Teygjutvistfélag Reykjavíkur

Teygjutvistfélag Reykjavíkur

Share

Hversu langt er síðan þú lékst þér úti í teygjó á björtum sumarkvöldum? Rifjum upp gamla takta og kennum yngri kynslóðinni. Svo er það líka svo skemmtilegt!

Teygjutvist er holl hreyfing, þjálfar félagsfærni og rýmisgreind.

Photos 08/08/2020

Hinsegin teygjur - stolt í hverju trítli!

Photos 21/07/2020

Það er best að puttahekla mjóu teygjurnar

Photos from Teygjutvistfélag Reykjavíkur's post 09/07/2020

Við fögnum vel heppnaðri uppákomu þar sem efnilegur hópur kom saman til að læra teygjó. Þessir krakkar eiga framtíðina fyrir sér. Inn á milli leyndust líka reyndir teygjósnillingar sem settu teygjuna á hilluna fyrir löngu.
Eftir kennslu og æfingar hentum við upp 50 metra teygju og hátt í þrjátíu manns trítluðu yfir teygjuna - sem er óstaðfest Íslandsmet í risateygjó. 🏆

Vonandi hefur okkur tekist að hrinda af stað nýju teygjó-æði...

Við þökkum Fjölskyldu- og húsdýragarðinum samstarfið, ABC skólavörum stuðninginn, aðstoðarfólkinu fyrir hjálpina og þeim sem mættu þökkum við þátttökuna. Sjáumst í teygjó! 😊

08/07/2020

Smá sýnikennsla í tveimur útgáfum af íslensku þríhyrndu teygjói

Photos 08/07/2020

Möguleikarnir á að finna upp hopp eru endalausir, en klassísk dæmi í þríhyrndu teygjó eru:

5-4-3-2-1, þar sem byrjað er í ökklahæð, farið er yfir teygjuna inn í hringinn án þess að snerta hana, trítlað þar 5 sinnum áður en hoppað er út úr teygjunni á næsta stað og trítlað þar 4 sinnum, svo aftur inn í hringinn og trítla 3 sinnum, út úr á næsta stað og trítla 2 sinnum, síðan inn í hringinn og þá má bara stíga 1 sinni og svo út úr hringnum aftur og þá er maður aftur kominn á byrjunarstað eftir að hafa farið réttsælis einn hring.

Trítl, þar sem er ákveðið að trítla t.d. 3 sinnum í hvert sinn, þ.e. þrisvar inni í hringnum, þrisvar fyrir utan, þrisvar inni í, þrisvar á næsta stað fyrir utan o.s.frv. Því fleiri trítl, því auðveldara er að ruglast í tölunni, t.d. er 10 erfiðara en 3. Ef leikmaðurinn ruglast í tölunni eða snertir teygjuna er hann úr.

Jafnfætis hopp, þar sem er t.d. ákveðið að hoppa þrisvar jafnfætis á hverjum stað. Til viðbótar við reglurnar um að ekki megi snerta teygjuna eða ruglast í tölunni, bætist við að ef annar fóturinn snertir jörð á undan hinum er leikmaðurinn úr. Mikilvægt er að hoppa með ökklana saman, sérstaklega þegar hæð teygjunnar er orðin meiri, því annars flækist maður í teygjunni.

Stigið á teygju, þar sem leikmaður byrjar á að stíga með öðrum fæti ofan á teygjuna og stundum er gerð krafa um að hinn fóturinn, sem er utan við teygjuna, fari undir hana þannig að teygjan liggi ofan á ristinni. Síðan er hoppað inn í þríhyrninginn með frjálsum eða ákveðnum fjölda skrefa, oftast sléttri tölu, t.d. “1-2-3-4 stíga”, en þegar er hoppað út úr aftur þarf að hitta aftur með annan fót á teygjunni og hinn utan við þríhyrninginn, án þess að stigið sé oftar en einu sinni í fótinn sem er fyrir utan, og þannig koll af kolli þar til hringurinn er búinn. Einnig er til útgáfa þar sem báðum fótum er stigið jafnfætis á teygjuna.

Ef leikmaður ruglast í hoppunum (gerir vitlaust), dettur eða snertir/stígur á teygjuna þegar það er bannað er hann úr leik og leysir þann teygjuhaldarann af sem er næstur inn. Sá teygjuhaldari fer þá aftast í röðina til að gera.

