og árangri í vinnu­um­hverfi - Vísir 17/03/2025

Hér fer Ásta Guðrún, markþjálfi í Heilsuklasanum, yfir mikilvægi samskipta á vinnustöðum. Áhrif samskipta á árangur fyrirtækja og líðan starfsfólk er mikil - endilega lesið!

Sam­skipti: Lykillinn að vel­líðan og árangri í vinnu­um­hverfi - Vísir Samskipti eru ein af grunnstoðum árangursríkra vinnustaða. Þau móta menningu fyrirtækja, hafa áhrif á vellíðan starfsfólks og geta ráðið úrslitum um hvort starfsfólk dafnar í starfi eða upplifir streitu og vanlíðan. 

06/02/2025

Góðan dag
Vegna áframhaldandi óveðurs og rauðra veðurviðvarana falla niður allir hóptímar í Heilsuklasanum í dag, fimmtudaginn 6. febrúar til kl 14:00. Stöðin er opin svo það er hægt að mæta í ræktina, en við mælum með því að fólk haldi sig frekar heima í dag vegna veðurs.

05/02/2025

RAUÐ VEÐURVIÐVÖRUN - TÍMAR FRÁ KL 16 FALLA NIÐUR

Búið er að gefa út rauða veðurviðvörun milli 16-19 í dag, miðvikudaginn 5. febrúar. Sökum þessa munu allir tímar og öll námskeið falla niður frá og með kl 16 í dag. Ræktin er opin til 20 eins og venjulega, en við mælum eindregið með því að fólk haldi sig heima í dag og mæti frekar tvíeflt í ræktina á morgun. Förum varlega ❤

20/01/2025

Upplifun iðkanda:

„Það má segja að ég hafi verið komin á ákveðin tímapunkt í lífinu þar sem ég vissi að eitthvað varð að gerast.
Ég sá auglýsinguna um námskeiðið á laugardegi, skráði mig og námskeiðið byrjaði nokkrum dögum seinna.
Ég þurfti ekki mikið að hugsa mig um, lýsingin á námskeiðinu gerði það að verkum að ég treysti mér til að mæta.
Út frá lýsingunni vissi ég að þarna yrði fólk sem væri á svipuðum stað og ég.“

- Guðfinna, iðkandi á námskeiði sem byrjaði haustið 2024

06/01/2025

Mikilvægt er að hugsa heilsuræktina sem langtíma verkefni, frekar en skammtíma lausn.
Taktu skrefið inn í nýtt og betra ár.

Njóta eða þjóta á að­ventu og jólum - Vísir 17/12/2024

Lágmörkum stress og njótum hátíðanna ❤️ Góð orð frá tveimur af sálfræðingum Heilsuklasans ☺️

Njóta eða þjóta á að­ventu og jólum - Vísir Nú er veturinn genginn í garð og rútína og hversdagsleiki orðinn fastur í sessi á flestum heimilum. Margir þekkja að það getur verið heilmikil áskorun að púsla saman öllu því sem þarf að gera í dagsins önn. Boltarnir eru oft ansi margir, bæði í einkalífi og starfi og margi...

21/11/2024

Nýlega hóf Bryndís Einarsdóttir, sálfræðingur, störf hjá okkur í Heilsuklasanum. Frábær viðbót við flottan hóp fagfólks sem starfar hjá okkur.

15/10/2024

Lokaðir tímar í góðum félagsskap.
Frábærir tímar fyrir þau sem vilja hugsa um heilsuna og skemmta sér á meðan.

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Reykjavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Telephone

Address


Bíldshöfða 9
Reykjavík
110

Opening Hours

Monday 06:00 - 20:00
Tuesday 06:00 - 20:00
Wednesday 06:00 - 20:00
Thursday 06:00 - 20:00
Friday 06:00 - 20:00
Saturday 07:30 - 14:00
Sunday 10:00 - 14:00