04/01/2026
Gleðilegt ár og vona að allir hafi haft það gott.
Hérna er smá samantektar myndband frá æfingumn árið 2025
https://youtu.be/jN8LgGWrQoU
Endilega fylgið mér á youtube þar sem ég ætla að vera virkari árið 2026.
Inn á youtube síðunni má finna: - https://www.youtube.com/toppthjalfun
- Styrktarþjálfarinn - Hlaðvarp (Allir þættir)
- Toppþjálfun - Bakvið tjöldin (Vlog)
- Fitness Tips Toppþjálfunar
- Fullt af æfingamyndböndum
Toppþjálfun - 2025 High Performance Elite training
Enjoy the videos and music that you love, upload original content and share it all with friends, family and the world on YouTube.
02/06/2025
Ræktin í fékk flotta andlitslyftingu í vetur. Ég og breyttum ræktinni í alvöru Sport Performance gym.
Ég sótti mitt dót sem hafði verið í Toppþjálfun gymminu og virkilega hækkuðum standardinn á aðstöðunni. Við fengum gervigras bút af gamla grasinu sem var á KR svæðinu. Við hreinsuðum endalaust magn af sandi úr því og þurftum að hífa það upp á aðra hæð 🫣😅
Mikilvægt að hafa gott vinnuumhverfi til að ná árangri og finna hvatningu til að gera ennþá betur. 💪💪
11/05/2025
Núna er í boði Hybrid þjálfun.
Kíktu á æfingu 1x í viku hjá mér og ég set upp restina ad vikunni með tilliti til markmiðs, þörf, álags með einstaklings miðaðri þjálfun.
Sendi mér 😎 í DM ef þu vilt meiri upplýsingar 🤝💪
01/03/2025
Með þungum hug kveðjum við okkar ástkæra vin 💔
Teddy, sem kvaddi þennan heim 28. febrúar 2025, tæplega 14 ára gamall. Á stundu sem þessari er undirstrikað hversu mikil merking er á bak við orðin að hundurinn er besti vinur mannsins. Að kveðja hundinn minn er talsvert erfiðara en ég hafði getað ímyndað mér. Teddy var einstakur hundur, skemmtilegur persónuleiki sem fékk mann reglulega til að brosa. Daglegu göngutúrarnir okkar sem og fallegu hvolpaaugun að sníkja mat hjá okkur við matarborðið munu lifa í minningunni um ókomna tíð.
Teddy fæddist í Malasíu árið 2011 og flutti til Noregs með fyrri eigendum sínum. Hann kom inn í líf okkar Írisar í janúar 2013 þegar við bjuggum í Stavanger. Íris mín vildi mikið fá hund og fann hún Teddy okkar sem flutti með okkur til Íslands sumarið sama ár. Þegar Júlíus fæddist tók Teddy hlutverki sínu sem eldri bróðir alvarlega. Hann passaði upp á litla bróður sinn frá fyrsta degi, sat við hlið barnastólsins eða lagðist hliðina á honum á gólfinu.
Teddy var ekki aðeins fjölskyldumeðlimur, heldur einnig ómissandi hluti af Toppþjálfun líkamsræktarstöðinni. Það voru forréttindi að geta tekið hann með mér daglega í vinnuna. Hann fékk að njóta sín í botn enda mikil félagsvera og heilsaði alltaf upp á viðskiptavinina. Innan veggja Toppþjálfunar var hann kallaður aðstoðarþjálfarinn og hressti upp á viðskiptavini eftir erfiðar æfingar.
Í júlí 2024 kom ný viðbót í fjölskylduna þegar kötturinn Leo flutti inn á heimilið. Teddy og Leo urðu miklir vinir og nánast óaðskiljanlegir allt til loka.
Það var þriðjudaginn 25. febrúar þegar rann upp fyrir mér sá raunveruleiki að ég myndi þurfa að kveðja minn besta vin. Heilsubrestirnir voru farnir að leika hann grátt og taka sinn toll á heilsu hans. Ég gerði það sem ég g*t til að nýta daginn með honum fara í langan göngutúr og njóta síðustu augnablikanna með honum.
Við erum óendanlega þakklát fyrir öll árin og stundirnar sem við áttum saman í gegnum þessi 12 ár.
Teddy, þú munt alltaf eiga sérstakan stað í hjörtum okkar. Hvíl í friði elsku vinur 🕊️
13/01/2025
Frábær helgi í Færeyjum 🇫🇴að hjálpa TB ⚪️⚫️sem er lið á eyjunni Suðurøy. Þeir komust upp um deild á síðasta tímabili og eru núna í fullum undirbúningi fyrir Betri deildina 2025.
