15/03/2025
Nýtt byrjendanámskeið framundan 👏👇
Hlaupahópur ÍR
Æfingar mánudaga og miðvikudaga kl. 17:30 frá ÍR heimilinu við Skógarsel 12.
Þjálfarar: Fjóla Dröfn Guðmundsdóttir og Valur Þór Kristjánsson
15/03/2025
Nýtt byrjendanámskeið framundan 👏👇
28/01/2024
15/10/2023
Glæsilegir fulltrúar hlaupahóps ÍR í Búdapest í morgun
02/12/2022
Tryggið ykkur miða og styðjið um leið við starf allra deilda ÍR
Miðasala á Þorrablót ÍR stendur enn yfir 💙
Það eru nokkur borð laus og bæði er hægt að kaupa heil borð og staka miða. Sendu póst á [email protected] með fjölda miða eða hringdu í síma 587 7080 til að ganga frá kaupum 🥳
Það lætur enginn ÍR-ingur þennan viðburð fara framhjá sér. Við lofum geggjuðum mat (þorramat, steik með öllu og vegan) og dúndrandi stuði fram eftir nóttu. Fyrirpartý sem eru ómissandi verða um allt hverfi 💃🕺
Miðaverð er 12.900 kr.
Skelltu þér á miða og taktu vinina með 💙
04/11/2022
Miðasala hefst 1. desember!!!
Þorrablót ÍR verður haldið laugardaginn 14. janúar 2023 💃💙🕺
Það verður öllu tjaldað til þetta árið – þriggja ára skammtur af stanslausu stuði 🤩
Hljómsveitin Made In Sveitin ásamt Hreimi og Ernu Hrönn ætla sjá til þess að dansinn duni.
Stórsöngkonan Guðrún Árný stýrir fjöldasöng og veislustjórn verður í höndum hinnar stórskemmtilegu Önnu Svövu leikkonu.
Hið rómaða þorrahlaðborð Múlakaffis, lambalæri með öllu og vegan veislumatur verður á boðstólnum, svo það er matur við allra hæfi. Við lofum ást og kærleik í hverjum bita.
Miðasala hefst fimmtudaginn 1. desember í ÍR heimilinu og verða seld heil 12 manna borð að venju. Verð á blótið er 12.900 kr og 4.900 kr. á ballið.
Nú er um að gera að hringja í vini, preppa partý og gera allt klárt fyrir þorraveislu ársins 2023 🥳 🥂
Í ár er þorrablótið í boði Flotgólf, sem hefur nýlokið við að byggja hið stórglæsilega íþróttahús ÍR í Skógarselinu. Toyota, Byko, GG verk, Nivea og Gluggagerðin styrkja einnig blótið veglega í ár.
Fylgist með á Facebook og Instagram og látið orðróminn berast 🤡
28/10/2022
Stórglæsilegt þorrblót í vændum - takið daginn frá.
Miðasala auglýst síðar
Hvar ætlar þú að vera 14. janúar 2023? 🕺💃
Ójá 🤩 Auðvitað á þorrablóti ÍR í nýja íþróttahúsinu okkar í Skógarseli 💙
Við hjá ÍR erum á fullu að undirbúa GEGGJAÐ þorrablót með landsliði skemmtikrafta.
Taktu daginn frá, hringdu í vini og byrjaðu að hlakka til 😉
Fylgstu með á Facebook og Instagram💙
Þorrablót ÍR í samstarfi við
Flotgólf | Toyota | Byko | Örugg verkfræðistofa | GG Verk | Nivea | Gluggagerðin
17/10/2022
Vel mætt í dag enda brekkur á matseðlinum.
28/09/2022
Svo tilbúin í þennan miðvikudag!!
Frábær mæting í byrjendahópinn í dag og enn pláss fyrir fleiri.
Förum hægt af stað 😇
Næsta æfing byrjendahóps er þriðjuda 6/9 kl 17:30