Jóga til Þín

Jóga til Þín

Share

♡Jóga til Þín♡
er hugsað sem falleg gjöf frá þér til þín.

21/05/2026

✨️ Æfingamyndband ✨️

Áttum við ekki eftir að taka tásuæfinguna?

Hér kemur framhald af myndbandinu þegar við nudduðum iljarnar og teygðum á tánum...

Það verður að vera gaman - því annars er svo leiðinlegt... þið vitið 😜

Þjálfum tærnar, gefum þeim gott pláss, glennum þær í sundur... ekki bara þegar við erum berfætt eða að gera æfingarnar...

.. líka í skónum!

Prófaðu að grípa öllum tánum utan um boltann og svo BARA lyfta stórutánni... og svo öfugt, lyfta öllum nema stóru!
Hvernig gekk... þarftu að æfa þig?
Gekk betur hægra megin eða vinstra megin?
Segðu okkur í komment 👇

Við Hekla og Hildur mælum svooo með fótlaga skóm eins og og
til að frelsa tærnar!
Fást í og boltarnir líka!

👣✨️ FRELSUM TÆRNAR ✨️👣

14/05/2026

✨️Æfingavideo✨️

Nuddum saman á milli herðablaðanna

Spjallið

Hluti 3 af 3

Segðu okkur í komment hvort þú ert að nýta æfingamyndböndin og nudda þig heima?

Boltarnir fást hjá en líka td í

13/05/2026

✨️ Æfingavideo ✨️

Nuddum saman á milli herðablaðanna

Hluti 2 af 3

Losun á milli herðablaða með tveimur nuddboltum saman í neti.
Boltarnir eru frá og þeir fást m.a. í

Gott að hafa blöðruboltann líka til aukinna þæginda og stuðnings.
Við slökum betur á í nuddæfingunni þegar við getum notað blöðruboltann til að létta á þrýsting þar sem er mjög mikil spenna.

Hvernig finnst þér best að hreyfa hendurnar þegar þú nuddar milli herðablaðanna?
Segðu okkur í komment... því möguleikarnir eru margir 🥰👇

Ekki missa af framhaldinu sem kemur í næsta myndbandi 🙏

12/05/2026

✨️Æfingavideo✨️

Nuddum saman á milli herðablaðanna

Hluti 1 af 3

Næsta nuddæfing er losun á milli herðablaða með tveimur nuddboltum saman í neti.
Boltarnir eru frá og þeir fást m.a. í

Gott að hafa blöðruboltann líka til aukinna þæginda og stuðnings.
Við slökum betur á í nuddæfingunni þegar við getum notað blöðruboltann til að létta á þrýsting þar sem er mjög mikil spenna.

Hvernig finnst þér best að hreyfa hendurnar þegar þú nuddar milli herðablaðanna?
Segðu okkur í komment... því möguleikarnir eru margir 🥰👇

Ekki missa af framhaldinu sem kemur í næsta myndbandi 🙏

11/05/2026

🌿 Skemmtileg saga 🌿 ... eða hvað?

(alltaf smá riskí að koma með skemmtilega sögu)

Amk tillaga að æfingu sem virkjar slökunarviðbragð líkamans á meðan þú losar um spennu milli rifja.

Þessi er extra næs!

Hvaða verkfæri hefur þú náð að taka með þér úr jógasalnum eða úr bandvefslosunartíma og nýtt þér á gagnlegan hátt inn í þínu daglega lífi?

Segðu okkur í komment🙏👇

✨️ Er það öndunin?
✨️ Eru það fallegu lokaorðin?
✨️ Er það einhver teygja eða jafnvel nuddæfing eins og þessi?

08/05/2026

Ha?! Á hann að vera svona loftlaus?

Blöðruboltinn á einmitt að vera svona hálf loftlaus lufsa já 😁

Við notum hann sem stuðningsbolta og þá er gott að geta stýrt loftmagninu.
Meira loft = meiri stuðningur -》léttir meira á þrýstingi
Minna loft = minni stuðningur-》léttir minna á þrýstingi

Í Bandvefslosun - Body reroll æfingakerfinu er nefnilega mikilvægt að halda taugakerfinu okkar í ró á meðan við nuddum okkur og stundum er það bara ekki hægt án blöðruboltans því það er jú oft mikil spenna sem getur leynst í líkamanum.

En blöðruboltinn nýtist ekki bara sem stuðningsbolti heldur eru nokkrar æfingar þar sem hann er notaður sem nuddbolti, td. á viðkvæmum svæðum.

