06/08/2022
Fjölnir og Appelsín vill þakka öllum þáttakendum, þjálfurum og foreldrum fyrir þáttökuna. Á mótinu voru spilaðir 186 leikir á 10 völlum og veðrið var okkur heldur betur hagstætt.
Eftirfarandi lið unnu sína Riðla og fengu að 🏆 launum
🏆 FH 1 í riðli 1
🏆Breiðablik Höskuldur í riðli 2
🏆 Fram 1 í riðli 3
🏆 Fylkir 2 í riðli 4
🏆 HK 2 í riðli 5
🏆 Þróttur 3 í riðli 6
🏆 ÍR 2 í riðli 7
🏆 HK 4 í riðli 8
🏆 Þróttur 6 í riðli 9
🏆 Uppsveitir í riðli 10
🏆 ÍR 3 í riðli 11
🏆 Hamar 2 í riðli 12
Óskum sigurvegurum til hamingju og þökkum ykkur öllum fyrir gott mót. Sjáumst á næsta ári
P.s. myndir af mótinu munu birtast síðar.
06/08/2022
Fyrstu úrslit klár
🏆 ÍR2 riðill 7
🏆 HK 4 riðill 8
🏆 Þróttur 3 riðill 6
🏆 Þróttur 6 riðill 9
🏆 FH1 riðill 1
🏆 Fram 1 riðill 3
06/08/2022
Minnum á mótsgjafir sem eru afhentar við sjoppuna á Kárapalli.
Liðsstjórar geta komið og sótt en einnig er hægt að að koma með liðin eftir síðsta leik ⚽
05/08/2022
Kæru þjálfara, liðsstjórar og foreldrar
⚽ Við minnum á bílastæðin við íþróttamiðstöðina í Dalhúsum og fyrir ofan Gagnveg.
⚽ Liðsstjórar skulu sækja mótsgjafir í sjoppuna á Kárapalli fyrir sitt lið.
⚽ Eftir síðasta leik hvers liðs eru pylsur í boði fyrir leikmenn í sjoppunni á Kárapalli.
⚽ Kaffi, safar, gos ásamt ýmiskonar veitingum verða til sölu ásamt því að kaffivagninn mun rölta um svæðið.
⚽ Aðstaða fyrir þjálfa og mótstjórn verður í hátíðarsalnum.
⚽ Minnum aftur á leikjaplanið sem hægt er að skoða hér https://docs.google.com/spreadsheets/d/1BPT1oLhEQYioguuNhFwe1ZJfXUwyE9Nb5tTRP54xf6A/edit?usp=drivesdk
Hlökkum til að taka á móti ykkur á morgun.
05/08/2022
Kæru þáttakendur
Rétt í þessu var verið að senda út leikjaplan fyrir Appelsínmót Fjölnis en hægt er að nálgast skjalið hér.
https://docs.google.com/spreadsheets/d/1BPT1oLhEQYioguuNhFwe1ZJfXUwyE9Nb5tTRP54xf6A/edit?usp=sharing
Einnig erum við komin með yfirlitsmynd af svæðinu. Minnum á að leyfilegt verður að leggja á grasbala fyrir ofan Gagnveg en hafið í huga að leggja ekki á gangstéttina sjálfa heldur fyrir ofan hana, sjá meðfylgjandi mynd. Svo eru einnig bílastæði fyrir framan sundlaug, við Húsaskóla og íþróttahús. Það er því nóg af stæðum og því skal alls ekki leggja undir neinum kringumstæðum við í einkastæði íbúa
Það verður sjoppa á svæðinu þar sem hægt verður að kaupa kaffi, djús, gos og léttar veitingar.
Hlökkum til að sjá ykkur.
💛💙💛
30/06/2022
Skráning í fullum gangi fyrir Appelsínmót Fjölnis. Þið sem eruð eftir að skrá ykkar lið endilega sendið línu á Björn yfirþjálfara [email protected]