Tennisklúbbur Þróttar 2024
I Tennisklúbbur Þróttar
Tennisdeildin starfrækir tennisklúbb TÞ. Meðlimir eru félagar tennisdeildar TÞ og aðrir sem stjórn TÞ samþykkir og greitt hafa árgjald til TÞ.
Almennt árgjald Kr. 12.000
Fjölskyldugjald (Maki og börn innan 18 ára) Kr. 15.000
Unglingagjald (16 – 18 ára) Kr. 4.000
Þeir klúbbfélagar sem skrá sig á a.m.k. eitt tennisnámskeið á vegum deildarinnar fá helmingsafslátt af klúbbgjaldi.
II Vallarskilmálar.
Klúbbfélagar, sem greitt hafa árgjald, fá velli samkvæmt eftirfarandi skilmálum án greiðslu vallargjalds:
1. Völlur sé ekki frátekinn fyrir tennisnámskeið, klúbbtíma, mót eða er þegar í notkun af öðrum klúbbfélaga.
2. Þeim sem skráð sig hafa í klúbbinn og greitt hafa árgjald er heimilt á öðrum tímum að spila á tennisvöllunum félagsins.
3. Sýnum tillitssemi og hleypum öðrum að ef með þarf þegar við höfum leikið í klukkustund.
Þeir sem ekki eru í klúbbnum geta fengið völl með þessum skilmálum.
1. Greiða vallarleigu kr. 2.500 pr. klst. í félagshúsi Þróttar (s. 580-5900) áður en leikur hefst að því gefnu að völlur sé ekki í notkun eða frátekinn.
2. Börn og unglingar 15 ára og yngri, sem ekki eru klúbbfélagar, geta spilað endurgjaldslaust á völlunum en geta ekki pantað tíma og verða að víkja af velli fyrir klúbbfélögum og þeim sem kaupa staka tíma.
III Fastir tímar.
Almennt eru vellirnir fráteknir á neðangreindum tímum;
• Námskeið á mánudögum og miðvikudögum kl. 16:30-20:15 og á föstudögum kl. 17:00-18:00 (sjá auglýsingu um námskeið á vef Þróttar)
• Klúbbtímar opnir öllum félögum á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 17:00 – 19:00. Nánari upplýsingar um fasta tíma eru kynntar félögum á póstlista.
IV Greiðslur
Föst klúbbgjöld má greiða í banka eða heimabanka á reikning tennisdeildar:
kt: 470678-0119, reikn: 0117-26-15758.
Staka tíma skal greiða hjá starfsmönnum í félagshúsinu.
V Nánari upplýsingar.
Nýjustu útgáfu af þessu skjali er að finna á vef félagsins, trottur.is, Loks má hafa samband við tengiliði tennisdeildarinnar, Indriða H. Þorláksson, [email protected] eða Ævar Ísberg, [email protected].
Tennisklúbbur Þróttar
Tennisklúbbur Þróttar er starfræktur af Tennisdeild Þróttar og heldur utan um tennisvelli á Valbjarnarvelli í Laugardal.
06/05/2024
Sumaræfingar hefjast 3. júní.
22/08/2023
22/08/2023
Takk allir sem mættu og lögðu sitt af mörkum í fallegu minningarmóti um Braga Leif. Ánægjulegt að sjá vini og fjölskyldu Braga og hvað allir voru viljugir að vera með og reiðubúnir að aðstoða við að gera þetta að góðum viðburði. Úrslitin má sjá í meðf. myndum. Hvetjum ykkur svo (í anda Braga) til að nýta vellina í veðurblíðunni! Hér má lesa samantekt um mótið frá formanninum og vini Braga: https://trottur.is/2023/08/21/minningarmot-um-braga-leif-hauksson/
Tennisklúbbur Þróttar 2022
Tennisdeildin starfrækir tennisklúbb TÞ. Meðlimir eru félagar tennisdeildar TÞ og aðrir sem stjórn TÞ samþykkir og greitt hafa árgjald til TÞ.