Þekkir þú þessar æfingar?
Hver er þín uppáhalds... segðu okkur í komment 🥰✨️👇

Blöðruboltinn fæst t.d. hjá sem er í sama húsnæði og við í á Tunguhálsi 19 👌

03/05/2026

Hvernig nuddbolta átt þú?

Eru þeir að styðja við taugakerfið þitt eða spenna það extra mikið upp?

Boltarnir frá gefa eftir og gefa okkur því betri mögulega á að halda taugakerfinu okkar í ró samhliða sjálfsnuddinu.

Hver þekkir ekki tilfinninguna að vera að nudda sig með svo hörðum boltum að maður er algjörlega að drepast?
Gleymir að anda vegna sársauka og farinn að gretta sig og jafnvel spenna upp vöðva á öðrum stöðum á meðan við erum að reyna að losa spennu annarsstaðar?!

Já nei takk...
Fastara nudd, meiri harka og meiri sársauki er ekki besta leiðin til að losa um spennu og fara að líða betur!
Nálgunin í æfingakerfi ar hentar okkur mikið betur. Það eru bara svo mörg sem eru ekki búin að fatta það ennþá.
Gamla viðhorfið hangir fast... að meira og verra hljóti að vera betra og gera meira fyrir mig!

En veistu...
Minna getur gert svo mikið meira... fyrir þig OG taugakerfið þitt!

Það eru nánast engar líkur á að það sé þörf á að þenja taugakerfið okkar meira en það nú þegar er þanið... eða hvað?

Græjaðu þér boltasett frá Bandvefslosun - t.d. í og gerðu æfingar með okkur.
Í mýkt, mildi og ró!
Nuddaðu og njóttu!

Fylgdu og fyrir æfingavideo og fræðslu

29/04/2026

✨️ Æfingavideo ✨️

Nuddum saman svæðið undir viðbeinum, framan á öxlum og niður á brjóstvöðvann.

Mæli með boltunum frá
Algjörlega nauðsynlegt að boltarnir gefi aðeins eftir svo við getum nuddað okkur með taugakerfið okkar í ró 🤍

Vissir þú að spenna undir viðbeini getur haft áhrif á handleggina og alveg niður í lófann.

Vissir þú að spenna í brjóstvöðvum getur haft áhrif á herðablöðin en líka bæði á háls og höfuð og þar með hnakkarótina og getur þá valdið spennuhöfuðverk.

Þessi svæði eru partur af armlínum bandvefs og einnig framanverðri bandvefslínunni.

Þegar við nuddum undir viðbeini finnum við stundum fyrir verk niður í lófa og getur þá ástæðan verið að upptök verkja séu þar.
Þeir sem vinna mikið í tölvu gætu kannast við þetta. Ef spenna liggur á þessari línu getur það haft áhrif hvar sem er á línunni hvort sem er á viðbeini, upphandlegg, framhandlegg eða á lófanum.

Þegar við nuddum brjóstvöðva getum við fundið fyrir verk í höfði eða jafnvel undir rifjum því spenna í brjóstvöðva hefur áhrif á þindina.

Lærðir þú eitthvað nýtt um upptök verkja og bandvefslínurnar ì þessum pósti?

Hvernig gekk þér að nudda?

Segðu okkur 👇✨️

20/04/2026

✨️ Æfingavideo ✨️

Komdu með mér og nuddum iljarnar saman!

Upphaf aftanverðrar bandvefslínu er á iljunum, en hún liggur frá iljum, upp eftir öllum aftanverðum líkama og endar framan á enni.

Þar gæti leynst spenna sem er að hafa áhrif og valda óþægindum annars staðar í líkamanum!

Það er mikilvægt meðal annars fyrir jafnvægið okkar að vökva bandvefskerfið í tám og iljum.
Það gerum við á einfaldan hátt með nuddi með boltunum frá en líka er nauðsynlegt að passa uppá að gefa tánum nægt pláss til að geta hreyft þær.
Þar skiptir skóval höfuðmáli!
Margir átta sig ekki á því að of þröngir skór hafa ekki bara áhrif á tærnar, heldur allt stoðkerfið!

Við mælum með fótlaga skóm t.d. eða en þeir fást í og boltana geturðu einmitt keypt þar líka!

Segðu okkur hvernig gekk að nudda og hvort þú finnir spennu undir iljunum? 👇

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Reykjavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Category

Address


Tunguháls 19
Reykjavík
110

Opening Hours

Monday 00:00 - 18:00
Wednesday 04:15 - 18:00