Ef mikill munur er á leikmönnum þykir sanngjarnt að þeir allra yngstu, lágvöxnustu eða getuminnstu fái einhverja tilhliðrun varðandi reglurnar, megi t.d. snerta teygjuna í hné þó það sé almennt bannað, og kallast þeir þá "súkkulaði".

Photos 08/07/2020

Í teygjó er byrjað í neðstu stöðu og teygjan síðan hækkuð ef allir geta þá hæð og þannig koll af kolli:
- ökkli: teygjan liggur aftan á öðrum ökklanum, á hásininni,
- hné: teygjan liggur aftan á hnésbót annars hnésins,
- læri: teygjan höfð efst innanfótar um annað lærið (í klofinu),
- mitti: teygjan sett aftur fyrir bak í mittishæð,
- handarkrikar: teygjan fer aftur fyrir brjóstak og kemur fram uppi undir báðum handvegum,
- háls: teygjan aftur fyrir háls,
- hvirfill: teygjunni brugðið utan um úlnlið, höndinni haldið þannig að teygjan sé í hvirfilhæð,
- hendur: gripið um teygjuna og henni haldið með beina handleggi eins langt fyrir ofan höfuð og hægt er (virkileg áskorun, ekki satt?).

Auðvitað er erfiðara að gera það sem á að gera í hnéhæð án þess að snerta teygjuna, og því erfiðara sem teygjuhaldararnir eru hávaxnari miðað við þann sem er að gera. Ef sá sem er að gera er hávaxinn en haldararnir lágvaxnir er það að sama skapi auðveldara fyrir hann, en ef haldararnir eru misháir hallar teygjan og það getur verið áskorun líka. Þegar er komið upp í læri og ofar má snerta teygjuna þó ekki megi stíga á hana.

Til að byrja með er auðvelt að hoppa beint yfir, en þegar teygjan hækkar getur þurft að “klippa”, þ.e. snúa hliðinni að teygjunni og lyfta fyrst öðrum fæti með hnéð beint og stökkva síðan yfir með hinn fótlegginn beinan. Einnig má snúa bakinu að teygjunni og krækja tánum yfir teygjuna um leið og maður snýr sér í loftinu og þegar maður lendir hinumegin við teygjuna hefur maður snúist í hálfhring. Þegar teygjan er komin upp í handarkrika og ofar gæti þurft að fara handahlaup til að komast yfir.

Photos from Teygjutvistfélag Reykjavíkur's post 07/07/2020

Er allt í flækju?

Photos 07/07/2020

Í teygjó er notuð teygja, ýmist flöt nærbuxnateygja (6-10 mm breið) úr vefnaðarvöruverslun eða sívöl snúra, sem er oft fáanleg í leikfangadeildum verslana. Mátulegt er að lengd teygjunnar sé á bilinu 3-10 m, en það fer eftir stærð leikenda og því hversu teygjanleg teygjan er. Ef maður á ekki nógu langa teygju er hægt að hnýta saman tvær styttri. Endar teygjunnar eru síðan bundnir saman svo hún myndi hring. Gott er að nota hnút sem er traustur en auðvelt að leysa aftur, t.d. lykkju, þar sem endinn snýr út.

Þrír halda teygjunni mátulega strekktri í þríhyrning með því að bregða henni um annan ökklann á sér. Einn eða fleiri skiptast á að “gera”, þ.e. hoppa eftir fyrirfram ákveðinni forskrift. Lágmarksfjöldi þátttakenda í teygjutvisti er fjórir (þrír teygjuhaldarar og einn sem gerir), eða jafnvel þrír, því hægt er að spara einn teygjuhaldara með því að þræða teygjuna í lykkjum utan um staur.

Photos 07/07/2020

Bara muna að draga ekki í gegn!

Photos from Teygjutvistfélag Reykjavíkur's post 06/07/2020

Teygjókennsla í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum 8. júlí kl. 17:30 https://www.facebook.com/events/736583907106640/. Við verðum með teygjur á staðnum en þeir sem vilja eignast eigin teygju hafa úr mörgu að velja. Smellið á myndirnar til að sjá verðið.

Photos 05/07/2020

Veðurspáin er mjög lofandi fyrir teygjó!

Photos 26/06/2020

Stundum *á* að stíga á teygjuna.

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Reykjavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Category

Website

Address


Suðurgata 3
Reykjavík
101