Almennt árgjald Kr. 11.000 (8.000 ef gr. fyrir 3. júl.)
Fjölskyldugjald (Maki og börn innan 18 ára) Kr. 14.000 (10.000 ef gr. fyrir 3. júl.)
Unglingagjald (16 – 18 ára) Kr. 3.000
Þeir klúbbfélagar sem skrá sig á a.m.k. eitt tennisnámskeið á vegum deildarinnar fá helmingsafslátt af klúbbgjaldi.
II Vallarskilmálar.
Klúbbfélagar, sem greitt hafa árgjald, fá velli samkvæmt eftirfarandi skilmálum án greiðslu vallargjalds:
1. Völlur sé ekki frátekinn fyrir tennisnámskeið, klúbbtíma (opinn öllum klúbbfélögum), mót eða er þegar í notkun af öðrum klúbbfélaga.
2. Þeir sem skráð sig hafa í klúbbinn og greitt hafa árgjald fá afhenta lykla að völlunum og vallarsvæðinu. Óheimilt er að afhenda öðrum lyklana og skal þeim skilað við brotthvarf úr klúbbnum eða ef árgjald er ekki greitt. (Engir lyklar í bili 2022, en treyst á eiðarleika
fólks.)
3. Í bili er ekki boðið upp á að panta völl, en verði þörf á þá verður það gert.
4. Sýnum tillitssemi og hleypum öðrum að ef með þarf þegar við höfum leikið í klukkustund.
Þeir sem ekki eru í klúbbnum geta fengið völl með þessum skilmálum.
1. Greiða vallarleigu kr. 2.500 pr. klst. í félagshúsi Þróttar (s. 580-5900) áður en leikur hefst að því gefnu að völlur sé ekki í notkun eða frátekinn.
2. Börn og unglingar 15 ára og yngri, sem ekki eru klúbbfélagar, geta spilað endurgjaldslaust á völlunum en geta ekki pantað tíma og verða að víkja af velli fyrir klúbbfélögum og þeim sem kaupa staka tíma.
III Fastir tímar.
Almennt eru vellirnir fráteknir á neðangreindum tímum;
Námskeið á mánudögum og miðvikudögum kl. 16:30-20;00 (sjá auglýsingu um námskeið)
Klúbbtímar opnir öllum félögum á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 17:00 – 19:00
Nánari upplýsingar um fasta tíma eru kynntar félögum á póstlista.
IV Greiðslur
Föst klúbbgjöld má greiða í banka eða heimabanka á reikning tennisdeildar:
kt: 470678-0119, reikn: 0117-26-15758.
Vinsamlegast sendið kvittun á [email protected] og [email protected]
Staka tíma skal greiða hjá húsverði í félagshúsinu.
V Nánari upplýsingar.
Nýjustu útgáfu af þessu skjali er að finna á vef félagsins, trottur.is, Einnig má hafa samband við forsvarsmenn tennisdeildarinnar, Indriða H. Þorláksson, [email protected] og BragaL.
Hauksson, [email protected]. Ef erindið er brýnt, þá er farsími Indriða 863-4332 og farsími Braga 864-2273.
Við verðum venju samkvæmt með opna tíma á Þróttarvöllunum á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 17-19.
Við spilum yfirleitt tvíliðaleik og röðum saman á vellina til að hafa þetta sem skemmtilegast.
Ég mun á næstu dögum senda ykkur upplýsingar um árgjald og fleira.
Sjáumst sem flest í góða veðrinu í dag,
Bragi
s. 864-2273
26/05/2022
Vindbrjótarnir þenjast í golunni og tryggja lognið á völlunum sem eru nú tilbúnir fyrir sumarið.
Eltið Tennisklúbb Þróttar og heyrið fréttir af sumarstarfinu, æfingum, hverjir mæta o.þ.h.
02/10/2021
Vellirnir frágengnir fyrir veturinn. Sjáumst hress í vor.
Click here to claim your Sponsored Listing.
Location
Category
Contact the business
Website
Address
Engjavegur 7
Reykjavík
104