Fjórða skiptið sem ég fer til Færeyja í ráðgjafa hlutverki til að hjálpa félagi með bæta líkamlega þáttinn hjá þér.
Virkilega gaman að geta veitt innblástur og gefið dýpri sýn og skilning á það hvernig hægt er að bæta leikmannahópinn líkamlega.
16/12/2024
Frábær Jólagjöf fyrir íþróttafólk 🥇🏆
Hið vinsæla gjafabréf Toppþjálfunar er komið í sölu á betra verði en nokkru sinni fyrr.
Gefðu þínu íþróttafólki þjálfun í jólagjöf.
⚜Semi Private þjálfun - 12 tímar - Verð á gjafabréfi 60.000 kr (Almennt verð (80.000 kr).
⚜Fjarþjálfun - 12 vikur Verð á gjafabréfi 40.000 kr (Almennt verð 50.000 kr).
Fyrir frekar upplýsingar og kaup á gjafabréfum sendið mér skilaboð í DM
09/12/2024
Hið vinsæla gjafabréf Toppþjálfunar er komið í sölu.
Gefðu þínu íþróttafólki þjálfun í jólagjöf.
- Semi Private þjálfun - 12 tímar - Verð á gjafabréfi 60.000 kr (Almennt verð (80.000 kr).
- Fjarþjálfun - 12 vikur Verð á gjafabréfi 40.000 kr (Almennt verð 50.000 kr).
Fyrir frekar upplýsingar og kaup á gjafabréfum sendið mér skilaboð í DM
29/10/2024
Núna er Off-season gengið í garð og margir þjálfarar vilja nýta þennan tímaramma vel til að undirbúa sig fyrir næsta tímabil.
Núna var að ljúka mínu níunda tímabili sem styrktarþjálfari í efstu deild karla ásamt því að hafa starfað smávægilega í kringum landsliðið og reka eitt besta Sport Performance gym á landinu með Toppþjálfun. Reynslubankinn minn er orðinn gríðarlega stór og langar mig að deila þekkingu minni og reynslu með þjálfurum sem vilja notfæra sér mína aðstoð.
Ég ætla að bjóða þjálfurum upp á Mentorship fyrir áramót. Þar sem þjálfarar geta farið í gegnum hin ýmsu atriði á borð við:
♦️Sérhæfð styrktarprógröm fyrir knattspyrnufólk
♦️Hlaup, hraði og kraftur út á velli
♦️Mælingar og úrvinnsla
♦️GPS vinnsla & álagsstýring
♦️Tímabilaskipting (e. Periodization)
Hvernig fer þetta fram?
⚜️3x í mánuði færðu 60 mín viðtalstíma
⚜️1x í mánuði verður workshop þar sem unnið er saman í kringum ákveðin "Topic".
📫Sendu "Coach" í DM ef þú vilt skrá þig.
02/10/2024
🚨Off-season 2024 🚨
10 árið í röð sem Toppþjálfun bíður upp á Off-season þjálfun. Hægt er að koma í þjálfun í Semi-private hóp og æfa með öðru metnaðarfullu íþróttafólki eða í Off-season Online prógrami.
Off-season þjálfun er fyrir þá sem vilja:
✅ Hámarka Off-season tímaramman til að koma aftur til leiks í alvöru formi.
✅ Notfæra sér þekkingu og reynslu eins fremsta styrktarþjálfara landsins.
✅ Bæta afkastagetu sína, kraft, styrk og hraða 📈
✅ Fyrirbyggja meiðsli eða eru að koma tilbaka aftur eftir meiðsli
📫 Sendu mér "Beastmode" í DM ef þú vilt verða besta útgáfan af þér í Off-season
17/09/2024
Hef opnað aftur fyrir einkaþjálfun á morgnanna! 💪💪
Hef saknað þess mikið að vera með góða og skemmtilega hópa í þjálfun á morgnanna. Ég ætla að því að bjóða upp á slíka þjónustu á ný.
➡️Semi-Private þjálfun byggist upp eins og einkaþjálfun þar sem 3-5 æfa saman en allir vinna eftir sérhæfðu prógrami sem hentar hverjum og einum útfrá þörfum og markmiðum.
📍Æfingar fara fram í Gymminu í KR þar sem stór hluti af æfing*tækjum Toppþjálfunar hafa verið sett upp svo gamli góði andinn úr gamla gymminu rís upp á ný.
🖊Ef þú vilt skrá þig eða vita eitthvað meira um þjálfunina ekki hika við að senda mér DM eða póst á [email protected]
Hlakka til að keyra þessa þjálfun í gang og sjá meira af metnaðarfullu fólki ná sínum markmiðum 🏆